Læknablaðið - 01.08.1943, Side 15
LÆKNABLAÐIÐ
2?
t
Arni B. P. Helgason
Hann lézt í Landsspítalanum 6.
apríl 1943, eftir langa og erfiSa
sjúkdómslegu; banamein hans var
ca. ventriculi.
Arni fæddist i Ólafsvík 2. jan.
1890. Foreldrar hans voru séra
Helgi Arnason prestur í Olafsvík
og seinni kona hans María Torfa-
dóttir Thorgrimssen. Hann ólzt
upp hjá foreldrum sínum, en var
snemma settur til mennta, enda
l)ar fljótt á frábærum námsgáfum
hans.
1907, aðeins 17 ára gamall, tók
hann stúdentspróf og 1913 lauk
'hann embættisprófi i læknisfræði.
Sama ár sigldi hann til Kaup-
mannahafnar og var á fæ'Singar-
deild Ríkisspitalans, svo sem venja
var til. Því næst fór hann til Ber-
linar og dvaldi þar um tíma viS
framhaldsnám. 1914 kemur hann
aftur heim og er þá settur héraSs-
læknir í HöfSahverfishéraSi, en
fékk veitingu fyrir því héraSi
19 !7-
1924 er honum veitt Patreks-
fjarSarhéraS og gegndi hann því
til 1. jan. 1943.
1914 giftist hann Hrefnu Jó-
hannesdóttur Stefánssonar kaup-
manns. Þau eignuSust 5 börn:
HólmfriSi, ógift heima, Maríu, d.
1935, Áslaugu, g. Gunnari Proppé
verzlunarmanni, PatreksfirSi,
Helga, sem nú stundar verkfræSi-
nám viS Háskóla íslands og Jó-
hönnu, ógift heima.
Þetta eru í fáum orSum æviatriSi
þessa merka manns. 1 þessari upp-
talningu svipar þeim aS vísu til
æviatriSa flestra héraSslækna á ís-
landi, en samt var hér meira en
meSalmaSur á ferS.
Árni var óvenjulega vel gefinn
til sálar og likama. Þegar hann
byrjar starf sitt, var hann búinn
aS afla sér meiri menntunar en
þá var titt um héraðslækna, og
alla ævi fylgdist hann óvenjulega
vel meS öllum nýjungum og var
óragur aS reyna nýjar leiSir. Sam-
vizkusemi og natni hans viS sjúk-
linga var viS brugSiS, enda tókst
honum aS jafnaSi prýSilega í starfi
sínu og var elskaSur og virtur af
öllum þorra héraSsbúa sinna.
Árni var drengskaparmaSur í
orSsins beztu merkingu, og sann-
ur vinur i raun. Hann vildi leysa
hvers manns vandræSi, og ótalinn
mun vera margur greiSi, er hann
veitti sjúkum og fátækum.