Læknablaðið - 01.06.1953, Side 6
146
LÆKNABLAÐIÐ
standenda, enda dóu allir, sem
fengu krabbamein allt fram á
þessa öld, og ennþá er það svo,
að þeir eru miklu færri, sein
liægt er að lækna þótt þeir
komi til lækninga á byrjunar-
stigi sjúkdómsins. Það er ekk-
erl ótrúleg sagan, sem próf.
Sauerbruch scgir frá í endur-
minningum sínum. Kona ein
skrifaði honum á þess i ieið:
„Hæstvirti Geheimerat, — það
er fádæma frekja og blygðun-
arleysi að halda fyrirlestur um
krabbamein, þegar þér vilið
nákvæmlega eins lítið um það
og hver annar læknir. — Þið
læknarnir eruð mestu skussar
og vilið ekkert um krahha-
mein. Móðir mín, systir min
og maðurinn minn eru öll dáin
úr krabbameini, og allir Iækn-
arnir, sem stunduðu þau, liafa
sýnt það, að þeir eru fáráð-
lingar“. Þannig bellti hún vfir
bann skömmunum út allt bréf-
ið. I raun og sannleika, ])á er
krabbameinsbaráttan ennþá
ekki langt frá þessu stigi, sem
konan lýsti svo miskunnar-
laust, þó mikið megi hjálpa,
ef lækning er hafin nógu
snemma. Við athugun á því,
hvers vegna krabbameinssjúk-
lingurinn kemur svo seint til
lækninga, sem raun ber vitni,
þá á fáfræði fólksins þar mikla
sök, en sök læknanna hefur
þó verið ennþá stærri. Ekkert
Petersen, danskur læknir, at-
bugaði sjúkrasögu 64 kveuna
með krabbamein í legi. Það
voru aðeins 3, sem komu undir
eins og fyrstu einkenni komu
í ljós, 5 konur komu á fyrsta
mánuðinum, 12 konur biðu frá
eiuum og upp í tvo mánuði, 6
komu ekki fyrr en á 3ja mán-
uði, 15 eftir 3 og upp í 6 mán-
uði, 12 eftir sex og upp í 12
mánuði, og níu eftir að liðið
var eilt ár. Með öðrum orðum,
])á hafði meir cn þriðjungur
sjúklinganna dregið ]>að yfir
hálft ár að leita sér lækninga,
og meir en helmingur sjúk-
linganna hafði haft sjúkdóms-
einkenni meir en ])rjá mánuði
áður en þær leituðu lækninga.
Um þetta má þá kenna sjúk-
lingunum, hvort scm það er að
kenna fáfræði, trassaskap eða
getuleysi. Svipaðar niðurstöð-
ur liafa fengizl við sams konar
athuganir í Ameríku. Nú er
fróðlcgt að athuga liitt, hve
langur tími líður frá því sjúk-
lingurinn leitar læknis og
])angað lil hann kemst til lækn-
ingar á krabbameininu. Norm-
an Miller, prófessor við háskól-
ann í Michigan, komst að þeirri
niðurstöðu, að enn liðu fjórir
mánuðir, frá því sjúkliugurinn
kom til heimilislæknis og þang-
að til konan var komin til við-
eigandi lækninga á þessum
sjúkdómi. Þannig voru að með-
altali um 11 mánuðir tapaðir
af dýrmætum tíma í þessari
börðu baráttu, og sá tíminn,
sem í flestum tilfellum ákveð-
ur örlög þessara sjúklinga.
Eins og áður var sagt, þá er