Læknablaðið - 01.04.1954, Side 19
LÆKNABLAÐIÐ
77
in var frumorsök blindunnar.
Yerður sennilega i framtíðinni
hægt að lækka blindutöluna
í þessum flokki með hinum
nýju berklalyfjum. f öðrum
blinduflokkum getum við
sennilega ekki lækkað blindu-
tölu okkar á næstu árum, þar
eð aðallega er um rýrnunar
(degenerativ) og arfgengar
breytingar að ræða. Blinda af
slysum fann ég 7, 4 liöfðu feng-
ið samkenndarblindu. Af iðn-
aðarslysum veit ég engan hafa
orðið blindan hér á landi. En
með auknurn iðnaði má búast
við alvarlegum augnslysum,
sem gætu leitt til blindu, ef
ekki er gætt ýtrustu varúðar
á vinnustöðum.
Blind börn innan 15 ára eru
skráð G á öllu landinu og skoð-
aði ég þau öll. Höfðu 3 þeirra
cataracta congenita og hafði
verið gerð skurðaðgerð á þeim
öllum, án verulegs árangurs.
Tvö af þeim eru fávitar og sá
þriðji andlega vanþroskaður.
Einn drengur taldist stein-
blindur vegna rýrnunar á heil-
anum (cortex optici). Ein
stúlka hafði fengið atropliia n.
optici post encephalit. og sá síð-
asti liafði blindazt af spreng-
ingu 10 ára gamall. Hefur hann
verið sá eini í blindraskólan-
um í Beykjavík undanfarin ár.
Þegar þetta er ritað, er skólinn
ekki starfræktur, þar eð eng-
inn nemandi er fyrir hendi.
Niðurstaða:
Blinduliugtak og blindumark
(blindustandard) hafa verið
mjög á reiki hjá okkur. Ætt-
um við þess vegna að láta koma
til framkvæmda reglur Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinn-
ar er kveða á um blinduhug-
tak og blindumark (%0 Snell-
en), svo að við í framtíðinni
getum borið okkar blindu-
skýrslur saman við hliðstæðar
skýrslur erlendar. Hlutfalls-
lala blindra hjá okkur er mjög
há, sennilega með hæstu í
heiminum, sem orsakast af
liinni illkynjuðu glákublindu í
gömlu fólki. Möguleiki væri að
lækka blindutöluna til muna
með skipulagðri leit að gláku
á fólki yfir sextugt. Skráning
glákuskýrslna og blindu-
skýrslna væri æskileg, til þess
að vita, hvar við erum stödd í
blindramálum.
ENGLISH SUMMARY.
The prevalence and causes
of blindness in Iceland.
According to the decennial
census of Dec. ist 1950 362 per-
sons were registered blind in
lceland. In addition I have
been able to trace 12 not reg-
istered cases. The total number
is therefore 434 blind or 300
per 100.000 population, wliich
is the highest blindness rate
recorded in European and Am-