Bændablaðið - 14.11.2013, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. nóvember 2013
Bændafundir Bændasamtakanna haldnir víða um land:
Verðugt markmið að skilgreina
matarhandverk
Á bændafundi Bændasamtakanna
19. nóvember næstkomandi sem
haldinn verður í Ásgarði í Kjós mun
Óli Þór Hilmarsson, sérfræðingur
hjá Matís, fjalla um heimavinnslu
matvæla. Á síðari árum hefur
orðið umtalsverð aukning á
heimavinnslu afurða til sölu beint
frá býli. Um 90 býli um allt land
eru til að mynda þátttakendur í
félagsskapnum Beint frá býli sem
er félag heimavinnsluaðila.
Óli Þór segir að heimavinnsla
matvæla sé þekkt fyrirbæri um allan
heim.
„Heimavinnsla er stunduð á
hverjum degi á langflestum heimilum
í formi matseldar fyrir heimilisfólkið.
Hvað matvælin eru mikið unnin á
heimilinu er oftast í samræmi við
þann tíma sem viðkomandi hefur
til matargerðarinnar. Það er hins
vegar ekki það sem átt er við í
þessu samhengi heldur heimavinnsla
matvæla til sölu eða dreifingar.“
– Er orðið of stutt á milli matar-
handverks og iðnaðarframleiðslu?
Óli Þór nefnir að það hafi færst
í vöxt undanfarin ár að ýmsir aðilar
stundi smáframleiðslu á matvælum
til sölu og sé það ekki einskorðað
við bændur.
„Félagsskapurinn Beint frá býli er
í hugum margra eitt og hið sama og
sú heimavinnsla matvæla sem ætluð
er í sölu. En nú hafa fleiri en þeir sem
búa á býli bæst í þennan hóp t.d. er
þekkt að trillukarlar verki makríl og
húsmæður og -feður í bæ og borg
sjóði sultu og baki brauð. Þetta fólk
verður sér síðan úti um starfsleyfi
yfirvalda og selur og dreifir vörum
sínum. Aðilar utan samtakana
Beint frá býli hafa verið kallaðir
smáframleiðendur eða frumkvöðlar
í matvælavinnslu eða jafnvel sprotar.
Skilgreiningar á öllum þessum
smáframleiðendum eru oft ekki
ljósar. Hver er til dæmis munur
á brauði beint frá býli eða næsta
bakaríi? Eða þá sultu úr sveitinni á
móti þeirri sem fæst í Bónus? Oft
er munurinn ekki annar en að varan
er framleidd í smáum stíl en ekki
verksmiðju. Hráefnin eru svipuð
og rotvarnarefnin líka, oft er listi
E-númera jafn langur á heimaunnu
vörunni og þeirri úr verksmiðjunni.“
Að mati Óla Þórs er full ástæða
til að velta fyrir sér þessum mun
og hvort hætta sé á að sérstaða
smáframleiðslunnar þynnist út.
„Er þá munurinn ekki orðinn full
lítill á milli heimaunninnar vöru og
þeirrar sem unnin er í stórum stíl?
Er hugsanlegt að áhugi markaðar-
ins minnki um leið og nýjabrumið
hverfur og hvað er þá til ráða? Svíar
byggja orðið á langri hefð heima-
vinnslu matvæla og þar hafa hlutir
þróast í þá átt að aðgreining heima-
vinnslunnar og verksmiðjufram-
leiðslu er sífellt að verða meiri. Í
dag er talað um matarhandverk sem
mótvægi við iðnaðarframleiðslu.
Slíkt matar handverk gengur meðal
annars út á að nota nota heimafengið
hráefni eins og frekast er kostur. Þá á
helst ekki að nota nein rotvarnarefni
þar sem því verður við komið og ekki
heldur bindiefni sem hafi þann eina
tilgang að binda vatn í vöru til að
gera hana ódýrari. Litið er á það sem
eðlilegan hlut að vara geti verið frá-
brugðin frá einni framleiðslulotu til
annarrar og því eigi ekki að nota
tæknileg hjálparefni til að gera fram-
leiðsluna einsleita heldur byggja á
handverki sem slíku.“
Styðjast ætti við grunnhugmyndir
Til að skilgreina heimavinnslu eða
matarhandverk leggur Óli Þór því
til að fólk styðjist við ákveðnar
grunnhugmyndir.
