Læknablaðið - 01.02.1952, Qupperneq 11
læknablaðið
89
/ stjórn voru kosnir:
Formaður: Valtýr Alberts-
son með 18 atkv. Ritari: Júlíus
Sigurjónsson með 16 atkv.
Gjaldkeri: Jón Sigurðsson með
18 atkv. Varaformaður: Dr.
Helgi Tómasson með öllum gr.
atkv. Vararitari: Friðrik Ein-
arsson með öllum gr. atkv.
Varagjaldkeri: Bergsveinn Ól-
afsson með öllum gr. atkv.
Endurskoðendur voru kosn-
lr: Bjarni Jónsson og Kristinn
Stefánsson.
í gerðardóm voru kosnir:
Sigurður Sigurðsson, Árni
Arnason, og til vara Bjarni
Snæbjörnsson, Ólafur Einars-
son.
Fulltrúar á þing B.S.R.B.
voru kosnir: Eggert B. Einars-
son, Sigurður Samúelsson, Ól-
afur Bjarnason, Ólafur Ein-
arsson og til vara: Brynjúlfur
Hagsson, Þórarinn Sveinsson.
Páll Kolka fundarstjóri bað
varafundarstjóra próf. Jón
Steffensen að taka við fund-
arstjórn. Flutti Páll Kolka sið-
an framsöguræðu um hags-
munamál héraðslækna. Skýrði
Há því, að nauðsynlegt væri
að héraðslæknar ættu fulltrúa
1 öllum utanþingsnefndum, er
fjölluðu um málefni héraðs-
Isekna. Nefndi t. d. síðustu
reSlugerð um lyfjagreiðslu
sJÚkrasamlaga, er hann taldi
auka mjög starf héraðslækna
óþörfu. Lagði til að hér-
aðslæknum yrði gefinn kostur
á að endurnýja bifreiðar sín-
ar á 4 ára fresti.
Valtýr Alhertsson upplýsti
að komin væri ný og aðgengi-
legri skrá um lyf j agreiðslu
sj úkrasamlaga.
Páll Iíolka taldi að sameina
mætti þessa reglugerð og lyf-
söluskrána í eina bók. Taldi
að L. I. þvrfti að taka upp al-
þýðufræðslu um sambúð sjúk-
linga og lækna, og ala almenn-
ing upp í því að sækjast ekki
eftir óþarfa meðalanotkun.
American Medical Assoscia-
tion hefir öfluga alþýðu-
fræðslu (Public Relations), er
vinnur á móti socialiseringu
lækna i Ameríku, og bendir á
hættur, sem fylgja henni.
Stakk hann upp á því að L. í.
leitaði samninga við útvarpið
um einn tíma á mánuði varð-
andi sambúð sjúklinga og
lækna.
Eqgert B. Einarsson átaldi
ósamræmi í leigu læknisbú-
staða, leigan væri mjög mis-
jöfn frá 200 upp i 1300 kr. á
mánuði. Skoraði á stjórn L. í.
að fá þetta lagfært.
Arngrímur Björnsson gerði
fvrirspurn um það, hverjum
bæri að borga kostnað við lik-
skoðun, vegna hinnar nýju
löggjafar um dánarvoltorð.
Brynjúlfur Dagsson upplýsti
að landlæknir hefði talið að
ættingjum bæri að borga
kostnaðinn við líkskoðun.