Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1954, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 01.04.1954, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ 75 þeim tilgangi að leita að gláku og reyndust 76 af þeim hafa tekið sjúkdóminn án þess þó þeir vissu af því. Öll tilfellin voru á byrjunarstigi og ein- kennalaus, með lítilli skerðingu á sjónsviði. Þeir, sem stóðu að þessum rannsóknum, álykta, að um 2% karla og lcvenna yfir fertugt hafi tekið glákusjúk- dóminn þar í landi og sýni það þörfina á skipulagðri ieit að gláku meðal eldra fólks. Eins og kunnugt er, er mjög mikilvægt að fá glákusjúklinga sem fyrst til meðferðar, helzt áður en veruleg rýrnun á sjón- taug er byrjuð eða skerðing á sjónsviði. Séu þessi einkenni hyrjuð, er skurðaðgerð nauð- synleg sem fyrst. Telur Berg- sveinn Ólafsson, augnlæknir (11) í skýrslu til landlæknis i Heilbrigðisskýrslum 1948, að góður árangur náist hér efa- laust á 70—80% þeirra, er til aðgerðar koma, að sjálfsögðu, ef aðgerð er framkvæmd áður en veruleg skenimd er komin í augun. Kemur þetta vel heim við rannsóknir eins helzta glákufræðings Bandaríkj anna, Dr. Harry S. Gradle(12), sem segir að halda megi um 85% af glákutilfellum í skefjum, svo framarlega sem aðgerð er framkvæmd tímanlega og rétt skurðaðgerð viðhöfð. Meðalagjafir duga ekki nema skamman tíma, og hvert það glákuauga, sem ekki er gerð aðgerð á, verður fyrr eða síðar hlint. En hver er þá orsök þessarar ískyggilega háu hlindratölu af völdum gláku? Vafalaust sú, að fólk með gláku kemur of seint til augnlæknanna, og er það vegna þess, að sjúkdóm- urinn er að mestu einkenna- laus og hægfara; smáminnk- andi sjón og skerðing á sjón- sviði, sem sjúklingurinn þarf ekki að verða var við, ef annað augað er enn óskemmt, eins og oflast á sér stað. Stundum liafa menn orðið alblindir á öðru auga af gláku, án þess að vita um það fyrr en hitt er farið að skemmast. Vitanlega verða horfurnar þá slæmar. Heldur margt fólk þess vegna, að um eðlilegt ellisjóntap sé að ræða. Er þetta hinn háska- legasti misskilningur. Ef allt er með felldu á sjónin ekki að breytast neitt að ráði eftir sex- tugt. Breytist sjónin verulega eftir þann aldur, má búast við að augun séu sjúk. Sú skerðing á sjón, sem orsakast af skemmdum á sjónu (retina) og' sjóntaug vegna hækkaðs augnþrýstings (gláku), verður aldrei bætt aftur, og aðgei’ðin er fólgin i því að lækka varan- lega þrýstinginn inni i auganu. Þrátt fyrir greiðari samgöng- ur og skipulagðar ferðir augn- læknanna um landið á vegum heilhrigðisstj órnarinnar, koma mjög margir of seint til með-

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.