Læknablaðið - 01.03.1960, Qupperneq 29
LÆKNABLAÐIÐ
/
veiki, þ. e. a. s. efni þessi liöfðu
eingöngu verið notuð vegna
fysiologiskrar verkunar þeirra,
með öðrum orðum sem stað-
göngu-meðferð. Hench hefur
hins vegar fyrstur manna bent
á, hver not megi hafa af hinum
farmakologisku verkunum.
Þar með var lagður grundvöll-
ur að corticosteroid-meðferð
við fjölmörgum sjúkdómum.
Nokkru síðar var farið að nota
hydrocortison á sama hátt og
cortison. Efnið hafði verið
unnið úr nýrnahettum árið
1937, og þá gefinn hókstafur-
inn F, en unnið úr einfaldari
samböndum árið 1950.
Mikið hafði nú áunnizt, en
leit að enn betri efnum var þó
haldið áfram, því að talsverð-
ar aukaverkanir fylgja jafnan
notkun cortisons og hvdro-
cortisons, einkum langvarandi
notkun þeirra. Þýðingarmikill
árangur náðist árið 1953, er
flúoratóm var bundið hydro-
coa-tison-áameindinni. Það
sýndi sig, að efnið, sem þannig
fékkst, fluúorohydrocortison,
hafði margfaldan styrkleika á
við sjálft hydrocortison. Eink-
um hafði uppgötvun þessi þýð-
ingu fyrir þá sök, að nú var
sýnt, að með því að gera tiltölu-
lega smávægilegar breytingar á
steroid-sameindunum, fengust
ýmiss konar tilbrigði á áhrif-
um og styrkleika efnanna. Hins
vegar reyndust áhrif flúoro-
hydrocortisons á sölt likamans
svo mikil, að notagildi þess var
mjög takmarkað.
En árið eftir, 1954, tekst að
mynda prednison, sem þá var
nefnt metacortandracin, með
því að gera breytingu á corti-
son-sameindinni og á sama liátt
fæst prednisolon, eða meta-
corlandralon, með breytingu
á hydrocortison-sameindinni.
Efni þessi hafa ýmsa kosti um-
fram móðurefnin. Þau eru u.
þ. b. 4 sinnum sterkari, en
aukaverkanir við notkun
þeirra jafnframt miklu minni.
Eru prednison og líi’ednisolon
nú þau corticosteroid, sem
mest eru notuð sem lyf. Hins
vegar eru fysiologisk áhrif
þeirra lítil, og eru þau því ekki
notuð við meðferðina á Addi-
sons-veiki.
Sl. 2—3 ár hafa enn bætzt
við ný efni, sem hafa svipuð
áhrif og prednison. Helzt eru
triamcinolon, sem er flúoro-
hvdroxy-prednison, og dexa-
methason, sem er metylpredn-
ison, þ. e. a. s. bæði þessi efni
hafa fengizt með því að brevta
prednison-sameindinni.
Loks er að geta aldosterons,
eða electrocortins. Efni þetta
vann Svisslendingurinn Simp-
son úr berki nýrnahettnanna
árið 1953. Að því er bezt verð-
ur vitað, er liér komið hið nátt-
úrlega hormón, er stjórnar salt-
og vatnsskiptum líkamans.
L