Læknablaðið - 01.08.1943, Blaðsíða 20
30
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla 6.
Tími frá fyrstu einkennum Ví ár Va—5 ár S ár
Sjúklingafjöldi 23 21 10
Pnth.—meðferð, hafa fengið 18 12 2
760/0 57% 20%
Eins og áður er tekið fram eru
tölurnar svo lágar, að ekki verða
miklar ályktanir dregnar af þeim
um framkvæmanleik á loftbrjóst-
meðferð almennt, en greinilega
benda þær þó í þá átt að því skem-
ur sem sjúkdómurinn hefur staðið
þvi meiri líkur eru til að hægt sé
að beita loftbrjóstmeðferð, þar
sem 76% fá pneumothorax af þeim
sem komu til meðferðar innan
hálfs árs, en aðeins 20% af þeim
sem komu eftir 5 ár.
Og hvað er nú hægt að álykta
af athugunum á þessum sjúkling-
um? Fyrst og fremst það, að fjöldi
sjúklinga finnst ennþá of seint og
kemur þess vegna of seint til
meðferðar, iðulega ekki fyrr en
prognosis er orðin pessima.
Það er því augljóst að berkla-
rannsóknir þarf að gera i stórum
stíl, enda er nú hafinn undirbún-
ingur að því, einkum hvað Reykja-
vík snertir.
Ennfremur þurfa læknar al-
mennt að hafa mjög vakandi auga
á lungnaberklum á byrjunarstig-
um og notfæra sér þá diagnostisku
hjálp, sem berklastöðvarnar eða
röntgenskoðun getur veitt ,þar
sem unnt er að koma því við.
Sendibréf til lækna.
Dr. med. Árni Árnason, Akranesi,
hefir sent blaðinu eftirfarandi bréf
til birtingar:
Á síðastliðnu voru fékk ég bréf,
dagsett 17. apríl, undirritað af
Porter McKeever, United States
government Office of War Infor-
mation, Austurstræti 10, Reykja-
vík, og fylgdu nokkur vélrituð
blaðahefti læknisftæðilegs efnis. I
bréfinu var tilboö um, að mér yrðu
send slik bréf framvegis, ef ég
kærði mig um, og skyldi ég láta
upplýsingastofuna vita. Blaðahefti
þessi, “Medical News Letters”.
byrja á þessum formála: “The
war has disrupted the world-wide
■exchange of information 011 pro-
gress in all fields of science. Rese-
arch does continue, however, and
to keep you informed of work
being done in the medical field of
the United States, this communi-
cation has been prepared by the
American Medical Association. A
similar communication will reach
you every two weeks.” Þau eru
hvert 6 til 8 vélritaðar blaðsíður
og eru stuttar og gagnorðar grein-
ar, nánast yfirlitsgreinar, um ýms
atriði, bæði theoretisk og praktisk,
eins og gerist í tímaritum, og verð-
ur ekki farið frekar út í efni þeirra.
í hverju hefti rer ein grein með
fyirirsögninni: “What U.S. doctors
are talking about.”
Ég tók þessu boði með þökkum,
sendi bréfspjald með ofangreindri
utanáskrift og hef síðan fengið
þessar blaðasendingar, en að vísu
ekki alveg reglulega. Hefti þessi