Kraftur - 01.05.2010, Side 4
4 KRAFTUR
Málþing
Kraftur varð 10 ára þann 1. október og var
haldið upp á tímamótin með pompi og
prakt. Efnt var til málþings með fyrirlestrum
í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar og var
troðfullur salur af fólki mættu til að hlusta á
skemmtilega og mjög áhugaverða fyrirlestra.
Fundarstjóri var Sólveig Arnarsdóttir, systir
Guðrúnar Helgu heitinnar sem var einn
stofnenda Krafts og hélt faðir þeirra, Arnar
Jónsson, ákaflega fallega hugleiðingu
aðstandanda sem hefur þurft að horfa á
eftir ástvini af völdum sjúkdómsins sem við
þekkjum alltof vel.
Þá hélt Páll Matthíasson, geðlæknir,
skemmtilega tölu um hamingjuna og
jákvæða nálgun á tilveruna, sem getur nýst
öllum í daglegu lífi. Einnig kynntu Finnbogi
R. Þormóðsson og Vala Ingimarsdóttir
fyrirtækið ValaMed sem sérhæfir sig í
lyfjanæmisprófum á krabbameinsfrumum
til að auka líkur á góðum árangri
lyfjameðferða. Lukka Pálsdóttir, Kraftsfélagi,
hélt fyrirlestur sinn um mataræði og
krabbamein og Ragnheiður Alfreðsdóttir,
forstöðumaður Ráðgjafarþjónustunnar,
kynnti margvíslega starfsemi hennar og
mikilvægi upplýsingaflæðis og ráðgjafar
til fólks sem er í eða hefur nýlega lokið
krabbameinsmeðferð.