Læknablaðið - 01.03.1960, Blaðsíða 60
34
LÆKNABLAÐIÐ
oft í för með sér svefnsýki eða
syfju ásamt sljóvgun meðvit-
undar og eftirtektar. í dag-
draumum, þegar menn eru ut-
an við sig, í hugleiðslu, inn-
blæstri, sefjun, dáleiðslu og
svefni, á þetta sér líka stað sem
eðlilegt stundarfyrirbæri.
Boð frá miðbeiladreifinni
berast um sjónarhólinn upp og
út að heilaberkinum. Þaðan
snúa þau aftur um barkar- og
hólsbrautirnar lil sjónarhóls-
ins. Þar auka þau næmleika
kjarna hans fyrir taugaboðum,
sem berast að honum um til-
finningabrautir mænunnar
(traetus sensorii).
Án barkar- og sjónarhóls-
brautanna getur eftirtekt og
meðvitund ekki átt sér stað í
venjulegri merkingu. Ef þær
eru skertar, hverfur eða minnk-
ar meðvitund og eftirtekt á
sársauka, samanber afskipta-
leysi eða minnkaður tilfinn-
inganæmleiki sjúklinga, sem
gerður hefur verið á beila-
skurður (prefrontal leuco-
tomi).
Sú uppgötvun, að miðheila-
dreifin og miðheilinn séu
dreifð millifærslukerfi tilfinn-
inganna, hefur liaft veruleg
áhrif á tilraunastarf og rann-
sóknir á tauga- og geðsjúk-
dómum. Megináherzla er nú
lögð á rannsóknir svæða neð-
an heilabarkarins, en minni á
rannsóknir á heilaberkinum.
Einn helzti brautryðjandinn
i þessum rannsóknum, Hess
(8), hefur með raförvun á rófu-
kjarna (nucleus caudatus) í
köttum, öpum og mönnum
framkallað ástand, sem líkist
svefni. Raförvun hvitu rákanna
í sjónarhólnum hefur einnig í
för með sér breytingar á lieila-
riti, sem tekið er samtímis.
Koma þá fram hin sérkenni-
legu heilaritsform svefnsins.
Hins vegar hefur raförvun
á miðheiladreifina neðst í mið-
lieilanum þau áhrif, að fram
koma heilaritsform vöku-
ástands.
Þannig virðast vera tvö að-
greind svæði neðan barkar,
svefns og vöku, og verkar ann-
að slævandi, en bitt örvandi
á heilabörkinn.
Nýlega (1958) tókst að ein-
angra taugunga í miðheila-
dreifinni með svo víðtæka
taugaanga (dendrites), að þeir
ná alla leið upp í lieilabörk-
inn. Þeir eru því ekki háðir
tengitaugum, en geta örvað
heilabörkinn milliliðalaust (9).
Nýlegar rannsóknir hafa og
leilt í ljós, að sum neðanbark-
arsvæðin gegna starfa, sem
álitið bafði verið fram að
þessu, að beilabörkurinn ann-
aðist.
Enn fremur hefur verið sýnt
fram á, að miðheiladreifin
verkar sem nokkurs konar sía
fyrir hækkandi taugaboð á leið
þeirra lil heilabarkarins (10).
Með því að nota hin nýju ró-