Kraftur - 01.05.2010, Qupperneq 15
15KRAFTUR
upp.“ Lyfjameðferðin hófst sama dag og
skólinn hófst að nýju „Ég fór þrisvar sinnum
í vikulangar lyfjagjafir og fékk tveggja vikna
frí á milli. Ég reyndi að láta þetta ekki hægja
mikið á mér en vikurnar sem lyfjagjafirnar
fór fram sneri ég sólarhringnum við, svaf
lítið á nóttunni svo ég gæti sofið meðan ég
var á spítalanum því þetta er náttúrulega
hundleiðinlegt.“
Vífill segist hafa haldið sér ótrúlega vel við
meðan á lyfjameðferðinni stóð, hann hafði
mikla matarlyst allan tímann og missti ekki
mikið af líkamsþyngd. En hann missti þó
hárið og var alltaf þreyttur og finnur fyrir
því enn í dag að þrekið er minna. „Ég mæli
eindregið með að fólk komi sér í einhvers
konar hreyfingu eftir lyfjameðferð, til að
byggja sig upp. Vinur minn aðstoðar mig við
þjálfun í ræktinni og það munar mikið um
það. Fólk ætti hiklaust að fara í endurhæfingu
eftir krabbameinsmeðferð, ef hún býðst, en
annars stunda einhverjar æfingar.“
eRFiTT FyRiR mömmUR
Frændi Vífils, Rósar, fékk sömu tegund
krabbameins fyrir örfáum árum og var
þá á svipuðum aldri og Vífill. Þeir eru
systrasynir og þótt Vífill hafi aldrei fundið
fyrir því að fjölskyldan væri hrædd segir
hann að svona reynsla hljóti að vera erfið
fyrir aðstandendur. „Ég hugsa að þetta hafi
í raun verið erfiðara fyrir mömmu en mig,
ég leit bara á þetta sem eitthvað sem ég
myndi sigrast á og varð aldrei mjög hræddur.
Mamma og systir hennar hafa hins vegar
báðar þurft að heyra að synir þeirra séu með
krabbamein og það hlýtur að vera erfitt, sem
foreldri skil ég það.“
Vífill er kominn á fullt aftur í skólanum, ásamt
því að sinna föðurhlutverkinu, og segist hafa
látið krabbameinið tefja sig sem allra minnst.
Hann var jú ekki alveg ókunnur krabbameini
eftir að hafa fylgst með veikindaferli frænda
síns. „Auðvitað var maður þá meðvitaðri um
þetta enda vissi ég að krabbamein í eistum
getur legið í ættum. Og af því að ég er búinn
að fá þetta eru vinir mínir fróðari um svona
og fylgjast vonandi betur með sjálfum sér
fyrir vikið. Ég fann mitt krabbamein mjög
snemma svo þetta hafði ekki mjög mikil áhrif
á mitt líf en ég er líka bara þannig gerður, ég
sé lausnir, ekki vandamál.“