Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.05.1946, Qupperneq 17

Læknablaðið - 01.05.1946, Qupperneq 17
LÆKNABLAÐIÐ 73 Próf. Sigurður Magnússon IN MEMORIAM. Hann andaðist í Landakots- spitala þ. 20. júlí 1945, eftir stutta legu. Með honum er fall- inn í valinn einn liinn þekkt- asti læknir þessa lands og fyrsti merkisberi í baráttunni gegn berklaveikinni hér á landi. Próf. Sigurður var fæddur 24. nóv. 1869. Hann lauk lækna- prófi við Hafnarháskóla 1901. Veturinn 1901—2 var hann sett- ur kennari við læknaskólann hér. Árin 1902—7 dvaldi Sig- urður við framhaldsnám í Dan- mörku, bæði á almennum sjúkrahúsum og heilsuliælum. Starfaði sem. læknir í Reykja- vík 1907—9, en fór þá utan til að búa sig undir að veita Víf- ilsstaðahæli forstöðu. Tók hæl- ið til starfa árið eftir, 5. sept. 1910, og gegndi Sigurður fvrst læknisstörfum þar og síðan yf- irlæknisstörfum, fram til árs- ins 1939, eða um tæpra 30 ára skeið. Sigurður Magnússon varð sjálfkjörinn fyrsti læknir þess- arar stofnunar. Ber það ljóst vitni því trausti, er borið var til lians og menntunar hans. Hér skal eigi gerð tilraun til að rekja nákvæmlega stjórn hans og læknisstarf við þessa stófnun í tæpa þrjá áratugi. Alþjóð er þetta löng'u kunnugt. En Iiins skal getið, sem og al- kunnugt er víða um lönd, að fáar munu þær lieilbrigðis- stofnanir, er krefjast öruggari stjórnar en stór berklaheilsu- Iiæli, er hýsa bæði konur og karla. — Ilinn langvinni sjúk- dómur getur stundum haft sljófgandi áhrif á skapgerð manna og orðið þess valdandi, að þeir gefi tilfinningunum lausan tauminn. Slikri hættu er aðeins bægt í burt með stjórnsemi og góðu samstarfi hjúkrunarfólks og sjúklinga. Og þegar þess er gætt, að hér er um að ræða eina hina fyrstu stofnun hérlendis, er krafðist

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.