Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.08.2011, Síða 4

Fréttatíminn - 12.08.2011, Síða 4
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Úrkomulaust og mjög víða sólríkt á landinu. Hægur vindur, en Hafgola að deginum. Höfuðborgarsvæðið: Hægviðri eða Hafgola og léttskýjað meira skýjað á laninu, en áfram víðast þurrt. fer að anda af norðaustri. strekkingur suðaustanlands. Höfuðborgarsvæðið: Hægviðri og skýjað með köflum og sæmilega Hlýtt. spáð er rigningu eða sudda austanlands, en annars þurrt. víða dálítill blástur. Höfuðborgarsvæðið: svipað veður, skýjað með köflum og milt í veðri. þurrt landinu fram á sunnudag enn er lítið lát á sumarblíðunni, sérstaklega suðvestanlands. í dag er spáð léttskýjuðu og hægum vindi um nánast allt land. Hlýtt er á daginn, en hitinn fellur allmikið í ágúst- húminu. Á laugardag verður lægð fyrir sunnan og suðaustan land. með henni blæs af norðaustri, fyrst suðaustanlands á laugardag og víða á sunnudag. Á sunnudag er spáð rigningu austanlands og ekki ólíklega einnig norðaustanland síðar um dag- inn. reikna má með að bjart verði eða skýjað með köflum annars staðar á laugardag og sunnudag og víðast alveg þurrt. 15 14 16 14 15 14 12 11 10 15 15 10 10 9 13 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is miðborgin okkar! frábært veður í miðborg- inni alla helgina. Hundruð verslana og veitingahúsa bjóða vörur og þjónustu. Sjá nánar auglýsingu á bls. 18-19 og á www.miðborgin.is þráinn skilyrðir stuðning sinn þráinn bertelsson, þingmaður VG, hefur lýst því yfir að hann muni ekki styðja fjárlögin nema leyst verði úr fjárhagsvanda Kvikmyndaskóla Íslands. Það er engin launung á því, sagði þingmaðurinn í samtali við Ríkisútvarpið, að ég er mjög ósammála menntamálaráðherra, sem nú er í fríi, um alla stefnu í garð kvikmyndagerðar- innar sem hefur orðið að sæta meiri niðurskurði en nokkur önnur grein í menningunni. Þráinn segist hafa fengið góðan hljómgrunn hjá jóhönnu sigurðardóttur for- sætisráðherra og svandísi svavarsdóttur, starfandi menntamálaráðherra, og trúir ekki öðru en málinu ljúki með samningum. Hann muni þó standa við orð sín og samþykkja ekki fjárlög nema framtíð skól- ans verði tryggð. meirihluti ríkisstjórnarinnar veltur á atkvæði Þráins. þuríður backman, þingflokks- formaður VG og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, hefur ekki viljað tjá sig um afstöðu Þráins. sama gildir um steingrím j. sigfússon, formann flokksins. Nemendur og starfsmenn Kvikmynda- skólans mótmæla daglega á austurvelli og hyggjast gera það þar til málið er í höfn. - jh Innlend verðbréfaeign hækkaði en erlend lækkaði Hrein eign lífeyrissjóða var 2.021 milljarður króna í lok júní og hækkaði um 14,9 milljarða króna í mánuðinum eða um 0,7%, að því er fram kemur í tilkynningu Seðlabanka Íslands. innlend verðbréfaeign nam 1.445 milljörðum króna og hækkaði um 6,4 milljarða króna. erlend verð- bréfaeign lækkaði um 5,8 milljarða króna og nam 490,8 milljörðum króna í lok mánaðarins. sjóður og bankainnistæður námu 151,1 milljarði króna og hækkuðu um 11,9 milljarða króna í lok júní. vert er að taka fram, segir Seðlabankinn, að enn er nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna. -jh Akureyringar gleðjast yfir endurvöktum togaranöfnum Útgerðarfélag Akureyringa hefur nú tekið við þeim tveimur togurum sem fylgdu með í kaupum Samherja hf. á eignum Brims á akureyri. Sólbakur EA 1 fær aftur sitt gamla nafn, Kaldbakur EA 1, og Mars RE 305 fær einnig sitt fyrra nafn, Árbakur EA 5, að því er fram kemur á vef akureyrar- bæjar. kaldbakur fer í slipp hjá Slippnum á Akureyri og gert er ráð fyrir að skipið haldi til veiða í byrjun september. ekki er fyrirhugað að Árbakur fari til veiða á næstunni. -jh Hamri lyft á ný Bygginga- og verktakageirinn fór einna verst út úr efnahagshruninu hér á landi. eftir margra ára þenslutímabil lögðust byggingar víða alveg af. Það þykja því tíðindi ef hamri er lyft á nýjan leik. Héraðs- blaðið Skessuhorn greinir frá því að meðal þeirra erinda sem tekin voru