Læknablaðið - 01.03.1963, Síða 69
LÆKNABLAÐIÐ
35
fimm fjölskyldum, sem lýst hef-
ur verið með „partiel form af
Pelger anomali“. „Partiel form-
ið“ af afbrigðinu einkennist, eins
og nafnið ber með sér, af því, að
aðeins ákveðinn hundraðshluti
af hvítkornunum eru Pelger-
hvítkorn. Ég dreg það í efa,
hvort rétt sé að flokka Stodt-
meister-frumurnar og „partiel
formið“ undir Pelger-afhrigði.
Erfðamáti „partiel formsins“ er
óviss. Ekki er öruggt, að það
liafi fundizt í fjölskyldum með
Pelger-afbrigði, og í dýratil-
raunum virðist það óskylt Pel-
ger-afhrigði (Nachtsheim 1942,
1950, Harm 1955).
í ákveðnum sjúkdómum, t. d.
hvitblæði, sjást stundum breyt-
ingar, sem líkjast Pelger-af-
hrigði og eru meðal annars kall-
aðar „pseudo Pelger-afbrigði“.
Yfirleitt eru þær auðþekktar frá
venjulegu Pelger-afbrigði. Enda
þóttrendurkjarnanna í neutrofil
Pelger-hvitkornunum séu mjög
sléttar, má stundum sjá á þeim
óreglulegar litnistotur og kyn-
bundna trommupinna (sex-
specific drumsticks). Með tilliti
til þessa hef ég rannsakað hlóð-
útstrok frá 30 konum, með og
án Pelger-afhrigðis, í þremur
fjölskvldum.
Af töflu 2 sést, að kynbundn-
ir trommupinnar og aðrar litn-
istotur finnast miklu sjaldnar
hjá konum með Pelger-afhrigði
en hjá systrum þeirra og frænk-
um, sem ekki hafa afbrigðið.
Sýnir þetta, að kyn einstakl-
inga með Pelger-afbrigði er ekki
unnt að ákveða með rannsókn
á blóðmyndinni einni. Niður-
stöður þessar slaðfesta fyrri
rannsóknir, en ber þó ekki sam-
an við sumar þeirra varðandi
tíðni kynbundnu trommupinn-
anna. Sumir höfundar finna þá
ekki í Pelger-hvítkornunum
(Romatowski, Tolksdorf & Wie-
demann 1955, Etscheverry 1962,
Sken'dzel & Hoffmann 1962).
Hjá mongoloid einstaklingum
séstfækkunflipa í neutrofil livít-
kornunum. Rannsóknir á litn-
ingum (krómósómum) þeirra
TABLE 3.
Chromosome counts in four different individuals with the
heterozygous form of the Pelger anomaly.
Chromosome counts. Total
44 45 46 47 48 eells
Bone marrow
Sex
Individual.
12 12 F Fam. 9, II.—7
10 1 13 F Fam. 15, II.—2
19 23 F Fam. 1, VI.-70
14 14 F Fam. 2, IV.-52
11 12 F Fam. 9, II.—7
Blood cells