Læknablaðið - 01.05.1946, Blaðsíða 23
LÆKNABLAÐIÐ
79
vart neinna einkenna né breyt-
inga (t. d. í blóði) er bent gætu
á A-vitaminskort.
Hinir 1(3 af sjálfboðaliðun-
um fengu nú hvorki A-vitamin
né karotin. Karotin hvarf því
fljótlega að mestu úr blóði
þeirra, en eftir heilt ár var
engin þurð á A-vitamini í blóði
neins þeirra, né heldur hafði
náttblinda aukist. Af þessum
1(3 manna flokki liéldu nú 11
áfram lengur en 13 mánuði
(frá uppliafi) og aðeins lijá 3
fundust greinileg merki um A-
vítamínþurð (þ. e. A-vit. í blóði
lækkað úr ca. 90A.E./100 cc. —
ca. 30A.E./100 cc. og náttblinda
aukin), hjá hinum fyrsta eftir
14 mán., liinum næsta eftir 17
mán. og hinum þriðja eftir 22
mánuði. Hjá hinum flestum
var aðeins um lítilsháttar og
hægfara lækkun A-vít. i blóði
að ræða, bjá einum var þó eng-
in lækkun þess eftir 22 mán.
Yfirleitt varð ekki vart neinna
„kliniskra“ einkenna, er benlu
á A-vítamínskort, engar breyt-
ingar í augnaslímhúð, engin
þreytueinkenni eða sljóleika,
ekki megrun og blóðmynd var
eðlileg.
A-vi tamí nbirgði rn ar, sem
þclta fólk bafði, er tilraunirn-
ar hófust, sumarið 1942, virð-
ast því hafa nægt til daglegra
þarfa i 1—2 ár. Um þetta leyti
höfðu farið fram rannsóknir
á A-vítaminbirgðum i lifur
manna ,er látizt höfðu af slys-
förum, og voru meðalbirgðirn-
ar nálægt 600.000 A.E. Mundi
það endast í 15 mánuði, ef
evðslan væri 1300 A.E. á dag.
Eftir að A-vítamínþurrð var
orðin greinileg í blóði liinna
þriggja, sem getið var, var far-
ið að gefa þeim ákveðna
skammta af A-vitamíni eða
karotini. Sá fyrsti fékk 1300 E.
af A-vitamíni daglega, og eft-
ir 5 mánuði hafði A-vit. í blóði
færzt í samt horf, sem og nátt-
blindan. Sá næsli fékk fyrst
1300 E. sem karotin daglega, án
árangurs. Var þá skammtur-
inn aukinn í 2600 E. og fékksl
þá fullur árangur innan 5 mán-
aða. Þeim þriðja nægðu 2600
E. karotíns til skjóts árangurs,
enda var um minnsta þurrð að
ræða hjá lionum.
Astæðan til þess, að miklu
meira þarf af karotíni en A-
vítamini, til þess að ná sama
árangri, er sú, að hagnýting
])ess í þörmunum er mjög ó-
fullkomin, verulegur hluti þess
gengur niður ónotað í saurnum
(tilraunir voru og gerðar til
að sýna það). Ef tekið er til-
lit til þess, var talið, að verk-
un karotíns pr. ein. væri lík
og A-vítamínsins.
Þar eð 1300 A.E. af A-víta-
míni eða 2600 A.E. af karotíni
reyndust nægja til þess að bæta
úr vægum A-vítamínskorti —
sbr. og það, sem áður var get-
ið um endingu A-vítamínbirgð-
anna — telur nefndin, sem