Læknablaðið - 01.03.1960, Blaðsíða 63
LÆKNABLAÐIÐ
37
rœnt og starfrænt — á allmörg
fjarskyld efni hafa margsinn-
is verið staðfest.
Vegna þess hve sundurliðun
ACH er ör í taugakerfinu, liafa
rannsóknir béinzt aðallega að
hlutverki þess í leiðslu eða
flutningi taugahoðanna. Hins
vegar finnst það í flestum dýra-
og jurtavefjum, og bendir það
til þess, að ACH Iiafi almennt
gildi fvrir efnaskiptin.
ACH-innihald heilans er
undir starfsemi hans komið.
Það eykst i livíld og svefni, en
minnkar við áreynslu, einkum
þegar hún verður mikil og lang-
varandi.
ACH-inniliald heilans virð-
ist þannig standa i öfugu hlut-
falli við starfsemi hans. 1 rott-
um evkst það í svæfingu og
svefni, en minnkar mikið við
æsingu, raförvun og krampa.
Hæfileiki heilans lil að byggja
upp ACH minnkar töluvert eft-
ir langvarandi og mikla
áreynslu (stress). Skýrir það ef
til vill að nokkru leyti hinn
góða árangur dr. Helga Tóm-
assonar í meðferð oflætissjúk-
dóma með ACII, en þar er um
mikla og langvarandi spennu
að ræða. ACH, sem gefið er
með innspýtingu í vöðva, eyð-
ist að sjáífsögðu fljótt aftur,
en nokkuð af því varir þó í
bundnu formi í heilafrumun-
um. Ein einasta innspýting af
ACTII (adreno-cortico-tropic
hormon) eykur ACH- og am-
monium-jóna-magn heilans
(16), og langvarandi gjöf af
ACTH eykur einnig hæfni heil-
ans til að mynda ACH (17).
Rannsóknir hafa sýnt, að
svæði í heila, sem valda floga-
veiki, hafa misst hæfileikann
til að binda ACH. Með því að
bæta asparigin- og glutamin-
sýru við þennan vef eykst
liæfni hans til að binda ACH.
Af því sést, að allflókin efna-
skipti eru samfara bindingu
ACIi í Nissl-kornunum. Ace-
tjdphosphat verkar sem gjafi
(donor) i ACII-uppbygging-
unni. Það fosforylerar adenyl-
sýru, en hana leysir ribonucl-
einsýran úr læðingi, og er það
mikilvægt hlutverk i efnaskipt-
um taugunganna.
Lárus Einarsson (18) kynnti
fyrstur „gallocyanin chrom-al-
um“ litaraðferðina árið 1934.
Efni þetta sameinast ribo-
nuclein- og desoxyribonuclein-
sýru. Á þann hátt reyndist
unnt að ákvarða magn sýrunn-
ar í hinum mismunandi frumu-
hlutum. Aðferð þessi hefur
mjög auðveldað mat starf-
rænnar hæfni frumnanna.
Efnið i Nissl-kornunum er
aðallega ribonuclein-sýra. Á
meðan á endurhleðslu tauga-
frumnanna (neurocytogensis)
stendur, kemur það frá kjarn-
anum og streymir út um
kjarnahimnuna út i frymið.
Jensen (19) álitur aukningu
ribonuclein-sýrunnar i frum-