Læknablaðið - 01.06.1961, Blaðsíða 30
62
LÆKNABLAÐIÐ
5. mynd. — Innanbastsblæðing. Hér hefur stykki verið tekið úr kúpunni
og bast opnað. Blóðhlaupið bungar fram í gatið á dura.
í gegnum foramen spinosum,
liggur út og fram fleygbeins-
vænginn og skiptir sér innan á
gagnauganu í tvær aöalgreinar,
sem dreifa sérupp eftirkúpunni.
Oftast eru þessar blæðingar í
regio temporalis; þar skaddast
æð við það, að kúpan springur.
Blóðið dælist úr æðinni, losar
bast frá beini og veldur þrýst-
ingi.
Sígilda myndin er þessi: Mað-
ur fær höfuðhögg, og það líður
yfir hann; liann raknar skömmu
seinna úr rotinu, er sæmilega
hress og fer heim. Smám sam-
an sækir á hann sljóleiki og
rugl. E. t. v. fær hann krampa
eða hemiparesis, sljóleikinn
eykst og verður að meðvitund-
arleysi, sem smádýpkar og end-
ar í dái (coma) og andardrátl-
arlömun. Hve fljótt þetta geng-
nr, fer eftir því, hve stór æðin
er, sem rifnar.
Við þessa velþekktu mynd er
það eilt að athuga, að sjúkling-
urinn raknar ekki ætíð úr rot-
inu. Oft fylgir þessu annar
áverki, sem leiðir athyglina frá
blæðingunni, og einkennin, sem
sjúklingurinn hefur, eru í raun
og veru aðeins einkenni um
vaxandi þrýsting í heilabúi.
Þegar hið sígilda dæmi ligg-
ur fyrir, er sjaldan um að vill-