Læknablaðið - 01.08.1943, Qupperneq 17
LÆKNABLAÐIÐ
27
1943. Svo sem kunnugt er fara nú
flestallir sjúklingar meö lungna-
berkla þangaö, þegar frá er taliö
Kristneshæli.
Á þessum 6 mánuðum hafa 101
sjúkl. komiö á hæliö. Af þeim eru
8 sjúklingar sem sendir hafa veriö
Iiurt af hælinu um tíma til sér-
stakra aðgerða á öðrum sjúkra-
húsum, og koma því þessu máli
ekki viö. Þessum 8 er því sleppt.
Hinir 93 skiftast þannig eftir kyni
og aldursflokkum:
Tafla 1.
Aldur <15 ár 15—30 ár 30—45 ár >45 ár Alls:
Konur 2 32 J3 41) 5i
Karlar 0 19 15 82) 42
1) Allar yfir 50 ára.
2) Þar af 6 yfir 50 ára.
Af eðlilegum ástæðum eru fáir,
eða aðeins 2 yngri en 15 ára, þareð
barnadeild hælisins var lögö niður
fyrir nokkrum árum. Hinsvegar er
áberandi, hve mikiö kemur af
gömlu fólki eöa yfir 12%, sem
komið er yfir 43: ára aldur. í töfl-
una um aldursflokkunina eru
teknir allir sjúklingar sem komu
á fyrstu 6 mánuðum ársins 1943,
aö frátöldum þeim 8 sem áöur var
getið um. En héreftir veröa þeir
60 teknir til nánari athugunar,
sem komu á hælið til fyrstu meö-
ferðar, en hinum 33 aö tölu sleppt
alveg. Sumir af þessum 33 sjúkl.
hafa verið á öðrum sjúkrahúsum
áöur eða komið beint þaðan, all-
margir eru recidiv sem áður hafa
fengið sjúkrahúsmeðferð og
nokkrir hafa veriö samfellt veik-
ir, en um tíma utan spítala. Með
því skipulagi sem nú er komið á
berklavarnirnar og eftirlit meö
sjúklingum sem áður hafa verið í
meðferð, verður almennt að gera
ráö fyrir, aö áður þekktir sjúkl.
komi svo fljótt til meðferðar sem
auðið er. Hinsvegar er fróðlegt
að athuga, og ef til vill nauösyn-
legt að gera sér grein fyrir, hvern-
ig þeir sjúklingar eru sem nást í
meðferð í fyrsta sinn.
Þeir 60, sem komu í fyrsta sinn
til meðferðar skiftast þannig:
Tub. pulm. dupl. cavernur í báð-
um lungum ..................... 10
Tub. pulm. dupl. cavernur í
öðiu lunga ................. 17
Allir þeirra, nema 3 eru baciller-
ir við beina smásjárrannsókn.
Tub. pulm. unilateralis cav-.
ernosa ..................... 22
Allir nema 4 bacillerir viö
beina smásjárrannsókn.
Tub. pulm. unilateralis cavern-
osa? ........................ 2
Tub. pulm. dupl. miliaris .... 1
Tub. pulm. unilateralis ........ 2
Annar þeirra með peritonitis
tuberculosa.
Pleuritis exsudativa unilater-:
alis ............................ 3
Einn þeirra með peritonitis tub-
erculosa.
Pleuritis duplex 1. gr............ 1
Tub. hil. sin. perihlitis 1. gr. . . 1
Tub. pulm. vetus.................... 1
Þessi sjúklingur var innlagöur
vegna adenitis colli fistulosa.
Af þessu sést aö 49 af þessum
60 sjúklingum eða um 80% eru
cavernösir þegar þeir eru teknir
til meðferðar. Af hinum 11 eru 2
meö peritonitis tuberculosa, sem
í raun og veru er þeirra aðalsjúk-
r