Læknablaðið - 01.05.1945, Blaðsíða 22
32
LÆKNA B LAÐ I Ð
r
Ur erlendum læknaritum.
Árangur af röntgengeislun
við krabbamein í brjósxi.
R. McWhirter röntgeftsérfræö-
ingur við Royal Infirmary í Ed-
inljorg birtir skýrslu uni árangur
af róttækri skurð-aðgerð og rönt-
gengeisluri við krabbameini i
brjósti. Skýrlsa hans fjallar um
1879 sjúklinga, sem hann skiptir
í fjóra hópa, eftir því hve sjúk-
dómurinn er langt genginn.
1. stig. Meinið takmarkað við
brjóstið. Hér með einnig talinn
I'agets geirvörtusjúkdómur, ef
stækkaðir eitlar eru ekki finnan-
legir.
2. stig. Eins og fyrsta stig, nema
hvað hér finnast stækkaðir, hreyf-
anlegir eitlar i holhöndinni.
3. stig. Meinið tekur út fyrir
corpus tnammae.
4. stig. Meinið fast vaxið við
brjóstvegginn, útsæði í eitlum fyr-
ir ofan viðbein, í hinu brjóstinu
eða fjær liggjandi líffærum.
Af þessum 1879 sjúklingum
voru 30% á 1. stigi, 17'/< á 2.
stigi, 20'/< á 3. stigi og 21 /V á 4.
stigi. 12'/ sjúklinganna voru ekki
flokkaðir.
Samanburður var gerður á
tvcnnskonar meðferð, (a) róttæk
skurðaðgerð aðeins, og (b) skurð-
aðgerð (annaðhvort róttæk eða
stofu héraðslæknisins i Reykjavík
og géta lysthafendur snúið sér
jtangað.
Reykjavík, i apríl 1945
Stjórn Lcckvcifclags íslands.
staðbundin og síðan fullkomin
röntgengeislun. Til grundvallar
samanburðinum var lagt hvort
sjúkl. væru einkennalausir næstu
þrjú ár eftir aðgerð. Það kom 1
ljós. að miklu fíeiri voru ein-
kennalausir næstu þrjú ár eftir að-
gerð. af þeim sem voru röntgen-
geislaðir heldur en hinum, eða
22r/ fleiri í 1. flokki, 32% í 2.
flokki og 23/í í 3. flokki. Af
sjúkl. í 4. flokki voru flest allir
dánir eftir 5 ár, hvaða meðferð
sem notuð var, svo að þeir voru
ekki teknir með í samanburðin-
um.
Til þess að fá vitneskju um liver
áhrif röntgengeislun hefði á hol-
handareitla var sjúkl. skipt i tvo
flokka. í fyrri flokkinn var skip-
að þeinr, sem ekkert útsæði sýndu
við vefjarannsókn á eitlunum, í
hinn flokkinn þeim sem útsæði
.fannst í. Ef eingöngu var fram-
kvænul skurðaðgerð voru 37'/<
einkennalausir næstu þrjú árin, af
þeim sem ekkert úsæði fannst i við
vefjarannsókn, en 24'/ at' hinum.
Ef röntgengeislun var viðhöfð
eftir skurðaðgerð v.oru samsvar-
andi tölur 91 r/< og 50'/< .
Hver skykli árangurinn vera af
röntgengeislun við krabbameini í
brjósti hér á landi ?
(Útdráttur í Brit. Med. Bul-
letin 1, 1943, no. 8, tekið úr Edin-
burgh Medical Journal. 50. 193—
207. April 43).
Ól. Bj.
Afgreiðsla og innheinita Læknablaðsins cr i Félagsprentsnúðjunni h.f..
Reykjavik. Siini 1640. Pósthólf 570.
Félagsprentsmiðjan h.f.