Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.05.1946, Page 16

Læknablaðið - 01.05.1946, Page 16
72 LÆKNABLAÐIÐ eiga auk þcss í meiri og minni erfiðleikum, vegna húsnæðis- vandræða í bænum. — Fullkom- in lausn á þessum vandkvæðum, sem raunar snertir fleiri sjúk- linga en þá, sem hér um ræðir, fæst ekki fyrr en röntgendeild- in ræður sjálf yfir sjúkrarúm- um, sem hún þarfnast. Þangað til það getur orðið, þarf að sjá svo um, að sjúklingarnir eigi kost á sjúkrahússvistsíðarihluta geislunartímans, áður en skurð- aðgerð er framkvæmd. Eftir að geislun er lokið, er oft ráðlegt að híða 3ja vikna tima, meðan húðbreytingar eru að jafna sig, og æxlið að hjaðna. Ef sjúk- lingar eru annars hressir, getur verið ónauðsynlegt að þeir séu í sjúkrahúsi allan timann. — Sennilega gæti stundum verið hagkvæmt að skipta geisla- skammtinum, ef þannig mætti stytta hiðtímann fvrir skurð- aðgerð. Geislun eftir skurð má byrja eftir nokkrar vikur, eða þegar sár eru að mestu gróin. — Með- ferðinni verður mjög að haga eftir ástandi hvers sjúklings, eins og áður var minnst á. T. d. getur stundum verið heppilegt að sameina staðhundna skurð- aðgerð á aðalæxlinu og rönt- gengeishm. Ef vafi leikur á um það, hvort æxli sé illkynjað, sýnist rétt að lalca það fyrst, og geisla síðan, ef það reynist illkynjað við smá- sjárrannsókn. — Sumir vilja alltaf fá slika rannsókn („aspiration biopsy“) eða próf- excisio, fyrir operation, til staðfestingar á sjúkdómsgrein- ingu og athugunar á tegund æxl- isins, en þau eru mismunandi viðkvæm fyrir röntgengeislum. Ráðlegt er að gera röntgen- sterilisation á konum, sem eru farnar að nálgast klimakterium. Talið er að það dragi úr vexti æxlisins. Auk þess getur geislun eggjastokka liaft bætandi áhrif, ekki sízt þar sem komið er meinvarp í bein. Að lokum er eitt atriði enn, en það er eftirlit og eftirgrennsl- an um þá sjúklinga, sem liafa verið í lækningu. Nauðsynlegt er að þeir komi til athugunar með vissu millibili, og séu skoð- aðir af skurðlækni og geisla- lækni. Með því móti má hefjast lianda fyrr en ella, ef afturlcast gerir vart við sig. Auk þess er það uppörfun fyrir læknana og eykur kunnáttu þeirra, að fylgj- ast með því, livern árangur lækningarnar bera. Slikt eftirlit þarf að vera í föstum skorðum, og sjúklingarnir að koma, fyrst á nokkurra mánaða, síðar % árs og árs fresti, eftir því sem nauðsyn þætti bera til. Sjúk- lingar utan af landi geta stund- um ekki átt heimangengt á til- settum tíma, og mætti bæta úr því með skriflegri greinargerð um sjúkdóminn frá viðkomandi lækni.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.