Bændablaðið - 14.11.2013, Blaðsíða 47

Bændablaðið - 14.11.2013, Blaðsíða 47
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. nóvember 2013 hlj@bondi.is Vélabásinn Hjörtur L. Jónsson Bændasamtökin eiga nokkurra ára gamlan Subaru Forester sem hefur þjónað samtökunum og Bændablaðinu ágætlega. Um síðustu áramót kom nýr og breyttur Subaru Forester á markað og hugðist ég bera þessa bíla saman. Skemmst er frá því að segja að munurinn er svo mikill á bílunum að það er varla hægt að bera þá saman, nema að báðir heita Forester. Öryggið í fyrirrúmi Það er nánast ekkert eins í nýja og gamla Forester; vélin, skiptingin, drifbúnaðurinn, innréttingin og yfirbyggingin eru gjörbreytt. Þegar ég settist inn í bílinn fann ég strax mun, sætin voru þægilegri, fótapláss mun meira og útsýni allt annað. Mælaborðið er hefðbundið og vel staðsett, en hægra megin við það er upplýsingaskjár sem gefur mikið af góðum upplýsingum, s.s. um aksturstíma, eyðslu, vegalengd ökuferðar, útihita, innihita og fleira. Öll yfirbyggingin er smíðuð og hönnuð sérstaklega með öryggi að leiðarljósi, ekki ósvipuð hönnun og veltibúr í rallýbíl. Loftpúðar eru margir og loftpúðinn fyrir farþega í framsæti er ekki virkur nema farþegi sé í sætinu og því blæs hann ekki út ef bílstjóri er einn í bílnum og lendir í höggi. Þess eru enda dæmi að farþegapúðinn hafi slasað ökumann við árekstur og kastað honum í hliðarrúðuna eftir að ökumannspúðinn hefur sprungið í fang hans. Fyrir allan þennan öryggisbúnað fékk Subaru Forester fimm stjarna öryggisverðlaun Euro NCAP, sem er hæsta mögulega stigagjöf fyrir öryggi. Mikil eyðsla á kaldri vél en snarminnkar eftir einnar mínútu akstur Vélin er kraftmikil tveggja lítra boxer-vél sem á að skila 150 hestöflum við 6.200 snúninga. Þrátt fyrir að Subaru Forester sé alltaf í fjórhjóladrifinu eyðir hann ekki miklu bensíni, en þessi nýja endurhannaða vél er gefin upp fyrir að vera með eyðslu upp á 8,5 lítra á hundraðið í innanbæjarakstri og ekki nema 6,0 lítra í langkeyrslu. Þetta er mikil framför frá gamla bílnum, sem var að eyða yfir 10-11 lítrum innanbæjar og nálægt 9 í langkeyrslu. Sjálfur ók ég bílnum langt og var ekkert að reyna sérstaklega að spara bensín, útkoman var 6,9 lítrar hjá mér. Hins vegar er manni svolítið brugðið þegar bíllinn er ískaldur því þá sýnir eyðslumælirinn allt að 40 lítra eyðslu á hundraðið, en strax eftir eina mínútu í gangi eða eins kílómetra akstur er mælirinn farin að sýna lægri tölur og eftir um 5-10 mínútna akstur er eyðslan dottin niður í tölu sem heldur manni brosandi ánægðum. Ný keðjudrifin þrepalaus skipting Drifbúnaðurinn er nýr og nefnist Xmode, en með einum takka fyrir framan gírstöngina er hægt að setja inn stillingu fyrir erfiðar aðstæður. Þessi stilling gefur aukna möguleika til að bregðast við betra áframátaki og bremsuátaki til að hámarka grip hvers hjóls miðað við aðstæður. Ég prófaði þetta aðeins á vegslóða sem var með snjó og klaka og bíllinn var á sumardekkjum, en miðað við grip áfram og hemlun hefði mátt halda að bíllinn hefði verið á góðum vetrar- hjólbörðum. Hæðin undir lægsta punkt er 22 cm, sem er með því mesta í flokki þessara bíla, og hornið frá framstuðara niður í framdekk er 26 gráður, sem gefur möguleika á töluvert miklum torfæruslóðaakstri. Skiptingin er stiglaus línusjálfskipt- ing, snörp skipting sem er keðju- drifin (sem skilar þessari snerpu) og ætti að þola meira en hefðbundnar svipaðar sjálfskiptingar sem almennt eru reimdrifnar. Tog vélarinnar gerir bílinn sérstaklega hæfan fyrir kerrudrátt Farangursrými er mjög mikið (sé miðað við eldri bílinn er farangurs- rýmið töluvert meira) og dráttarget- an er 2.000 kg. Þetta tvennt gerir bílinn sérstaklega fjölskylduvænan og ætti að henta vel til að draga hestakerru og hjólhýsi, þar sem tog vélarinnar er mjög gott og bíllinn tapar ótrúlega litlum hraða þegar komið er að bröttum brekkum. Að lokum vil ég nefna einn lítinn takka í stýrinu, en hægra megin á því eru tveir takkar sem merktir eru með I og S. Ef taka þarf fram úr bíl á þjóð- vegi er gott að ýta á S-takkann og gefa svo í fram úr. Bíllinn hreinlega hendist áfram og framúrtakan verð- ur snögg og snörp en ef maður gerir þetta ekki verður hún mun hægari. Muna svo að stilla á I-takkann á eftir (til að spara eldsneyti). Miðað við verð og kynni mín af bílnum tel ég Forester vera með vænlegri kostum í bílakaupum sé verið að leita eftir fjórhjóladrifnum bíl. Nýr og breyttur Subaru Forester: Ódýr, öruggur og gjörbreyttur Lengd: 4.495 mm Hæð 1.735 mm Breidd: 1.795 mm Þyngd: 1.502 kg Verð: Bensínvél 2,0 5.790.000 Subaru Forester Subaru Forester. Myndir / HLJ Hliðarspeglar eru mjög góðir. Hátt er upp undir bílinn að framan, sem gerir honum kleift að brölta mjög torfæra slóða án þess að eiga á hættu að reka niður framendann. Upplýsingaskjárinn sýndi að eftir tveggja tíma akstur var eyðslan 6,9 lítrar á hundraðið en frá því að A-kílómetramælirinn var núllaður var hún samtals 7,8 lítrar á hundraðið. S og I takkarnir, I fyrir sparakstur og S fyrir snerpu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.