Bændablaðið - 14.11.2013, Blaðsíða 28
Upp með Vestfirði!
Pantanir: 456-8181 - jons@snerpa.is
www.vestfirska.is
Vestfirzka verzlunin
Aðalstræti, Ísafirði
Vestfirska netverslunin
www.vestfirska.is
Bækurnar að vestan 2013
Kæru bændur, búalið og annað áhugafólk!
Við leyfum okkur að vekja athygli ykkar á nýju bókunum að
vestan en þær eru 11 og 3 endurprentanir. Okkar er ánægj-
an að auglýsa þær í Bændablaðinu að vanda. Bækurnar að
vestan eru allar prentaðar á Íslandi. Þær fást í bókaversl-
unum um land allt. Einnig er hægt að panta þær beint frá
okkur í síma 456-8181. Eða sendið okkur bara tölvupóst;
jons@snerpa.is Þá er einnig hægt að kaupa bækurnar í net-
verslun okkar; www.vestfirska.is
Bestu kveðjur sendum við til ykkar með vestanblænum og
hafið það sem best.
Vestfirska forlagið – Brekku í Dýrafirði
Hallgrímur Sveinsson
Frá Bjargtöngum
að Djúpi
Nýr flokkur 6. bindi
Ritstjóri Hallgrímur Sveinsson.
Bjargtangabækurnar, eins og almenningur kallar
þennan bókaflokk, hafa nú verið fastur liður í
jólabókaflóðinu í 16 ár. Efnið er mjög fjölbreytt
að vanda. Margir landskunnir og minna þekktir
fróðleiksmenn skrifa um vestfirskt mannlíf.
Fjöldi merkra og sögulegra ljósmynda sem flestar
hafa aldrei birst áður.
Vestfirðir og Vestfirðingar. Annað er það ekki!
Verð 5.900,- kr.
Allskonar sögur.
Fyrir börn á öllum aldri. Eftir Jón
Hjartarson og Ásu Ólafsdóttur.
Lesandinn er leiddur um í ríki náttúrunnar við
ýmsar aðstæður.
Hver er húsbóndi hænsnakofans og hvernig
brást hann við þegar fálkinn réðst á hænsna-
hópinn? Hvernig þakkaði urtan á sjávarströnd
Sigríði ljósmóður lífgjöfina?
Allskonar sögur er bók fyrir alla aldurshópa, sem
hafa gaman af ævintýrum og njóta þeirra í sam-
vistum við landið, sögurnar og eigin ímyndunar-
afl.
Verð 2.800,- kr.
Gróa.
Frásagnir úr heimasveit
eftir Jóa í Skáleyjum.
Jóhannes Geir Gíslason er fæddur 9. sept. 1938
í Skáleyjum. Hefur hann átt þar heima síðan.
Aldrei flutt lögheimili þó dvalið hafi annarsstaðar,
m. a. við búskap í Flatey í 10 ár. Eyjabóndinn
segir hér frá sjálfum sér og sínu fólki í Breiða-
fjarðareyjum og uppi á landi. Einnig samtíma-
mönnum og þeim sem gengnir eru fyrr, kjörum
þeirra og hugsunarhætti. Efnið er samansafn
margra ára.
Verð 3.900,- kr.
Hornstrandir
og Jökulfirðir
2. bók.
Hallgrímur Sveinsson tók saman.
Vestfirska forlagið hóf útgáfu ritraðar um Horn-
strandir og Jökulfirði á liðnu ári. Má kalla að um
sé að ræða gamalt vín á nýjum belgjum. Hér birtist
önnur bókin. Margir eftirminnilegir karakterar á
svæðinu koma við sögu. Óborganlegar eru frásagnirnar
af séra Magnúsi franska á Stað í Aðalvík, svo dæmi
sé nefnt. Þegar hann lýsti samgöngum innan sóknar
hjá sér sagðist hann heldur vilja fara fótgangandi til
helvítis en ríðandi norður að Horni! Hornstrandir
heilla. Það er ekki margbrotnara en það.
Verð 2.800,- kr.
Hjólabókin
Eftir Ómar Smára Kristinsson.
3. bók. Suðvesturland.
Vandaður leiðarvísir sem á sér enga hliðstæðu
hér á landi. Það er svo merkilegt með þessar
bækur hans Ómars Smára að þær henta öllum
hvort sem þeir eru gangandi, akandi, hlaupandi,
ríðandi eða hjólandi! Við auglýsum bækur okkar
yfirleitt ekki sem stórkostlegar, meiriháttar eða
snilldarverk. En, hjólabækurnar eru meistaraverk,
sagði kona nokkur hér fyrir vestan! Við verðum
að taka undir það.
Verð 2.400,- kr.
Sagan mín.
Æviminningar Sigrúnar Sigurðardóttur
frá Möðruvöllum.
Ritaðar af henni sjálfri.
Sigrún Sigurðardóttir fæddist 1929 á Möðru-
völlum í Hörgárdal. Foreldrar hennar voru þau
Sigurður Stefánsson, prestur og síðar vígslu-
biskup og María Ágústsdóttir cand. phil. Hún
giftist þrisvar og skildi jafn oft. Eignaðist 5
syni. Frásögnin, byggð á dagbókum hennar, er
öfgalaus og hlý þó að greint sé hispurslaust frá
erfiðu ölduróti á lífsleiðinni. Vestfirska forlagið
hefur gefið út bækur eftir marga höfunda sem
aldrei hafa áður birt staf eftir sig. Sigrún er ein af
þeim.
Verð 3.900,- kr.
Það góða sem
við viljum,
Den goda viljan eftir Ingmar Bergman.
Magnús Ásmundsson þýddi.
Í bókinni fjallar Bergman um ævi foreldra sinna
og dregur ekkert undan fremur en endranær.
