Læknablaðið - 01.06.1953, Qupperneq 10
150
LÆKNABLAÐIÐ
að ræða lijá konunni og i ljós
kemur að sár er á leghálsinum
af krabbameini, þá er cancer-
inn alltaf orðinn „invasive“.
Komi blæðingin frá ,erosio‘, er
oft ómögulegt að segja um,
livort ekki geti verið í því ill-
kynja vöxtur, nema með vefja-
rannsókn því ,erosionir‘, sem
eru að gróa, hafa mikinn epith-
elvöxt, sem stundum hefur
valdið meinafræðingum erfið-
leika við greiningu á krabba-
meini.
Stundum kemur ,kontakt‘-
blæðing, eða bara við tregar
liægðir blæðing, frá leghálsi,
sem ekkert er á að sjá, og er
þá venjulega skemmdin upp í
sjálfum legbálsinum, eða frá
legholinu, en það er miklu
sjaldgæfara. Slímhúðarsepa,
sem lafa út um legopið, á alltaf
að senda til vefjarannsóknar.
Krabbamein, sem ekki er ,in-
vasive' veldur ekki blæðingu.
Útferð er oft undanfari ,kont-
akt‘-blæðingar, og orsakast þá
af bólgubreytingum í yfirborði
skemmdarinnar. Útferð getur
líka stafað af óverulegri blæð-
ingu, þar sem blóðið leysist
sundur og þynnist í vessum
legganganna, og er þá aðeins
dökkleit að lit. Annars er út-
ferð því miður svo algengt og
saklaust einkenni, að bvorki
konurnar sjálfar né læknarnir
skeyta því neinu, oft og tíðum.
„Non-invasiv“ krabbi veldur
engri útferð, fremur en blæð-
ingu. Exploratio vaginalis hel’-
ur mjög takmarkað gyldi, ef
á að finna krabbamein i leg-
liálsi tímanlega. Á byrjunar-
stigi er engin sú breyting á
vefnum að snertiskynið geti
þar orðið að gagni, því vefur-
inn er ekkert orðinn barður og
ekkert dottið upp úr honum.
Exploration getur þó stundum
valdið fyrstu snertiblæðing-
unni, og ber því að veita því
athygli.
Skoðun ú leghálsinum er eitt
mikilvægasta atriðið við alla
rannsókn á kynfærunum. Til
þess þarf að hafa legspcgil
(speculum) og gott ljós. Leg-
hálsinn getur verið
1) að því er virðist alveg lieill
og eðlilegur, með glansandi
slímbúð og jafn að lit.
2) Það geta verið á honuin
bólgubreytingar með vauö-
leitum rákum eða hvilleit-
um blettum.
3) Með ovulae Nabotbi, eða
smáum stífluðum kirtlum.
4) Leukoplaki, sem eru skjall-
bvítar, uppbækkaðar skell-
ur.
5) Ectropium, þegar legháls-
inn gapir vegna gamallar
rifu eftir fyrri fæðingar.
6) ,Erosio‘, í kliniskri merk-
ingu orðsins, þar sem um
er að ræða hárauðlitað
svæði umbverfis vtra leg-
opið.
7) ,Ulceration‘, sem er ,erosio‘
á hærra stigi. Þá sjást eilt
eða fleiri göt á vefnum með
eins og trosnuðum röndum.