Fréttatíminn - 12.08.2011, Blaðsíða 33
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
1
-0
7
3
3
Leikarar samþykktir af Latabæ. Latibær® © 2011 Latibær ehf. Öll réttindi áskilin.
Í Hljómskálagarðinum 20. ágúst
Dagskrá:
Íþróttaálfurinn og Solla Stirða stjórna
upphitun við rásmark í Sóleyjargötu.
• 13.30 Blá leið – 1,5 kílómetrar 6 til 8 ára
• 13.45 Gul leið – 700 metrar 4 og 5 ára
• 14.00 Græn leið – 700 metrar 3 ára og yngri
Í ár má vera með kerrur aftast í tveimur seinni ráshópunum.
Að loknu hlaupi verður skemmtidagskrá á
sviði í suðurenda Hljómskálagarðs.
Skráning á marathon.is
- Stoltur bakhjarl hlaupsins síðan 1997
Tjörnin
Hringbraut
B
ja
rk
ar
ga
ta
Su
ðu
rg
at
a
Bílastæði
P
Göngu-
brú
Skothúsvegur
Sóleyjargata
Endamark í
Bjarkargötu
Rástími kl. 14.00
í Sóleyjargötu.
Endamark í
Bjarkargötu
Rástími kl. 13.45
í Sóleyjargötu.
Endamark í
Bjarkargötu
Rástími kl. 13.30
í Sóleyjargötu.
Gönguleið foreldra
frá rásmarki
að endamarki
Skemmtidagskrá
að loknu hlaupi
Upplýsingatjald
og „týnd börn“
MARK
i
fyrstu hæð
Sími 511 2020
Erum á
6,990,-
7.990,-
6,990,-
7.990,-
4.990,-
5.590,- 5.590,-
4.990,-
Skoladagar
Fært til bókar
Breytt afstaða í Hafnarfirði
Þrír af hverjum fjórum íbúum í Hafnarfirði
telja jákvætt fyrir bæjarfélagið að hafa
álver starfandi þar. Þetta kemur fram í
könnun sem Félagsvísindastofnun Há-
skóla Íslands hefur unnið fyrir Hafnar-
fjarðarbæ og Rio Tinto Alcan og greint
var frá í fréttum í gær. Sama viðhorf er til
20 prósenta stækkunar álversins, sem nú
er unnið að, en tæp 10 prósent íbúanna
hafa neikvætt viðhorf til hennar. Þegar
spurt var um nokkra ólíka kosti varðandi
framtíð álversins sögðust rúm 43 prósent
vilja láta staðar numið eftir stækkunina
og rúm 47 prósent auka framleiðslu
enn frekar. Staðan er því önnur
en var í mars árið 2007, þegar hið
meinta góðæri var hámarki. Þá var
fór fram atkvæðagreiðsla um það
í Hafnarfirði hvort samþykkja ætti
deiliskipulag í bænum sem heimilaði
stækkun álversins. Mjótt var á munum
en naumur meirihluti, 6.382 eða 50,3%,
sagði nei en 6.294 eða 49,3% sögðu já.
Auðir seðlar og ógildir voru 71 en aðeins
munaði 88 atkvæðum að deiliskipulagið
hefði verið samþykkt. Þegar harðnaði
á dalnum, í kjölfar efnahagshruns og
aukins atvinnuleysis, virtust margir sjá
eftir þessari ákvörðun. Bæjaryfirvöld voru
gagnrýnd fyrir að hafa ekki leitt hjörðina
en bæjarstjórnarmeirihlutinn kaus að
taka ekki afstöðu til málsins. Samfylkingin
hafði setið árum saman í meirihluta undir
forystu Lúðvíks Geirssonar. Miðað við
breytta stöðu mátti Lúðvík bæjarstjóri því
búast við ýmsu þegar koma að síðustu
bæjarstjórnarkosningum. Hann lagði allt
undir og setti sjálfan sig í baráttusætið.
Það dugði ekki til. Hann náði ekki kjöri og
meirihlutinn tapaðist þótt flokkurinn héldi
áfram í stjórnartaumana, nú í samstarfi
við Vinstri græna. Lúðvík horfði á eftir
bæjarstjórastólnum í kjölfar alls þessa.
Konur í ritstjórastólana
Því hefur stundum verið haldið fram, og
eflaust með talsverðum rétti, að fáar kon-
ur hafi valist til stjórnunarstarfa á fjölmiðl-
um. Það á hins vegar ekki um
val á ritstjórum þessa dag-
ana. Fyrst skal telja Þóru
Tómasdóttur blaðamann,
sem lesendur Fréttatím-
ans þekkja af góðu einu
enda hefur hún starfað
á blaðinu undanfarin
misseri. Hún hefur verið
ráðin ritstjóri Nýs lífs. Þóra
tekur við starfinu af Kolbrúnu
Pálínu Helgadóttur. Þóra er öflugur
blaðamaður og var meðal umsjónarmanna
Kastljóss Ríkisútvarpsins áður en hún
kom til starfa á Fréttatímanum, raunar
með millilendingu í Noregi. Ritstjóraskipti
hafa einnig orðið á blaðinu Séð og heyrt.
Leikkonan og blaðamaðurinn Lilja Katrín
Gunnarsdóttir tekur við af Ragnheiði M.
Kristjónsdóttur. Hrund Þórsdóttir hefur
enn fremur tekið við ritstjórn Mannlífs í
stað Karls Steinars Óskarssonar. Nýjasta
í röð þeirra kvenna sem taka við ritstjór-
astarfi er Sólrún Halldóra Þrastardóttir
sem tekið hefur við Stúdentablaðinu.
Helgin 12.-14. ágúst 2011