Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1961, Side 24

Læknablaðið - 01.06.1961, Side 24
56 LÆKNABLAÐIÐ 2. mynd. — Contusio cerebri. Misstórir marblettir á víð og dreif í heila hægra megin. eftir á, því að tilskiliö er, að sjúklingurinn nái sér að fullu. Elvki er vitað, hvað gerist í heilanum við commotio, en menn hafa rejmt að skýra það á ýmsa vegu. Sumir lialda, að heilinn hristist, að hann liristi snöggvast úr skorðum sameind- ir (molekul) heilafrumnannaell- egar tengslin á milli frumnanna (synapsis). Aðrir halda, að yfir- liðið stafi af snöggri þrýstings- hækkun i heilabúinu; fari þrýst- ingurinn upp fyrir sjT.stoliskan þrýsting blóðsins, þó að ekki sé nema brot úr sekúndu, nægi það til yfirliðs. Hafa þeir sýnt þetta á hundum. Vitað er, að heilinn er mjög viðkvæmur fyr- ir súrefnisskorti, en hvort hann er svo viðkvæmur, að leiftur- snögg ischaemi geti valdið yfir- liði, eins og sumir telja, skal ósagt látið. Oft koma uppköst og stund- um svimi eftir yfirliðið og nær alltaf höfuðverkur, en allt lag- ast þetta á fáum dögum. Með- ferðin er rúmlega, þar til sjúkl- ingurinn er óþægindalaus. 1 varúðarskyni er hann látinn fasta þurrt framan af. Næsti flokkur er oedema trau- maticum, þ. e. heilabjúgur, sem blýzt af áverka. Pathologiskt er myndin skýr, en kliniskt geta mörkin milli bjúgs og hrist- ings verið óglögg, enda væntan- lega aðeins um stigsmun á áverkanum að ræða. Áverkinn er meiri en við commotio, e.t.v. lengri ischaemia á heilafrum- um og hærri þrýstingur i heila- búi.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.