Bókin er framhald af Fanny og Alexander. Hún
var gefin út í Svíþjóð 1991 af forlaginu Norstedts
og kemur nú út á íslensku í fyrsta sinn, með leyfi
Svía. Þó Ingmar Bergman sé hvorki Vestfirðingur né
af vestfirskum ættum svo vitað sé, skartar Vestfirska
forlagið honum nú. Ástæðan er eiginlega aðallega sú
að þýðandinn, Magnús Ásmundsson, gaf forlaginu
þýðingu sína.
Sagan hefst árið 1909. Fátækur guðfræðistúdent,
Henrik Bergman, verður ástfanginn af Önnu
Åkerblom, sem er komin af efnuðu fólki í Upp-
sölum. Eftir brúðkaupið verður Henrik prestur í
norður Svíþjóð. Eftir nokkur ár er Anna búin að
fá nóg af óhefluðu sveitalífinu. Hún snýr aftur til
Uppsala en Henrik dvelur áfram norður þar.
Verð 3.900,- kr.
Sveitin vestur
lengst í sjá.
Mannlífsþættir frá Rauðasandi eftir
Ara Ívarsson frá Melanesi. Úrval greina
um Rauðasand úr bókaflokknum Frá
Bjargtöngum að Djúpi.
Greinaskrif Ara Ívarssonar frá Melanesi á
Rauðasandi, sem birst hafa í bókum Vestfirska
forlagsins á undanförnum árum, hafa vakið verð-
skuldaða athygli. Ekki vitum við um marga hér
vestra sem gert hafa heimasveit sinni svo ítarleg
skil. Framhjá greinum hans verður ekki gengið
þegar menn vilja lesa sér til um Rauðasand frá
upphafi byggðar þar og fram á 20. öld.
Verð 3.900,- kr.
Ari Ívarsson
Sveitin vestur lengst í sjá
Mannlífsþættir frá Rauðasandi
Í norðanvindi
og vestanblæ.
Ljóðabók eftir Rúnar Kristjánsson á
Skagaströnd.
Rúnar er einn af þekktari hagyrðingum landsins.
Hann sýnir í þessari bók sinni, eins og þeim sem
áður hafa komið út, að hann heldur fullri tryggð
við þjóðlegan kveðskap, rím og stuðlasetningu.
Yrkisefni hans eru margvísleg sem fyrr og hafa
breiða tilvísun til mannlífs og sögu. Það er
enginn vafi á því að þessi bók á mikið erindi við
ljóðelska lesendur hvar sem er í landinu.
Verð 2.400,- kr.
Rúnar Kristjánsson
Skagaströnd
Í
norðan-
vindi
og
vestan-
blæ Mannlíf og
saga fyrir vestan.
Nýr flokkur. 2. bók.
Hemmi Gunn er aðal söguhetjan í bókinni. Hann
dvaldi mikið vestur á fjörðum enda átti hann
vinum að mæta á ættarslóðum, með fóstru sína
í fararbroddi. Að öðru leyti er þetta hefti stút-
fullt af allskonar efni. Bæði af léttara og alvarlegra
tagi. Sem sagt: Vestfirðingar í blíðu og stríðu, lífs
og liðnir. Í bókunum að vestan almennt má lesa
margt um skapgerð Vestfirðinga. Sem dæmi má
nefna kraft þeirra, seiglu og áræði, að ógleymdu
stoltinu og hjálpseminni. Manngildið metið í
dugnaði. Jákvæðir og ósérhlífnir, en vilja stundum
bæði sleppa og halda. Gálgahúmor og kaldlyndi
nokkuð áberandi. Handaverkin traust. Alltaf
tilbúnir að veita öðrum lið. Og gárungarnir segja
að þegar Vestfirðingar hætti að geta rifið kjaft, þá
séu þeir steindauðir, en fyrr ekki!
Verð 2.800,- kr.
Basil fursti
7. hefti.
Ókunnur höfundur (Niels Gustav
Meyn)
Út eru komin 7 hefti af hinum gamalkunnu
og spennandi ævintýrum Basil fursta og hans
trúfasta þjóns Sam Foxtrot. Yfir 80 hefti komu út
í gamla daga. Basil fursti þérar alla, jafnt glæpa-
kvendi sem lávarða. Þeir sem þurfa að kynna
sér þéringar ættu að lesa Basil fursta. Einnig í
rafbókum.
Hafið þér lesið Basil fursta?
Verð 950,- kr.
Á æskuslóðum við Djúp
Eftir Tryggva Þorsteinsson lækni.
Endurprentun.
Í bókinni segir Tryggvi frá æsku sinni og upp-
vexti í Vatnsfirði við Ísafjarðardjúp, en þar var
faðir hans prestur um langa hríð. Þá segir hann
frá menntaskólaárunum í Reykjavík. Þetta eru
hugljúfar og vel skrifaðar minningar og jafnframt
merkileg heimild um lífið á Vatnsfjarðarstað og
við Ísafjarðardjúp á uppvaxtarárum höfundar.
Verð 3.400,- kr.
Þrautaverkefni fjöl-
skyldunnar.
Jólahefti.
Björk Gunnarsdóttir tók saman.
Endurprentun.
Alls konar þrautir, gátur, krossgátur, völundar-
hús, sjónhverfingar og fleira fyrir alla fjölskyld-
una. Kemur að góðum notum við margs konar
tækifæri.
Verð 1.700,- kr.
Life and History in the
Westfjords of Iceland
1. bók.
Endurprentun.
Valdar frásagnir úr Dýrafirði á ensku eftir ýmsa
höfunda. Efni sem hefur birst í Bókunum að
vestan. Eiginlega mjög sérstök bók. Heppileg gjöf
til vina erlendis.
Verð 2.400,- kr.