„Í sinni einföldu mynd má þá
segja að matarhandverks matvæli séu
unnin í höndum, úr hreinu hráefni
úr nágrenninu, oft og iðulega byggt
á gömlum hefðum en ekki unnin í
sjálfvirkum vélum með öllum mögu-
legum rotvarnarefnum, bragðaukandi
efnum og þeim tæknilegu hjálpar-
efnum sem tryggja eiga að varan sé
alltaf eins bæði í áferð, lit og undir
tönn. Það væri verðugt markmið hjá
öllum þeim sem vilja vinna og selja
matvæli í smáum stíl.“ /fr
Fjárfestinga þörf til upp-
byggingar í landbúnaði
Bernhard Bernhardsson, útibús-
stjóri Arion banka í Borgarnesi,
mun á komandi bændafundum
fara yfir fjárfestingar í landbúnaði,
lánakjör og annað sem tengist
uppbyggingu og fjármálum. Efnið
hlýtur að vera bændum mjög
hugleikið enda víðast hvar þörf á
fjárfestingum, hvort sem um er að
ræða uppbyggingu fasteigna eða
lán vegna vélakaupa, kvóta eða
annarrar uppbyggingar.
Á fundunum hyggst Bernhard
fara yfir helstu atriði sem að þessu
lúta. „Ég hyggst fjalla um hvernig
það er þegar bændur sækja um lán og
hvernig það fer fram þegar bankinn
metur slíkar umsóknir. Það getur átt
við þegar bændur ætla að kaupa kvóta
eða fara í framkvæmdir. Um þetta
hyggst ég fjalla og hugsanlega taka
dæmisögu um það hvernig slíkt færi
fram, til dæmis um lán til kvótakaupa.
Ég hyggst því fara yfir
málsmeðferðina og hvert framboðið
er á leiðum sem hægt er að fara
í þessum efnum. Það getur verið
talsverður blæbrigðamunur á því
hvaða leiðir þarf að fara. Við sem
erum lykilmenn í hverjum landshluta
hvað varðar landbúnaðarmál teljum
okkur hafa talsvert yfirgripsmikla og
góða þekkingu á landbúnaði almennt
og eins á okkar svæðum. Við skiljum
vel hvað stendur að baki hjá hverjum
bónda og setjum okkur inn í stöðu
mála hjá hverjum og einum. Við
gerum ekki mun á milli aðila heldur
metum greiðslugetu í hvert og eitt
skipti og tökum ákvarðanir út frá því.
Það er allt metið út frá rekstrartölum
og uppgjöri og við reynum að
leggja okkur af fremsta megni fram
um að útskýra hvað liggur að baki
ákvörðunum hjá okkur.“
Ákvarðanataka færð til útibúanna
– Stundum er talað um það, einkum nú
eftir hrun, að meira sé um miðlægar
ákvarðanir innan banka stofnananna
og þekking á landbúnaði sem hafi
verið hvað mest í útibúunum úti um
land sé ekki nýtt eins og vera skyldi.
Getur þú tekið undir þetta?
„Ég get ekki svarað fyrir aðrar
fjármálastofnanir en þessu er í raun
þveröfugt farið hjá Arion banka. Það
er erfitt að finna þann bónda sem
ekki getur fengið þá fyrirgreiðslu
sem hann þarf á að halda í sínu
útibúi. Við höfum komið á svæða-
fyrirkomulagi þar sem búið er að
færa ákvarðanatökuna út á mörkina
og höfuðstöðvarnar eru í raun lítið
sem ekkert með puttana í lánum til
landbúnaðarins í bankanum. Hjá
Arion banka varð mönnum ljóst að
þekkingin í landbúnaði lá í útibú-
unum og því var þessi ákvörðun
tekin. Ég til að mynda er sjálfur
með landbúnaðarmenntun og hjá
mér hér í Borgarnesi er ég með
mann sem hefur mikla þekkingu á
málaflokknum eftir að hafa unnið
hjá Hagþjónustu landbúnaðarins.
Þetta á líka við um önnur svæði; á
Suðurlandi er til að mynda yfir þess-
um málum fyrrverandi ráðunautur.
