Læknablaðið - 01.08.1943, Qupperneq 22
32
LÆKNABLAÐIÐ
Heilbrigði þjóða. Við skoðun á
fyrstu 2 milljónum manna á her-
skyldualdri i U. S. var helmingur
þeirra talinn óvigfær, en líklega
hafa kröfurnar verið allstrangar,
enda tekið tillit til fleira en lík-
amlegrar hreysti. Frávísunaror-
sakir voru þessar:
Ólæsir ioo.ooo
Tannsjúkdómar 188.000
Augnsjúkdómar 123.000
Æðakerfissjúkdómar 96.000
Sjúkd. í vöðv. og beinum 61.000
Kynsjúkdómar 57-000
Geðveiki og taugasjúkd. 57.OCO
Kviðslit 56.000
Eyrnasjúkdómar 41.000
Fótasjúkdómar 36.000
Lungnasjúkdómar 26.000
Ýmislegt 159.000
Þannig er þá ástandið hjá auð-
ugustu þjóð heimsins, sem býr í
rúmgóðu ágætu landi. Hvað meg-
um við hugsa og hvernig er þessu
farið hjá oss?) Læknajrnir eiga
auðsjáanlega mikið verk óunnið.
(J.A.M.A. '42.) G. H.
ORÐSENDING
frá gjaldkera Læknafélags íslands.
Nýlokið er að senda lænkum ut-
an Reykjavíkur og nágrennis kröf-
ur í pósti fyrir vangreiddum árs-
tillögum 1942 og '43. Er þess
vænst, að læknar bregðist þegn-
samlega við. Minna vil eg á að
helmingur gjaldsins gengur ó-
skertur til Ekknasjóðs Læknafé-
lagsins og er að mestu úthlutað ár-
lega. Hinn helmingurinn gengur i
sjóð félagsins og til félagsþarfa.
Loks vil ég biðja þá collega, sem
ekki hafá staðið í skilum, að at-
huga 12. gr. félagslaganna, sem
segir : „Nú greiðir gjaldskyldur fé-
lagi ekki gjöld sín til félagsins í 2
ár og telst hann þá ekki lengur
félagsmaður, enda hafi hann verið
aðvaraður."
ó. E.
Frá læknum.
Skarphéðinn Þorkjelsson, áður
héraðslæknir í Hesteyrarhéraði,
hefir verið skipaður héraðslæknir
í Hornafjarðarhéraði frá 1. júlí
1943 að telja.
Sigmundur Jónsson cand. med.
hefir verið settur héraðslæknir i
Reykjarfjarðarhéraði frá 1. júlí
1943 að telja.
Baldur Johnsen héraðslæknir á
ísafirði hefir verið settur til þess
að gegna Hesteyrarhéraði ásamt
sínu héraði frá 1. júlí 1943 að telja.
Haraldur Jónsson héraðslæknir
i Vík í Mýrdal var settur 1. ágúst
1943 til þess að gegna Síðuhéraði,
ásamt sínu héraði.
í júlílok 1943 komu þessir lækn-
ar heim úr siglingú, frá Bandaríkj-
unum:
Björn Sigurðsson frá Veðramóti,
Oddur Ólafsson, Vífilsstöðum og
Kristján Jóhannesson cand. mag.
Björn hefir unnið s.l. tvö ár í
rannsóknarstofum Rockefeller-
stofnunarinnar, lengst af í Prince-
ton.
Oddur dvaldi í 1 ár og 2 mán.
við framhaldsnám í lyflæknisdeild-
um og berklaspítölum.
Kristján hefir verið 1 ár í Banda-
ríkjunum, „kandidatsárið".
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 570.