Læknablaðið - 01.02.1945, Blaðsíða 22
12
LÆ K NA B LAÐ I Ð
komu. W. R.: Vidal, G. K. nega-
tivt, svo og vöxtur pneumococca
frá bló'ði.
Nánari eftirgrennslan leiddi í
ljós að sjúklingurinn hafði rotað
margar rottur t. d. á einum degi
30, við þreskjun, en hafði varazt
að snerta þær eftir Weilsgulutil-
fellin á Sejrö. Hann hafði ekki
tekið eftir sjúkum eða sjálfdauð-
um röttum. Enginn köttur var
á heimilinu en hundur, sem virt-
ist vera frískur. — Sjúklingurinn
var útskrifaður 28. nóv. 1938 og
leið þá vel.
Eins og mönnum er kunnugt
hafa á seinni árum verið einangr-
aðar nokkurar spirochetae ólíkar
hinni vanalegu spiroclieta ictero-
hæmorrhagica. Þessar spirochetae
finnast hjá sjúklingum með in-
fectionir, vanalega afbrigðileg til-
felli af Weilsgulú. Þessi tilíelli
nefna sumir leptospirosis eins og
menn vita. Frá sjúklingnum sem
fyrr var nefndur var- isoleraður
uýr stofn, sem 1937 var athugað-
ur nánar immunologiskt og morfo-
logiskt og sýndi sig að hann var
nýrrar tegundar. Statens Serum-
institut upplýsti að fleiri sýkingar
hefðu fundizt með söniu spiro-
chetum.
Sjúkralýsing þessi rifjar upp
fyrir manni serummeðferð pneu-
moníunnar áður en sulfajýfin komu
til sögunnar. Intravenösa serum-
meðferðin er nú aldrei skemmti-
leg við pneumoni. Mörg tilfelli
með serumsjúkdómi sem var
miklu þyngri sjúkdómur en
])neumonian sjálf. Serumtherapían
við pneumoníu er í dag medicinsk-
historisk, þótt hún sé ung að ár-
um, en ógleymanleg af því að
hún sýndi hverju ófullkomnir at-
liafnamenn geta þyrlað upp, í
hvaða landi sem þeir nú kunna að
finnast. Sem betur fer var hún
eitt af því sem var of skammvinnt
gaman til þess að ná til fslands,
sem var þá fjær heiminum en þaö
er nú.
Stundum dettur manni í’ lmg
le])tos])irosis við tilfelli sem mað-
ur annars kallar inflúenzu: Hiti,
höfuðverkur framan i enninu. bak
við augun, augun stundum aum,
beinverkir. enda verða díagnósur
praktiserandi lækna að l)yggjast á
klinik einni saman oft á tíðum,
þess vegna eru þær svo ófullkomn-
ar og raunar óábyggilegar. En
slíkt breytist fyrst með breyttum
starfsskilyrðum læknastéttarinn-
ar i heild 'Og framtaki hennar
sjálfrar.
María Hallgrímsdóttir.
Aths.:
Ritstjórninni þykir ástæöa til
að taka fram, að hún er ósammála
dómi höf. um serummeðferð á
lungnabólgu og telur að hún hafi
verið mjög merkileg og mikils-
verð, þótt nú megi segja að hand-
hægari lyf séu fundin. Fyrir margt
má víta okkur læknana, ef for-
vígismenn serummeðferðar á
lungabölgu eru ámælisverðir.
Stéttar-
og félagsmál.
Aðalfundur Læknafél. Vestfjarða.
5. Aðalfundur Læknafélags
Vestfjarða var haldinn á Isafirði
dagana 12. og 13. ágúst 1944.
12/8. 1944 setti formaður fund
og bauð félagsmenn velkomna,
skýrði siðan frá störfum félagsins
a síðastliðnu ári. Gat íorntaður
síðan um gjöf félagsins tii Ara
læknis á Brekku, að upphæö
25.00.00 krónur, sem honum voru
sendar er hann varö fyrir því ó-
happi að hús hans brann.