Kraftur - 01.05.2010, Síða 17
17KRAFTUR
Kraftur hefur boðið upp á matreiðslunámskeið
sem byggir á uppskriftum úr bókinni Bragð
í baráttunni - matur sem vinnur gegn
krabbameini. Krabbameinsfélagið Framför
hafði frumkvæði að útgáfu bókarinnar sem
er aðgengileg, litrík og listilega hönnuð.
Bragð í baráttunni hefur að geyma ýtarlega
umfjöllun um ýmis hráefni í matargerð
sem talið er að geti unnið gegn myndun
krabbameina. Námskeiðin eru liður í
forvarnarstarfi Krafts og hafa verið mjög
vel sótt en þar er veitt fræðsla og eldað
upp úr bókinni en umsjón hefur Unnur
Guðrún Pálsdóttir (Lukka). Á dögunum
hélt Kraftur norður og í samvinnu við
Krabbameinsfélag Akureyrar var haldið vel
sótt matreiðslunámskeið. Sjónvarpsstöðin
N4 birti langt og fróðlegt viðtal við
Þorbjörgu Ingvadóttur, framkvæmdastjóra
Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis,
undir yfirskriftinni Matur og krabbamein.
Viðtalið má nálgast á vefsíðunni www.n4.is.
Á næstu vikum mun Kraftur halda
matreiðslunámskeið og fundi á Akranesi
og Reyðarfirði í samvinnu við aðildarfélög
Krabbameinsfélags Íslands, fylgist vel með
tilkynningum um þau á vefsíðu Krafts, www.
kraftur.org.
Í framhaldi af útgáfu bókarinnar Dagbók
rokkstjörnu hefur fjölskylda Atla Thoroddsen
ákveðið að setja á laggirnar verkefnasjóð á
vegum Krafts, í minningu Atla.
Á sjóðurinn að vera góðgerðasjóður með
það að meginstefnu að hvetja ungt fólk með
krabbamein til athafna og frumkvæðis við
skapandi verkefni sem þeim eru hugleikin.
Sérstaklega verður horft til þess að þegar
einstaklingi er kippt út úr sínu daglega
lífi, og verður skyndilega einstaklingur í
krabbameinsmeðferð, kviknar oft áhugi
og neisti til að láta gott af sér leiða. Þá
verður það tilgangur sjóðsins að aðstoða
viðkomandi við að koma hugmyndum sínum
í farveg.
Þannig stuðli sjóðurinn að uppbyggingu
einstaklingsins á óbeinan máta þar sem
viðkomandi fær tækifæri til að leggja sitt af
mörkum til samfélagsins.
Thoroddsen verkefnasjóðurinn verður
formlega stofnaður 29. maí 2010, á
afmælisdegi Atla sem fæddur var árið 1970.
bragð Í baráttunni
tHoroDDSen verKefnaSjóður KraftS
C80 M0 Y63 K75
C0 M30 Y100 K0
R34 G70 B53
R234 G185 B12
#224635
#eab90c
PANTONE 560C
PANTONE 130C
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
SÍMI: 515 1700 | WWW.XD.IS
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Lingás 11 - 220 Garðabæ - Sími: 571 0712
LÉTTFETI EHF – SENDIBÍLL
ENGIHJALLA 1
200 KÓPAVOGUR
SÍMI : 897 4993
LINDI EHF
KETILSBRAUT 13
640 HÚSAVÍK