Fréttatíminn - 12.08.2011, Qupperneq 32
Fært til bókar
Stærsta ráðgátan í þessum heimi
Ummæli söngvarans Páls Óskars Hjálm-
týssonar í kvöldfréttum RÚV síðastliðinn
laugardag um Gay Pride, fordóma og hvíta
miðaldra karla fóru fyrir brjóstið á ein-
hverjum sem töldu að þar væri verið að
mótmæla fordómum með fordómum. Þar
sagði söngvarinn ríka, hvíta, gagnkyn-
hneigða hægrisinnaða karlmenn í jakka-
fötum vera nánast eina samfélagshópinn
sem fengi að vera í friði fyrir níði og hatri.
Bloggheimar fóru af stað og sýndist sitt
hverjum. Andri Snær Magnason rithöf-
undur blandaði sér í þær umræður og
sagði m.a. á Facebook síðu sinni: „Móðg-
andi þessi ummæli Palla Óskars. Íhalds-
samir menn í jakkafötum ættu að stofna
stjórnmálaflokk og fá fulltrúa á Alþingi.
Kominn tími til.“ Ekki verður mat lagt á
það hvort rithöfundurinn var að gantast
eður ei en Össur Skarphéðinsson var
fljótur til svara, að því er fram kemur á
vefritinu Smugunni. „Guð forði mér frá
þeim flokki,“ sagði Össur
Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra þegar blaðamaður
spurði hvernig honum litist
á sérstakan íhaldskarla-
flokk á þingi. Hann
segir Pál Óskar
Hjálmtýsson hafa
hitt naglann á
höfuðið. Það
sé fjarstæða
að tala um
ummæli hans
sem fordómafull. Þráinn Bertelsson,
þingmaður Vinstri grænna, segir enga þörf
á að stofna íhaldskarlaflokkinn, ef marka
má sömu heimild. „Þessi flokkur er og hef-
ur verið til lengi og heitir Sjálfstæðisflokk-
ur,“ segir Þráinn Bertelsson, þingmaður
VG. „Að fullt af fátækum og launafólki kjósi
þann flokk er undarlegt. Að sjá svo konur í
flokknum sem ég hélt að væru ljóngáfaðar
er stórundarlegt. Margt er annars óskiljan-
legt í þessum heimi. Sjálfstæðisflokkurinn
er kannski stærsta ráðgátan í þessum
heimi,“ segir Þráinn sem telur umræðu
um ummæli Páls Óskars til marks um að
menn séu óvanir að heyra sannleikann
umbúðalaust.“
Stuð á Langa Manga
Fyrir kemur að skemmtistöðum þarf að
loka vegna ölvunar og óláta gesta. Hitt
mun fátíðara að slíkum stöðum sé beinlínis
lokað vegna ölvunar starfsfólksins sjálfs.
Til þess ráðs varð lögreglan á Vestfjörðum
þó að grípa aðfaranótt síðasta sunnu-
dags á skemmtistaðnum Langa Manga
á Ísafirði, að því er vefur Bæjarins besta
greinir frá. Lögreglan var við eftirlit þegar
hún varð þessa vör. Staðurinn var rýmdur
vegna ölvunarástands starfsmannanna
og honum lokað. Langi Mangi hefur þó
verið opnaður aftur fyrir skemmtana-
glaða gesti og verður opinn út sumarið en
leggst í vetrardvala eftir tæplega fimm
vikur. Þyrstu starfsmennirnir verða því
að þrauka þessar vikur, ófullir að kalla,
handan við barborðið.
Eigum við að trúa henni ...
„Leggjum ekki til hærri skatt á mat“
Þingmannahópur stjórnarflokkanna sem
hefur unnið að undirbúningi fjárlaga,
hefur ekki lagt til að virðisaukaskattur
á matvæli verði hækkaður. Þetta sagði
Oddný Harðardóttir, formaður fjár-
laganefndar Alþingis.
... eða honum?
„Segir rætt um hækkun matvælaskatts“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknar-
flokksins, segir það
fráleitt að hækka
virðisaukaskatt á
matvæli. Hann
fullyrðir að þetta
sé nú rætt í fullri
alvöru innan ríkis-
stjórnarinnar til að
vinna á hallanum á
rekstri ríkissjóðs.
