Bændablaðið - 14.11.2013, Blaðsíða 36
37Bændablaðið | Fimmtudagur 14. nóvember 2013
Bændadagar í borginni
Bændasamtök Íslands bjóða bændum í heimsókn
í Bændahöllina dagana 15. og 29. nóvember.
Það verður fróðleg dagskrá á skrifstofum
BÍ og starfsemin kynnt gestum á milli kl.
14.00 og 17.00. Í tengslum við opna húsið
mun Hótel Saga bjóða bændum sértilboð
á gistingu og jólahlaðborði.
Borgarleikhúsið býður auk þess veglegan
afslátt á aðgöngumiðum á leiksýninguna
Mýs og menn.
Þetta er kjörið tækifæri til að bregða sér
í bæinn yfir helgi, njóta lífsins og fræðast
um starfsemina í Bændahöllinni.
Dagskrá á skrifstofum BÍ,
kl. 14.00-17.00
Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, býður bændur
velkomna og ræðir um starfið framundan.
Kynning á starfsemi Bændasamtakanna, helstu
verkefnum og því sem er efst á baugi. Hvað vilja
bændur að hagsmunasamtökin þeirra taki sér
fyrir hendur í framtíðinni?
Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur heldur stuttan
fyrirlestur um starfsánægju, fjölskyldulíf og lífsgæði.
Léttar veitingar og skemmtun.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Nauðsynlegt er að skrá sig tímanlega til leiks á Bændadaga í borginni með því að hafa samband
í síma 525-9921 eða senda tölvupóst á hotelsaga@hotelsaga.is. Nánari upplýsingar er að
finna á bondi.is
Bjóðum í samvinnu við Fella frábært tilboðsverð á
heyvinnuvélum í lok 50 ára afmælis Fella á Íslandi.
Gerið verðsamanburð áður en verslað er.
Áramótatilboð á Fella heyvinnuvélum
Dalvegi 6-8
201 Kópavogur
Sími 535 3500
www.kraftvelar.is
kraftvelar@kraftvelar.is
Mynd / HKr.