Læknablaðið - 01.03.1963, Blaðsíða 81
LÆKNABLAÐIÐ
45
FRÁ LÆKMM
Sigmundur Magnússon, læknir,
var hinn 27. des. 1962 skipaður
dósent í blóðsjúkdómarannsóknum
við læknadeild Háskóla íslands frá
1. des. 1962 að telja.
Valtýr Bjarnason, læknir, hefur
verið skipaður dósent í svæfingum
og deyfingum við læknadeild Há-
skóla íslands frá 1. des. 1962.
Þorlákur Sœvar Halldórsson,
cand. med., hefur hinn 27. febrúar
1963 fengið leyfi til þess að stunda
almennar lækningar hér á landi.
Halla Þorbjörnsdóttir, cand.
med., hefur hinn 8. marz 1963
fengið leyfi til þess að stunda al-
mennar lækningar hér á landi.
Haukur Jónasson, cand. med.,
hefur hinn 8. marz 1963 fengið
leyfi til að stunda almennar lækn-
ingar og frá sama degi leyfi til
þess að starfa sem sérfræðingur
í lyflæknisfræði og meltingarsjúk-
dómum.
ísleifur Halldórsson, cand. med.,
hefur hinn 8. marz 1963 fengið
leyfi til þess að stunda almennar
lækningar hér á landi.
Jóhann Gunnar Þorbergsson,
cand. med., hefur hinn 8. marz
1963 fengið leyfi til þess að stunda
almennar lækningar hér á landi.
Magnús Óttar Magnússon, cand.
med., hefur hinn 8. marz 1963 feng-
ið leyfi til þess að stunda almenn-
ar lækningar hér á landi.
Snorri Jónsson, læknir, hefur
hinn 8. marz 1963 fengið leyfi til
þess að starfa sem sérfræðingur
í barnalækningum.
Sverrir Bjarnason, cand. med.,
var settur héraðslæknir í Hvamms-
tangahéraði frá 1. marz til 25. maí
1963, en Frosti Sigurjónsson 'hætti
störfum þar.
Halldór Halldórsson, cand. med.,
settur héraðslæknir í Reykhóla-
héraði, verður enn settur héraðs-
læknir þar 1. marz til 1. júlx 1963.
Einnig verður hann settur héraðs-
læknir í Flateyjarhéraði sama
tíma.
Þorsteinn Sigurðsson, héraðs-
læknir í Norður-Egilsstaðahéraði,
var settur héraðslæknir í Bakka-
gerðishéraði frá 1. marz 1963 og
þar til öðru vísi verður ákveðið,
en Haukur Magnússon, héraðs-
læknir í Austur-Egilsstaðahéraði,
leystur frá því starfi.
Úlfur Ragnarsson, héraðslæknir
í Kirkjubæjarhéraði, hefur fengið
lausn frá embætti frá 18. maí 1963
að telja.
Lárus Helgason, læknir, hefur
hinn 14. marz 1963 fengið leyfi til
þess að starfa sem sérfræðingur
í tauga- og geðsjúkdómum.
Lars Moe Haukeland, settur hér-
aðslæknir í Vopnafjarðarhéraði,
var enn settur héraðslæknir í því
héraði frá 18. sept. 1962 til jafn-
lengdar 1963.