Það sem hefur breyst í Arion
banka frá því fyrir hrun er það að
við í framlínunni höfum nú umboð
til að þjónusta bændur án þess að
leita til höfuðstöðva. Ef ég ætti að
nefna eitthvað sem hefur gengið
sérstaklega vel hjá bankanum myndi
ég nefna samskipti við bændur,
enda höfum við verið að fá til okkar
viðskiptavini úr bændastétt.“
Bændur almennt góðir
rekstrarmenn
Bernhard segist telja að miklir
möguleikar séu fyrir hendi í
landbúnaði. „Ef sama mynstur
verður í til dæmis uppbyggingu í
mjólkurframleiðslu, líkt og verið
hefur síðustu ár og áratugi, verður
mikillar fjárfestingar þörf á næstu
árum. Enn er mikið af gömlum
byggingum í notkun svo dæmi sé
tekið og því líklegt að þörf sé á
talsverðu viðhaldi, breytingum eða
nýbyggingum. Ég held því að það sé
heilmikil uppbygging fram undan.“
Að mati Bernhards eru þeir bændur
sem staðið hafa í uppbyggingu og
fjárfestingum almennt góðir rekstrar-
menn. „Mér finnst þeir almennt vel
upplýstir og vita nákvæmlega hvað
þeir eru að gera. Arion banki er
því alls ekki smeykur við að lána
til framkvæmda bænda, með öllum
eðlilegum forsendum auðvitað.“ /fr
Nýliðun snýst um
pólitíska stefnu
Helgi Haukur Hauksson, stjórnar-
maður í Landssamtökum sauðfjár-
bænda og fyrrverandi formaður
Samtaka ungra bænda, hyggst á
bændafundum fjalla um nýliðun í
landbúnaði, efni sem hefur verið til
umræðu innan bændastéttar jafn
lengi og félagsmál almennt.
Með stækkandi búum og
sí auknum áhuga ungs fólks á búskap,
sem birtist ekki síst í mikilli ásókn
í nám í bændadeild á Hvanneyri, er
þessi spurning æ meira knýjandi.
Helgi hyggst reyna að nálgast
málið á eins röklegan hátt og tök
eru á.
„Það sem ég ætla að reyna að
gera á þessum fundum er að draga
fram einhver gögn sem við eigum til
haldbær um nýliðun í landbúnaði. Þá
á ég við rannsóknir sem gerðar hafa
verið og gögn sem hefur verið safnað
og reyna með því að varpa einhverju
ljósi á nýliðun út frá rökum, en ekki
pólitík eða tilfinningum.“
Nýliðun mismunandi
Ýmis gögn eru til hvað varðar
þennan þátt landbúnaðar. „Þetta eru
ýmsar upplýsingar frá opinberum
aðilum, hagtölur landbúnaðarins,
skýrslur og verkefni sem unnin hafa
verið við háskólastofnanir. Ég ætla
ekki að halda því fram að hægt sé að
fá einhverjar beinar niðurstöður en
það er hægt að draga ályktanir út frá
þessu efni sem svo er hægt að byggja
á“, segir Helgi.
Ekki er auðvelt að draga neina
eina línu í þessum efnum að mati
Helga.
„Nýliðun í landbúnaði er mis-
munandi milli svæða og einnig í
einhverjum mæli milli búgreina.
Þessir tveir þættir skarast vitan lega
einnig. Það er svo erfitt að meta
ástæður þess að þessu sé mismunandi
farið en það er hægt að gera tilraun til
þess þó. Við vitum að það eru ákveðnar
aðgangshindranir þegar kemur að
nýliðun í íslenskum landbúnaði. Við
vitum líka að okkar kerfi er alls ekki
algalið miðað við það sem gengur og
gerist erlendis. Á þessu eru sem sagt
bæði kostir og gallar. Jarða verð hér
á landi er vissulega til dæmis hátt en
víða erlendis er það mun hærra. Við
þurfum hins vegar fyrst og fremst
að taka ákvörðun um hvaða pólitík
við ætlum að reka varðandi þennan
þátt land búnaðar hérlendis, nýliðun.
Það er það sem bændur þurfa að velta
upp.“
Búseta í sveitum líka undir
Eitt af því sem Helgi vill velta upp
er sú spurning hvort nýliðunar sé
þörf til að endurnýja og þar með
viðhalda bændastétt eða hvort þörf
sé á fjölgun í stéttinni.
„Þetta er pólitísk spurning. Við
sjáum að það er hægt að hagræða
talsvert mikið í búrekstri almennt
með því að fækka búum og stækka
þau. Ef sú stefna yrði tekin þyrfti
hugsanlega ekki að hafa jafn miklar
áhyggjur af nýliðun í greininni hvað
fjölda varðar en að sama skapi yrði
fjárfestingin sem nýir bændur yrðu
að leggja í enn meiri og hugsanlega
hamlandi að því leytinu. Á sama tíma
þyrfti að spyrja þeirrar spurningar
hvernig haga eigi búsetu í sveitum
landsins.“ /fr
Óli Þór Hilmarsson
Bernhard Bernhardsson
Helgi Haukur Hauksson
Borgarfjörður eystri, Staðarfjall í baksýn. Mynd / HKr.