Læknablaðið - 01.05.1946, Blaðsíða 18
74
LÆKNABLAÐIÐ
fullkomins aga, sem íslending-
um er ekki ríkt í blóð borinn,
þá liygg ég, að kveða megi upp
úr um það, að yfirleitt liafi vel
tekizt.
Hin margvíslegu læknisstörf
við liælið báru öll vitni því, að
stjórn þess hafði á hendi vel
menntaðui' og víðlesinn lækn-
ir, sem lét eigi nýjungar í grein
sinni fram hjá fara. Þannig
var loftbrjóstsmeðferðin, sem
happadrýgst hefir reynzt allra
aðgerða við lungnaberkla, tek-
in í notkun á Vífilsstaðahæli
mjög snemma, og jafnvel fyrr,
en í sumum nágrannalöndum
okkar.
Sem stofnun mun Vífils-
slaðahæli lengi bera merki Sig-
urðar Magnússonar, ekki ein-
göngu að ])ví er tekur til lækn-
isslarfa, beldur og reksturs
hælisins að öðru leyti. Meðal
annars mun hann hafa átt rík-
ari þátt en almennt hefir ver-
ið viðurkennt í Innum myndar-
leeu búnaðarframkvæmdum á
Vífilsstöðum, sem á sínu sviði
m un mega telja mcrkilegt
brautryðjendastarf i íslenzk-
um landbúnaði.
En Sigurður Magnússon lét
sér eigi nægja að inna af hendi
dagleg störf heilsuhælisins. —
Hann varð að vinna að berkla-
vörnum á víðari vettvanei. —
Þannig sat hann i milliþinaa-
nefnd um berklavarnir 1919 og
eru berklavarnalöein frá 1921
árangurinn af starfi þessarar
nefndar. Munu lög þessi ávallt
t.alin þjóðinni til stórsóma.og
lie'fði betur farið, að þeim
liefði þá þegar verið fylgt til
hins ýtrasta. Og er Hjúkrunar-
félagið Líkn ákvað að setja upp
hjálparstöð fyrir berklaveika,
varð Sigurður fyrsti læknir
þeirrar stofnunar. Gegndi hann
því sem aukastarfi um margra
ára skeið -— án nokkurs end-
urgjalds.
Hann var óvenjulega víðles-
inn maður, bæði í læknisfræði
og öðrum bókmennlum. Hann
lét ritstörf lalsvert lil sin taka.
Ritaði liann fjölda marg'ar
greinar, eirikum um berkla-
veiki, i ýms erlend læknarit og
er óliætt að fullyrða, að Sig-
urður Magnússon niuni hafa
verið einn hinn þekktasti ísl.
læknir erlendis. Frá árinu 1927
var liann stöðugt einn af með-
ritstjórum aðalberklarits Norð-
urlanda (Acta tuberculoséa
Scandinavica). Um ritstörf
hans má sjá nánar í „Læknar
á íslandi“ bls. 258—259.
Ég tel, að Sigurður Magnús-
son liafi verið óvenjulega far-
sæll maður. Sem ungur læknir
beitti hann sér að ákveðnu
marki og sá, áður en lauk, mik-
inn og fagran árangur af starfi
sinu. Og ég liygg, að hann liafi
einnig verið liamingjusamur
maður. Hann var kvæntur Sig-
ríði Jónsdóttur prófasts Árna-
sonar frá Bíldudal. Varð þeim
fjögurra barna auðið, sem öll