Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1946, Page 19

Læknablaðið - 01.06.1946, Page 19
LÆKNABLAÐIÐ 93 kvæmni, live sjúklingarnir veiktust löngu áður en þeir komu á spítalann. Kom þá i ljós, að 3 komu innan liálfs sólarhrings, 37 eftir liálfan sólarhring, 55 eftir 1 sólar- hring, 31 eflir l1/^ sólarliring, 34 eftir 2 sólarhringa, 12 eftir 2% sólarliring, 24 eftir 3 sólar- liringa, 7 eftir 4 sólarhringa og 11 eftir enn lengri tíma, þ. e. a. s. aðeins 44% sjúklinganna koma innan ca. 30 klukku- stunda frá því þeir veikjast, en 56% eftir þann tíma. Ef maður svo til samanburðar at- hugar, hvenær sjúklingar með sprunginn hotnlanga koma, verður talan önnur. Tæplega 25% þeirra koma innan 30 klukkustunda, en rösklega 75% eftir þann tíma. Það er því greinilegt, að sjúklingarnir koma of seint til aðgerðar, hverju sem um er að kenna. Eikki er þvi til að dreifa, að sjúklingarnir liafi verið litið veikir, því að flestir þeirra, sem koma eftir tveggja sólarhringa legu eða meira, eru fárveikir, með sprunginn hotnlanga og peritónitis. En hvað er þá það, sem veld- ur því, að sjúklingar koma svo seint til aðgerðar? Mun tvennt ráða þar mestu um: léleg diag- nostik og erfiðleikar á að fá sjúkrarúm. Acut appendicitis er alvar- legur sjúkdómur og vanlíðan sjúklingsins svo mikil, að fæst- ir láta hjá líða að sækja lækni liið bráðasta. Auk þess er hotn- langabólga svo ofarlega i huga alþýðu manna, og það að skjót aðgerð sé hezta meðferðin, að ekki má mikið kveða að verkj- uni i kviðarholi, án þess að læknis sé viljað til þess, að úr því verði skorið, livort um botnlangabólgu sé að ræða eða eitthvað annað. Er oft erfitt að segja af eða á, en einmitt í vafa- tilfellunum kemur til greina, hve átakanlega skortir á sjúkrarúm hér i bæ. Eg veit ekki dæmi þess, að lækni liafi verið hreinlega neit- að um rúm fyrir sjúkling með acut appendicitis, enda þótt ofl sé spyrnt á móti og vísað frá Heródesi til Pílatusar. En allir læknar vita, livernig þetta get- ur gengið til, þekkja það stíma- brak, sem þeir oft á tíðum þurfa að standa í, til þess að koma inn fárveikum sjúklingi. Leiðir þetta til þess, að þeir biðja sjaldan um pláss, fyrr en diagnósan er vafalaus ogástand sjúklingsins nægilega alvarlegt til þess, að hann sé spítalatæk- ur. Þá vilja læknar og sýna spítölum þá tillátssemi, að leggja ekki sjúkling inn, nema nauðsyn beri til. Enginn efi er á því, að per- fórativ appendicitis myndi sjást stórum sjaldnar og dánar- tala lækka, ef hægt væri að senda öll vafatilfelli strax i sjúkrahús til eftirlits og ópera-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.