Læknablaðið - 01.06.1953, Qupperneq 12
152
LÆKN ABLAÐIÐ
stað, þá koma þar með tíman-
um töluverð ör, sem sumir
telja ekki heppilegt hvað við-
vikur ,icancer degeneratiorí.
Krabbameinsbaráttan er nú
framkvænul með því móti, að
teknir eru vefbitar frá öllum
breytingum á leghálsi, þó.tt
ekki gefi grun um krabba-
mein með berum augum. —
Lock og Caldwell fundu þann-
ig 29 krabbameinstilfelli eða
1.7% af 1797 biopsium. Piper
fann 11 tilfelli af krabbameini
af 1 í>00 biopsium og Te Linde
og Galvin fundu 1.3% krabba-
mein með því að taka bita frá
leghálsinum alltaf, þegar leg
er skafið og alltaf er eitthvað
var óeðlilegt að sjá á legháls-
inum. Til þess nú að finna þá
staði, sem geta verið grunsam-
legir á leghálsinum, án þess að
valda skemmdum með örmynd
unum, eru aðallega notaðar
þrjár aðferðir: Sehillers próf,
kolposkopi og svonefnt „vagin-
al smear“.
Schillers próf er i því fóJg-
ið að pensla leghálsinn með
Lugols upplausn (1 joð, 2 joö-
kalium, 300 vatn). Eðhleg
flöguþekja inniheldur glycogen
í efstu lögunum og litast þess
vegna við þetta og verður
dökkbrún (mahogani brún).
Þar sem yfirborðs-þekjan er
flögnuð af, er vefurinn óbreytt-
ur, rauður eða aðeins gulleitur.
Eins fer um báfrumuþekju á
ectropium. Ef flöguþekjan er
hornmynduð (cornificeruð)
eða með byrjandi krabbameins
breytingum, ])á verður engin
litarbrevting á vefnum, þó
hann sé alveg heill; því það
vantar þá glycogen í vefinn.
Það koma fram hvítleitar skell-
ur, sem stinga í stúf við hinn
dökklitaða vef umhverfis. -—
Þetta er handhæg rannsókn,
sem auðvelt er að framkvæma
af livaða lækni sem er, og þarf
ekki annað til þess en legspeg-
il og gott ljós. Til undirbúnings
verður að þurrka vel burt alll
slim.
Ef leghálsinn litast allur jafnt
og vel, má ganga út frá því, að
engin skeinmd sé í flöguþekj-
unni; hins vegar er ekki hægt
að segja hvers eðlis skemmdin
er, þó vefurinn litist ekki með
Lugols-vökva. — Orsökin þavf
ekki að vera önnur en smá-
bólgubreyting. Við þessa rann-
sókn kemur líka aldur kon-
unnar til greina, því ef konan
er kastreruð, eða ef konan er
komin vfir breytiárin, er lítið
sem ekkert glvcogen í vefnum,
og þá verður ekki ])essi litar-
breyting á vefnum. Þegar bú-
ið er að lækna góðkynja breyt-
ingar og bólgur, kemur aftur
eðlileg litun, þegar penslað er
með Lugols-vökva. Orsök breyt-
inganna getur líka verið hyp-
erkeratosis vegna legsigs, eða
syfilisskemmdir.
Niðurstaða þessarar rann-
sóknar verður sú, að taka verð-
ur til vefjárannsóknar bita l'rá
öllum þeim blettum, sem eru