Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1942, Blaðsíða 15

Læknablaðið - 01.10.1942, Blaðsíða 15
LÆKXABLAÐIÐ biSja þá um aö gera tillögur, hvern í sínu lagi. um þaö, á hvern hátt þeir telji helzt nauSsynlegt aö bæta kjör þeirra og hverjar leiöir þeir vildu helzt aö farnar vrðu.“ Samþykkt samhljóöa. 13. mál. Wýju lögin um aðstoðarlækna og vinnukvöð læknakandídata. Framsögumaöur Magnús Péturs- son (Autoreferat. Ágrip). Aö svo komnu máli hefi ég ekki mikið um lög þessi aö segja, enda hefi ég þegar í upphafsskýrslu minni gert nokkra grein fyrir af- stööu og aðgerðum stjórnar fé- lagsins i þessum málum. En viö töldum sjálfsagt að láta fara hér frant umræður um þessi mál, vegna ágreinings þess, sem um þau hefir oröiö, eöa þó nær eingöngu um vinnukvöð læknakandídatanna. Til frekari skýringar á sjónarmiöi og afstöðu landlæknis í þvi máli, vil ég leyfa mér aö lesa upp svarbréí það, er hann reit stiórn félagsins út af fyrirspurnarbréfi þvi, er hún sendi honum og áöur er frá skýrt. (Bréf þetta er pr'entaö i frumræöu formanns.) Ég vil taka þaö fram, aö stjórn- in ætlast ekki til, aö um þessi má! fari hér fram nein atkvæðagreiðsla né ályktanir geröar, og þá fyrst og fremst af þeim ástæöum, aö L. R. hefir þegar lýst afstööu sinni og mundi þvi atkvæaðgreiðsla hér leiða hiö sama í ljós, þar sem fund- arsókn utanbæjarlækna er svo lit- i!. Mundi bví ekki vera hægt að segja. aö L. í. sem slíkt stæöi á ba'k viö þesskonar ályktanir, enda eru málin sett á dagskrána svo stjórnin megi heyra skoöanir fund- armanna. Um skoöanir utanbæjarlækna á i 11 ntikvaðatjlögunum hefir stjórn félagsins annars litiö heyrt ennþá. Aðeins skal ég geta þess, að aðal- fundur Læknafélags Vestfjarða mótmælti þeinr í einu hljóöi. Auk þess hefir einn héraðslæknir skrif- að mér, að hann myndi ekki fara aö heknan, ef nattðga ætti manm í hans staö á meðan. Loks vil ég ta'ka þaö fram enn, aö stjórn L. í. hefir litið svo á, aö enga nauðsyn liafi borið til aö hraöa svo vinnukvaöarfrumvarp- inu sem gert var, og gefa henni ekki kost á að bera það undir fé- lagsmenn, eins og hún þóttist hafa fulla ástæðu til að búast við að yröi gert. Hefir hún heldur ekki getaö sannfærzt unt, að sú skoöun hennar sé ekki rétt. Páll Kolka: Minntist áðan á collega, sem ekkert frí hefir feng- ið í 12 ár. sjálfur ltefi ég þrisvar orðiö veikur. 1. Appendicitis. Yarö aö taka viö störfum míntim ógróinn eftir appendectomia og ekki búinn aö ná mér eftir embolia. vegna þess aö ekki fékkst vicar. 2. Þurfti að fá magarannsókn, vegna þess að grunur var ttm malignitet. Gekk maður undir tnanns hönd til þess aö reyna' að fá vicar. Ómögulegt. 3. í vetur erysipelas. Setti him- in og jörö á hreyfingu til að íá vicar, en ómögulegt. C'odex ethicus gerir aö skyldu að þjóna fyrir nágrannalækni sinn. en það er hart að læknir, sem held- ur aö ltann sé að fá krabbamein. verður annaöhvort að láta slag standa eða hlaupa frá sjúklingunt sínum i héraöi. vegna þess að eng- inn ungur maður fæst til þess að hlaupa undir bagga. Ef ungu menn- irnir eru að leita sér aö ,.soft jo1t“. ættu þeir að leggja stund á annaö en læknisfræði. Læknisstarfið hefir alderi veriö ,,soft job" og veröttr

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.