Læknablaðið - 01.05.1945, Síða 13
LÆKNABLAÐIÐ
23
og /.*) liðurinn eru hiS mesta
kappsmál allra héraðslækna og verði
þær ekki teknar til greina, má hú-
ast við, að fremur íjölgi en fækki
hinum læknislausu héruðum í ná-
inni framtíð.
Þar sem þér þykist fara nærri
um að Alþingi það, er nú situr,
muni gera einhverjar þvingunarráð-
stafanir gagnvart læknastéttinni
öðrum stéttum fremur, þá er alveg
óhætt að svara því fyrir stéttar-
innar hönd, að hún mun ekki gang-
ast upp við hótanir eða kúgunartil-
raunir. Slíkt mun jafnskjótt koma
þeim í koll, sem tilraunirnar gera.
enda væntum vér þess, að þér séuð
á verði og gætið þess, að henni sé
í engu misböðið. hvorki siðferðis-
lega né fjárhagslega.
Svo aftur sé vikið að meðfylgj-
andi tillögum, þá teljum vér þeim
svo í hóf stillt, að aðeins vanþekk-
ing á starfi og kjörum stéttarinnar.
eða bein óvild í hennar garð, geti
valdið þvi að þær verði ekki teknar
til greina, enda er oss það kunnugt,
að sumum héraðslæknum ]>ykir hér
of skammt gengið. Það virðist og
sjálfsagt og ætti að vera öllum aug-
Ijóst að læknar og þá ekki sizt hér-
aðslæknar eigi að Vera lang hæst-
launaða eða tekjumesta stétt lands-
ins, þó ekki væri nema af því einu,
að náms- og stofnkostnaður allur
bæði um tíma og fé, er langmestur
hjá læknunum og starf þeirra.
einkum héraðslæknanna vanda-
mesta og slitmesta starf allra stétta.
Þetta vitum vér að yður er, allra
manna læzt. ljóst og væntum þess
vegna, að þér gerið yðar ýtrasta
til að sannfærá valdhafana og lög-
gjafana um þetta.
*) þ. e. læknisbústaðir. mánað-
ar sumarfri. hækkun gjaldskrár hér-
aðslækna og slysatrvgging ríkisins
á héraðslæknum.
Að endingu þetta:
Stjórn Læknafélags íslands ósk-
ar einskis fremur en að geta tekið
höndum saman við yður, herra
landlæknir, í baráttunni fyrir hags-
bótum stéttarinnar og því að lands-
lýð verði séð fyrir nægum lækna-
kosti. enda væntum vér fullrar vel-
vildar og skilnings i garð stéttar-
innar.“
A síðasta aðalfundi 1942 var
samþykkt svolátandi tillaga:
..Stjórn L. í. leiti samkomulags við
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja um að þeir læknar, sem taka
föst laun úr ríkissjóði, bæjarsjóð-
um eða frá öðrum opinberum stofn-
unum, skoðizt sem sérstök deild inn-
an þessa bandalags og hafi þar
sömu réttindi og aðrar deildir ]>ess
félagsskapar. enda greiði L. í til-
skilið gjald fyrir ])á lækna til B. S.
R. B. og sjái um að sendir séu hæfi-
lega margir fulltrúar úr ])eirra hópi
á sambands])ing bandalagsins."
í nóvember satna ár sendi svo
stjórn L. I. afrit af samþykkt þess-
ari ásamt beiðni um up])töku í
bandalagið.
Láðst hafði á aðalfundi 1942 að
kjósa fulltrúa á sambandsþing B.
S. R. B. 1942 eða annað sambands-
þing þess. Stjórn L. í. tók þá það
ráð. að fela ritara félagsins, Páli
Sigurðssyni að mæta á þinginu, en
það hófst í Reykjavik 4. nóv. 1942.
Xú hafði aðalfundur L. 1. 1943
fallið niður, svo sem kunnugt er og
áður um getið, og ])ess vegna hafði
ekki verið hægt að kjósa fulltrúa á
sambands])ing B. S. R. B. 1943.
sem haldið var í Reykjavík um miðj-
an sept. sama ár. Yar þá gripið til
þess sama ráðs og næsta ár á undan
og mættu á þessu þingi formaður
félagsins og ritari, enda félaginu
ætlað að senda tvo fulltrúa á þingið.
Stjórn L. í. finnst það vel við-
eigandi á þessu stigi málsins, að