Læknablaðið - 01.05.1945, Side 16
2Ö
LÆKNAB LAÐ IÐ
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni a'Ó skipa jjriggja nianna
nefncl til að athuga hverjar breyt-
ingar kunna að vera nauðsynlegar
á skipun læknishéraða og þátttöku
rikisjóðs í kostnaði við byggingpi
og rekstur læknisliústaða og sjúkra-
skýla, svo og hverjar aðrar ráðstaf-
anir væri nauðsynlegt að gera til
])ess að tryggja sveitahéruðum sém
bezta læknisþjónustu.
Einn nefndarmanna skal ski])að-
ur samkvæmt tilnefningu heilbrigð-
is- og félagsmálanefndar Aljnngis,
annar samkvæmt tilnefningu Lækna
félags íslands og hinn ])riðji án til-
nefningar, og er hann formaður
nefdarinnar.
Kostnaður við störf nefndarinn-
ar greiðist úr ríkissjóði."
Ráðuneytið óskaði siðan nutnn-
Iega eftir því að stjórn L. í. til-
nefndi einn mann í þessa nefnd.
Leituðum við um ])etta álits for-
manna allra sérfélaganna og voru
allir á einu máli um, að tilnefna
núverandi formann L. í.
Þetta var ráðuneytinu tilkynnt
með bréfi ]). 3. apríl síðastl. í nefnd-
inni eru auk mín, landlæknir. sem
er formaður nefndarinnar, og Gunn-
ar Thoroddsen al])in. Af hennar
störfum er það eitt að segja, að
fyrsti fundur hennar var haldinn
síðastl. þriðjudag.
A síðasta aðalfundi var gert ráð
fyrir þvi, að stjórnin gengist fyrir
þvi, að læknar í hinum ýmsu lands-
hlutum mynduðu með sér sérfélög.
og ])egar ])au væru komin á, að
lögum 1-. í. yrði ])á breytt í þá
átt. að aðalfundur þess, eða árs-
])ing, yrði nokkurs konar fulltrúa-
jbng.
Síðan hafa tvö ný sérfélög verið
stofnuð. Læknafélag Norðvestur-
lands, sem nær yfir svæðið frá
Ströndum til Siglufjarðar, að báð-
um endum meðtöldum, og Lækna-
félag Norðausturlands, sem nær yf-
ir svæðið frá Ólafsfirði til Þórs-
hafnar, ]>ó að Akureyri undanskil-
inni. nema hvað héraðslæknirinn
])ar er meðlimur í hinu nýja félagi.
Ennþá er et'tir að koma á félags-
skap lækna á Austur- og Suðurlandi
og meðan svo standa sakir, taldi
stjórnin ekki rétt, að ráðast i laga-
breytingu um þetta efni. En ])að
verður að sjálfsögðu verkefni hinn-
ar nýju stjórnar, að halda þessum
tilraunum áfram og reyna að koma
á sérfélögum um allt land og gera
síðan tillögur um lagabreytingar
samkvæmt ])ví og jafnskjótt og það
er tímabært.
Svo sem kunnugt er sjálfsagt
flestum, ])ó ef til vill sé farið að
fyrnast yfir ])að hjá sumum. ])á
er upphaf 9. gr. félagslaganna
])annig: „Enginn félagsmaður má
gera sanming uVn neitt, sem lýtur
að hagsmunamálum hans sem lækn-
is, eða stéttarinnar í heild, nema
hann fái til þess samþykki stjórn-
ar félagsins.
Ákvæði ])etta tekur einnig til ann-
arra læknafélaga (lokal), ])ó aðeins
að því leyti, er samningar þeirra
snerta stéttina heild" o. s. frv.
Þó að stjórn félagsins haíi und-
anfarin ár ýmist aðstoðað við fjölda
læknasamninga eða staðfest þá ein-
göngu. þá hefir hún ekkert gert
sér sérstaklega lmgleikið að fram-
fylgja þessu ákvæði stranglega.
heldur lofað einstaklingum og fé-
lögum að vera sem frjálsustum í
þéssum efnum. En nú stendur
])annig á, að víðsvegar um land allt
er verið að, eða stendur til að stofna
sjúkrasamlög. og kemur þvi til að
flestir eða allir héraðslæknar þurfi
að semja við ])au, enda munu sum-
ir þegar hafa gert það. Þess vegna
taldi stjórnin rétt, að aðvara hér-
aðslækna um, að semja að svo
stöddu ekki fyrr en málið væri rætt