Ný tegund gúmmí-Tékka?
„Þekktir fyrir glannaskap við akstur“
Bílstjórar á vegum ferðaskrifstofunnar
Adventura í Tékklandi eru þekktir fyrir
háskaakstur um hálendi Íslands, segir
íslenskur leiðsögumaður. Á heimasíðu
ferðaskrifstofunnar má sjá myndbönd
með ótrúlegum tilburðum og aksturslagi
rútunnar sem lenti í slysi í Blautulónum
um helgina.
Hátíð orgs og ælu
„Tveggja daga þrif eftir útleigu“
Það kostar frá 150 þúsund krónum að
leigja íbúð í Vestmannaeyjum yfir þjóðhá-
tíðina. Í einstaka tilvikum er leiguverðið
yfir hálfri milljón. En peningar eru ekki
allt þegar það tekur tvo daga að þrífa
íbúðina eftir þjóðhátíðargestina.
Má þá prófa Icesave-nafnið aftur?
„Bjartsýnni um endurheimtur“
Lögfræðingar breskra sveitarfélaga, sem
töpuðu milljörðum á íslenska banka-
hruninu, eru mun bjartsýnni en áður um
endurheimtur.
Ekki ónáða menn á bótunum
„Tuttugu smiðir á skrá en engir fást í vinnu“
Ég er búinn að selja tvö hús sem ég hefði
viljað afhenda fyrir áramót en ég veit
ekki hvernig ég á að fara að því þar sem
ég fæ enga smiði ... segir Stefán Einars-
son, verktaki á Akureyri, sem byggir
svokölluð Kanadahús.
Og ekki í fyrsta skipti
„Clooney búinn að finna þá einu réttu“
Svo virðist sem „smáskot“ Georges
Clooney og fyrrum glímudrottningar-
innar Stacy Keibler sé allt annað en aum
dægradvöl. Keibler sást yfirgefa hús
Clooneys í morgun en þá hafði hún verið
í vikulangri heimsókn þar. Áður hafði
parið sést í London og í villu Clooneys
á Ítalíu.
Vikan sem Var
Í gráum draumi
T
Magnað er það að bækur um gamlar
dráttarvélar seljist eins og heitar lummur.
Fyrirfram hefði mátt ætla að nördar einir
kíktu í slíkar bækur. Svo er ekki. Bækur
Bjarna Guðmundssonar um áratuga gamla
traktora, fyrst gráa Ferugsoninn og síðan
Farmal-kubbinn, hafa selst prýðilega
til alþýðu manna. Þar hjálpar að Bjarni
skrifar lipran texta og myndir eru margar
og góðar. Bækurnar lýsa þróunarsögu í
sveitinni, þegar vélar tóku að létta púli af
bændum og þeirra fólki.
Kannski eru þeir áhugasamastir um
þessar gömlu dráttarvélar sem voru
krakkar í sveit þegar vélhross tóku við af
púlsklárum, færðu miðaldabúskaparhætti
á skömmum tíma inn í nútímann.
Grái Fergusoninn er mín vél. Traktorinn
sá var undratæki æsku minnar sem smala í
fallegri sveit vestur á fjörðum. Ég var á átt-
unda ári þegar vistin hófst og of ungur til
að keyra dráttarvélina ljósgráu. Það kom
þó ekki í veg fyrir að sest væri í járnkalda
sessuna og hendur lagðar á stýri. Kúpling-
in var stigin í botn og skipt í gírana þrjá og
ekið í huganum. Svissinn var í gírstöng-
inni, merktur S. Þangað mátti ekki reka
stöngina.
Þess var þó ekki langt að bíða að dráttar-
vélaaksturinn hæfist. Við sóttum það fast,
smalastrákarnir, að fá að prófa. Kannski
vorum við tíu ára þegar við byrjuðum og
komnir á fullt ellefu og tólf ára gamlir. Það
er ekki víst að á slíkt yrði fallist í dag en
tíðarandinn var annar þá.
Við lærðum að keyra, draga múgavélar
og vagna – og ekki síst að bakka með þá
í eftirdragi. Sá lærdómur nýtist enn í dag
þegar kerran er hengd aftan í heimilis-
bílinn. Aðrir krakkar fengu að sitja á vagn-
inum, eða sitja sinn á hvoru brettinu, til
þess að hvíla lúin bein.
