Læknablaðið - 01.03.1960, Side 43
LÆKNABLAÐIÐ
21
verkun eggjahvítuefna úr
berklasýklum á ofnæman vef.
Þá eru þau að sjálfsögðu gagn-
leg á sinn hátt, þegar um skort
náttúrlegra steroida er að ræða
lijá berklasjúklingum, en slikt
mun eiga sér stað oftar en al-
mennt liefur verið talið til
þessa. Með því að nota isonia-
zid, streptomycin og/eða para-
amino-salicylsýru jafnhliða
steroidum, má einnig að veru-
legu leyti vega á móti þeim
hættum, sem notkun steroida
annars hefur í för með sér hjá
berklasjúklingum. I>eim fer
því stöðugt fjölgandi, sem
telja steroid eiga ákveðnu
lilutverki að gegna við með-
ferð á berklaveiki. Við mening-
itis tuberculosa hefur reynzt
mjög vel að nota steroid sam-
hliða venjulegri anti-tuber-
kulös meðferð. Með því er
dregið úr toxemiu og bata-
horfur auknar, en einnig
minnkar hæltan á fihrosis og
samvöxtum í heilahimnum.
Sama máli gegnir um pericard-
itis, pleuritis og peritonitis
tuherculosa. Til þess að árang-
ur verði, þarf að byrja með-
ferð fljólt, eða áður en fibrosis
liefur myndazt að ráði, því að
steroid liafa engin áhrif á þá
fibrosis, sem fyrir er. Þá hafa
steroid verið notuð við tuber-
culosis miliaris og bráðum
lungnaherklum. Óhætt mun að
fullvrða, að sá ótti, sem var al-
mennur áður fvrr, að steroid
myndu valda örri útbreiðslu
herklasýkingar í líkamanum,
en þetta var byggt aðallega á
dýratilraunum, hefur ekki við
rök að styðjast.
llöfuðreglan um notkun
steroida er sú að nota þessi
Ivf aldrei nema að vel athug-
uðu máli, og þá því aðeins, að
önnur venjuleg meðferð hafi
hrugðizt, og einungis við þeim
sjúkdómum eða kvillum, sem
reynslan hefur sýnt, að steroid
verka vel á. Nauðsynlegt er að
fylg'jasf sérstaklega vel með
hverjum þeim sjúklingi, sem
fær steroid í einhverri mynd.
Sérstaka varúð þarf að viðhafa
gagnvart sjúklingum, sem eru
tæpir á geðsmunum, því að ein
af alvarlegustu aukaverkun-
um steroida eru geðlruflanir
ýmiss konar, og hættan meiri
ef sjúklingurinn er tæpur fyr-
ir. Þá þarf að gæta varúðar
gagnvart sjúldingum, sem
hafa eða hafa liaft maga- eða
skeifugarnarsár. En steroid
örva, eins og áður getur, mynd-
un magasýru, og geta valdið
maga- og skeifugarnarsári. Af
þessum sökum er ráðlegt að
gefa steroid ávallt með mat,
gefa með þeim antacida eða
jafnvel setja sjúklinginn á
sérstakt mataræði. Þá má eklci
gefa berklasjúklingum steroid,
nema um leið séu gefin lyf
gegn berklum. Áður er getið
illra áhrifa steroida á herpes
simplex og ýmsa veirusjúk-