Læknablaðið - 01.05.1946, Blaðsíða 13
L Æ K N A B L A Ð I Ð
69
um „lækningu“ enda er það
mjög relativt hugtak. T. d. getur
staðbundið afturkast komið
fram 12—15 árurn eftir með-
ferð. — Hér á Röntgendeild
Landspítalans kom sjúklingur
í meðferð (’38), með staðbund-
ið afturkast eftir 14 ár. —- Á-
lvktanir höf. eru, að röntgen-
meðferð sé stórmikils virði
jafnframt skurðlækningu, ef
meinið er skurðtækt, og mikil
hjálp, þar sem skurði verður
ekki komið við.
Tvö linurit er fróðlegt að at-
lniga úr ritgerð þessara sömu
höfunda.
Línurit I sýnir, að næstu árin
eftir ’27, fjölgar mjög geislun-
um vegna afturkasta (CI-II-III-
IV-V), en þeim fækkar aftur
eftir ’31. 1927 kom afturkippur
í röntgenmeðferðina, vegna
Jjess að gagnsemi hennar var
mjög dregin í efa í læknaritum
um J)að leyti, eða álitin einskis
virði, ef meinið var skurðtækt.
Sjúklingum í J)essum flokki
(C) fækkar, J)egar geislameð-
ferð er aftur beitt jafnframt
skurðlækningu (ABI—II hækk-
ar að sama skapi).
Línurit II sýnir, að 5 ára lif-
andi eru flestir i B-flokki.
Sjúklingar eru þar um og yfir
sextugt, og æxlið þvi tiltölul.
góðkynjað. En næstu árin fer
þeim mjög fækkandi. — A. og
C.-flokkur eru svipaðir, enda
er meðalaldur líkur. I C-flokki