Læknablaðið - 01.02.1945, Page 26
LÆKNABLAÐIÐ
16
leiöingu tíðarfarsins, börnin fengu
litla eöa enga mjólk, svo til enga
garðávexti og engin ber, en úr
þeim hafi þau oft fengiö C-fjör-
efnisforöa sem hafi enzt þeim
fram á vetur. Kvaöst hann hafa
rannsakaö C-fjörefnismagn kræki-
berja og væru þau fullkomlega
hálfdrættingar viö Syrupus C-
vitamini Ido. Taldi hann nauðsyn
bera til þess að fólk væri írætt
um nauðsynC-fjörefnis og hvarþaö
væri að fá. Hann haföi rannsak-
aö sítrónurnar sem hingaö ílytj-
ast nú og boriÖ þær saman viö
kartöflur; var sú rannsókn gerö
i marz. Reyndust þessar sítrónur
,.geldar“ og lélegri en kartöflur á
þessum tíma og eru þær þó ekki
góðar eða meö um 2 m.gr. % as-
corbinsýru.
Var stjórninni falið að koma á
framfæri áskorun til heilbrigðis-
yfirvaldanna um að þau sæi til
þess aö innfluttar cítrónur yrðu
rannsakaöar áöur en sala væri
leyfð á þeim. og hún bönnuö ef
þær hafa ekki ákveöið C-fjör-
efnismagn. Það er ótækt að rán-
dýrri en ónýtri vöru sé haldið að
fólki sem lyfi.
Góður rómur var gerður aö
máli Baldurs, spunnust um þessi
mál miklar umræður.
Aðalfundur Læknafélags Vest-
fjarða tók einnig til umræðu at’-
stöðu Landlæknis til lækna, em-
bættaveitinga og heilbrigðismála
yfirleitt í landinu. En í því máli
voru engar samþykktir gerðar að
sinni, en málið er til áframhaldandi
athugunar.
Þá var samþykkt að næsti fund-
ur yrði haldinn i Bolungarvik.
Fleira ekki tekið fyrir.
Fundi slitið.
F. h. stjornar Læknafél. Vestfj.
Ragnar Ásgeirsson
ritari.
Bréf frá formanni L. í.
Ritstjórn Læknablaðsins heíir
liorizt eftirfarandi bréf frá form.
Læknafél. íslands. Bréfiö skýrir
sig sjálft og verður að sjálfsögðu
tekið til greina.
Reykjavik, 31. okt. 1944.
Stjórn Læknafélags íslands hef-
ir borizt svolátandi bréf frá land-
lækni:
,,Eg leyfi mér hér með að til-
kynna yður, að mér hafa nýlega
borizt handa íslenzkum læknum frá
íýordisk Medicin fyrir milligöngu
sendiráðsins í Stokkhólmi 1.—27.
tbl. tímaritsins þ. á., og í tveimur
eintökum. Annað eintakið hef eg
sent til Akureyrar, en komið hinu
íyrir á lestrarsal Landsbókasafns-
ins. Geta læknar hér i bænum og
nágrenninu átt þess kost aö líta
þar í það. --------
Ef til vfll þætti félagsstjórninni
ástæöa til að hlutast til um að
gerður yröi stuttur útdráttur um
helztu nýjungar, sem á góma bera
i tímaritinu, til birtingar fyrir ís-
lenzkum læknum i Læknablaðinu."
Þetta vil eg hér með biðja stjórn
Lbl. að geta um í blaðinu og jafn-
framt vil eg íela henni fram-
kvæmdir síðustu málsgreinarinnar
til beztu fyrirgreiðslu eftir því sem
herini þykir henta.
F. h. stjórnar L. í.
Magnús Pétursson,
p.t. formaður.
Afgreiðsla og innheimta Læknablaðsins er í Félagsprentsmiðjunni h.f.,
Reykjavík. Sími 1640. Pósthólf 570.
Félagsprentsmiðjan h.f.