Þegar horft er fullorðinsaugum aftur
í tímann má sjá að það var ekki langt frá
fingrum farþeganna í stór afturhjól sem
snerust á fullri ferð. Ungur ökumaður
velti því ekki beinlínis fyrir sér en bað þá
sem þar sátu vinsamlega að halda sér fast.
Sama gilti um þá sem á vagninum voru.
Fjaðrabúnaður var ekki miðaður við far-
þegaakstur. Grái Fergusoninn var heldur
ekki búinn öryggisgrindum, eins og síðar
varð alsiða á nýrri dráttarvélum. Allt bless-
aðist þetta samt – og víst var það gaman.
Þeir fullorðnu héldu okkur guttunum þó
frá slættinum sjálfum. Sláttuvélarnar voru
taldar of hættulegar lífi og limum borgar-
barnanna.
Áratugir eru liðnir síðan ég rak gír-
stöng Fergusonar í S. Þó var ég kominn á
fremsta hlunn með það fyrir örfáum árum
þegar ég sá fallegan grána á dráttarvéla-
safni á Reykhólum. Ég settist klofvega á
þann gamla, lagði hendurnar á stýrið, setti
í fyrsta, annan og þriðja og ók í huganum.
Ég var að því kominn að reka stöngina í S
þegar ég var stoppaður af. Eiginkonan var
með í för og mat það svo að hugarakstur
einn dygði bónda hennar ekki. „Uss,“ sagði
hún, og sló á fingur hins meinta dráttar-
vélarökumanns eins og um barn væri að
ræða, „þetta má ekki.“ Gráni, Bd 7 frá
Kinnarstöðum, hreyfði því ekki hjól þann
daginn en mig kitlaði í fingurna, því verður
ekki neitað.
Frúin missti af bunu, ég hefði hugsan-
lega boðið henni á brettið.
Dætur mínar vissu af dálæti mínu á
gráa Fergusyninum og gáfu mér því bók
Bjarna um þá undravél, afbragð annarra
dráttarvéla þótt hún keppi ekki við þær
sem á eftir komu, lágfætt miðað við nýju
tólin og frammjó nokkuð. Sama dálæti hafa
þau sveitabörn, eða borgarbörn sem send
voru í sveit á sínum tíma, eflaust á rauða
Farmal-kubbnum hafi þau kynnst honum
með svipuðum hætti og önnur slík lærðu
að umgangast gráa Fergusoninn. Farmal-
aðdáendurnir geta því rifjað upp sælu-
stundir sínar undir stýri með lestri nýrrar
bókar Bjarna um þann rauða kubb, sem
var jafnvel enn minni en sá grái.
Ég finn enn bensínlyktina af grána
og hljóðið þekki ég. Það má alltaf gera
sér erindi að Reykhólum á ný, t.d. benda
konunni á skemmtilegan handverksmark-
að. Á meðan gæti ég rölt bæjarleið, þ.e. á
dráttarvélasafnið.
Hver veit nema ég láti það eftir mér að
reka gírstöngina á Kinnarstaðatraktornum
í S – og föndra aðeins við handbensínið –
bara til þess að vita hvað gerist.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HeLGarPisTiLL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Opið mán. – fös.
kl. 11–17
Lokað á laugardögum
Boston
leður
svart,hvítt,blátt,rautt
kr 9.990
Lissabon
leður
svart,hvítt
st. 36-42
kr. 8.900
Amsterdam
leður
svart,hvítt
st.36-42
kr. 6.900
París
leður
svart,hvítt,blágrátt
st. 36-42
kr.9.500
Mónako
Rúskinn og mikrofíber
hvítt,svart
36-46
kr.7.500
Verona
svart,hvítt
st.36-41
kr.7.900
Boníto ehf. Praxis / praxis.is / friendtex.is
Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2878
Dagleg neysla ab-drykkjar tryggir
hæfilegt magn af a- og b-gerlum
í meltingarveginum og stuðlar að
bættu heilsufari og vellíðan.
Fyrir þinn
innri mann
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
28 viðhorf Helgin 12.-14. ágúst 2011