fyrir á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í vikunni var umsókn frá sigurði H. einarssyni um byggingarlóð við Arnarflöt 3 á Hvanneyri. björn bjarki þorsteinsson, formaður byggðarráðs, sagði í viðtali við blaðið að þetta væri ein fyrsta lóðaúthlutun í sveitarfélaginu eftir hrun og virkilega ánægjulegt að fólk væri farið að huga að byggingu íbúðarhúsnæðis. - jh Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir, sem steig fram fyrr á þessu ári og lýsti kynferðislegu ofbeldi Gunnars Þorsteinssonar í Krossinum á hendur henni í Fréttatímanum, hefur skrifað opinbert svarbréf til Gunnars þar sem hún gerir upp mál sitt og sjö annarra kvenna gegn honum. Lögreglurannsókn á meintum brotum Gunnars var eins og kunnugt er hætt fyrir skömmu. Í bréfinu sem Ólöf Dóra skrifar, með samþykki hinna sjö kvennanna sem hafa haldið því fram að Gunnari hafi brotið gegn þeim, svarar Ólöf Dóra í nokkrum liðum þeim ummælum sem Gunnar hefur látið falla á opinberum vett- vangi eftir að lögreglurannsókn á málinu var hætt. Í bréfinu segir meðal annars: „Gunnar, þú veist manna best hvað þú gerðir mér. Þú misnotaðir vald þitt og stöðu sem andlegur trúarleiðtogi minn til á brjóta á mér. Þú áreittir mig munnlega frá 15 ára aldri og fórst með hendur þínar inn á brjóst mín og kynfæri, innanklæða þegar ég var enn undir tvítugu. Þú fórst með fingur upp í leggöng mín. Þetta veistu mætavel, en leyfir þér samt sem áður að gera lítið úr brotum þínum í fjölmiðlum. Er það lítið brot að misnota stöðu sína á þennan hátt gagn- vart ungri og óspjallaðri stúlku, sem treysti þér og leit upp til þín sem andlegs trúarleiðtoga? Er það lítið brot að biðja mig um að hafa samfarir við þig á gólfi samkomusalar Krossins ( jafn- vel þó þú hafir ekki fengið vilja þínum framgengt)?“ - óhþ Er það lítið brot að misnota stöðu sína á þennan hátt gagnvart ungri og óspjallaðri stúlku Ólöf Dóra Bartels jónsdóttir. Krosskona svarar Gunnari e ngar persónulegar ábyrgðir eru fyrir lánum 1998 ehf. Bankinn mun ganga eins langt og lög heimila við að inn-heimta ábyrgðir þeirra félaga sem eru í ábyrgðum fyrir 1998. Næstu skref verða tekin á haustmánuðum eða fyrri hluta vetrar,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, upplýsingafulltrúi Arion banka í samtali við Fréttatímann þegar borið er undir hana í hvaða farvegi mál fyrrum eigenda Haga eru – eigenda sem voru í tugmilljarða sjálfskuldarábyrgðum fyrir 1998 ehf, félagið sem átti Haga. Svör Iðu láta ekki mikið uppi en eftir því sem Fréttatíminn kemst næst mun bankinn fara á eftir eigendum 1998, Fjárfestingafélaginu Gaumi, sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu hans, Eignarhaldsfélaginu ISP, sem er í eigu Ingibjargar Stefaníu Pálmadóttur, eigin- konu Jóns Ásgeirs, og Bague SA, sem er að stærstum hluta í eigu Hreins Loftssonar, þegar allur 95,7 prósenta hlutur bankans í Högum er seldur. Nú þegar hefur 34 prósent hlutur verið seldur til fjárfesta- hóps sem Árni Hauksson og Hallbjörn Friðrik Karlsson fara fyrir. Arion banki yfirtók 1998 ehf og þar með Haga á haustmánuðum 2009 og endanlega sumarið 2010 þegar bank- inn var búinn að hafna tilboðum frá fyrri eigendum um að koma með nýtt hlutafé inn í reksturinn. Gerður var kyrrstöðusamningur við hluthafa 1998 á svipuðum tíma sem rann út eins og Fréttatiminn greindi frá í febrúar á þessu ári. Ólíklegt þykir að félögin þrjú geti staðið við sjálfskuldarábyrgðina. oskar@frettatiminn.is  sjálFskuldarábyrgð tugmilljarðar bíða rukkunar Arion á eftir fyrri eigendum þegar Hagar hafa verið seldir arion banki þarf að bíða eftir að Hagar verði seldir að fullu til að geta gengið að fyrrum eigendum smásölurisans. félög í þeirra eigu voru í tugmilljarða ábyrgðum. jón Ásgeir jóhannesson er stærsti eigandi gaums sem var aftur stærsti eigandi 1998. Nítjánda fjölskyldustaður Lunch, brunch og óviðjafnanlegt kvöldverðarhlaðborð Nítján da fjöl skyldu staður þar sem börnin borða frítt í s umar 4 fréttir Helgin 12.-14. ágúst 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.