Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.08.2011, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 12.08.2011, Qupperneq 34
Greint var frá því hér í blaðinu í síðustu viku að ritnefnd um sögu Kópavogs árin 1980-2010 hefði við skoðun hafnað handriti sem fyrr- verandi bæjarritari og sviðsstjóri Kópavogs, Björn Þorsteinsson, hefði tekið saman og þegið um 20 milljónir fyrir. Var vitnað í Hafstein Karls- son, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, sem sagði ritnefnd vegna verksins hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að nota efnið að svo stöddu. Sagnfræðingurinn Magnús Sveinn Helgason skrifar af þessu tilefni hugvekju á Smuguna (sjá: smugan.is/2011/08/kopavogur-akranes-og- sagnfraedin) þar sem hann ræðir um tilhneigingu stjórnmálamanna til að ráða viðvaninga til söguritunar og um óþurft þess að gagnrýnir sagn- fræðingar fái vinnu við hæfi til að greina sögu bæja, sveitarfélaga og stjórnmálamanna. -pbb Hætt við sögu Kópavogs  Bókadómur Íslenskar lækningajurtir arnBjörg linda jóhannsd. F yrsta útgáfan af merkisriti Arn-bjargar Lindu Jóhannsdóttur, Íslenskar lækningajurtir, kom út fyrir nær tuttugu árum hjá forlagi Arnar og Örlygs. Hún kom út í annarri útgáfu 1998. Þriðja útgáfan, og þeirra stærst, kom svo út í sumar. Þetta er kjöllímd bók í mjúku bandi og sett í plastkápu. Undirtitill bókar- innar um lækningajurtirnar er „söfnun þeirra, notkun og áhrif“. Bókin er 302 blaðsíður; á ríflega 134 síðum er rakið safn jurta, fyrst íslenskra í stafrófsröð og er byrjað á aðalbláberjalynginu en endað á ætihvönninni. Um hverja jurt er kaflaskipt gerð grein fyrir útbreiðslu og kjörlendi, nýtanlegum plöntuhlut- um, virkum efnum sem kunnug eru, hver áhrif hennar eru og hvernig skuli nota jurtina. Þá er jurtin greind eftir kínversku fræðunum, greint frá hvernig hún skal nýtt í skömmtum, bæði í vínandalegi, vatnslegi og til ferskrar neyslu, og að síðustu hvað ber að varast í neyslu jurtarinnar. Þessi greinargerð er afar skýr og ljós. Í kjölfar íslensku jurtanna er kafli um erlendar jurtir sem hingað hafa borist og síðan hvernig á að safna jurtunum og vinna þær; hvernig á að blanda þeim til neyslu. Síðari hluti bókarinnar er svo lagður undir umfjöllun um líffærakerfið og hvaða jurtablöndur eiga sérstaklega við iðrin, svo ólík sem þau eru, taugar og vöðva. Er þessu öllu skilmerkilega fyrir komið með meginmáli og hliðargreinum og umhverfis eru myndir til skýringar. Þessi kafli er á 85 síðum. Loks er í bók- inni yfirlit um kínversku lækningafræðin að því leyti sem þau eru sambærileg við okkar jurtaheim, því skrokkar okkar og Kínverja eru í meginatriðum eins þótt við virðumst ólík. Jurtalækningar eru merkilegt fyrir- bæri. Heimur jurtanna er okkur ekki nema að litlu leyti ljós; eins og verkið segir á mörgum stöðum eigum við langt í land með að rannsaka til hlítar þau efni sem grösin okkar búa yfir þótt þau hafi hér verið notuð um aldir. Nútíma-læknis- fræði og lyfjafræði hefur víst sprottið upp úr þeim fræðum en vík er milli vina – ekki er vitað til þess að læknadeildin haldi í hópum á fjöll að tína grös, hvað þá að kenndar séu jurtalækningar á há- tæknisjúkrahúsum. Það kemur því í hlut almennra borgara að leita sér hollustu í jurtaríkið, ekki bara til lækningar heldur líka til forvarna: Hvort er betra að leggj- ast í hvannatínslu, þurrkun og neyslu eða kaupa pillurnar sem íslenskur lyfjafram- leiðandi hefur blessunarlega þróað og sett á markað? Bók Arnbjargar er mikill kostagripur. Mörgum kann að þykja það fáránlegt að leggjast út og leita grasa – reyndar eru sumar jurtirnar um þessar mundir komn- ar hjá kjörtíma sínum til tínslu – en hér áður fóru menn til grasa frá því snemma á vorin til þess tíma á haustnóttum þegar fræ voru þroskuð og ber þá löngu tínd. Hver sem það reynir kemst í nýtt hlut- verk, annað samband og að óreyndu skyldi enginn lasta þá leit því hún er sannarlega í öllu leit að betri manni til líkama og sálar. Bókin er gefin út í röð leiðarvísa um landið, leiðarvísa að umhverfi okkar þegar komið er út fyrir götukort og hús- númer, þegar við blasa göturnar sem við höfum stikað um landið þvert og endilangt. Þessi flokkur ber enga yfir- skrift en flest þessara rita eiga að vera til á hverju heimili þeirra sem vilja lifa í landinu, með landinu. 30 bækur Helgin 12.-14. ágúst 2011  Bókadómur Frelsarinn jo nesBö Bækur Páll Baldvin Baldvinsson pbb@frettatiminn.is IBBY á Íslandi er félagsskapur fólks sem hefur áhuga á menningu barna og vill veg þeirra sem mestan. Ibby gefur út tímarit og nýtt hefti, það fyrsta á þessu ári, er komið út. Það er að mestu helgað söguheimi Tove Jansson um Múmíndalinn og íbúa hans. Þrjár greinar eru í blaðinu um það efni; eftir Ernu Erlingsdóttur um síðustu söguna í bálknum, Seint í nóvember ; Dagný Kristjánsdóttir ritar yfirlitsgrein um verkin og Sirke Happonen um dans í söguheimi Jansson. Þá eru í heft- inu, sem er 36 bls., ýmsar smærri greinar um lesefni og leiklist fyrir börn. Þórdís Gísladóttir ritstýrir heftinu en lætur nú af því starfi og Helga Ferdinandsdóttir tekur við. Börn og menning fást í betri bókaverslunum og hjá IBBY en netfang tímaritsins er bornogmenning@gmail.com -pbb Tímaritið Börn og menning helgað Múmínálfunum Að ganga til grasa Bók Arnbjargar Lindu er kostagripur um græðandi jurtir og gefandi. Einn dagur eftir enska höfundinn David Nicholls stekkur beint í 2. sætið á lista Eymundsson þessa vikuna. Frábær bók um tíðaranda síðustu 20 ára eða svo. Hefur farið sigurför um heiminn. Beint Í 2. sætið  Íslenskar lækn- ingajurtir Arnbjörg Linda Jóhannesdóttir Mál og menning, 302 bls. 2011  Frelsarinn Jo Nesbö Ingunn Ásdísardóttir þýddi. Uppheimar. 522 bls. 2011 Arnbjörg Linda Jóhannesdóttir Bók hennar er skýr og skilmerkilegur leiðarvísir. Fyrsta sagan eftir Jo Nesbö sem ég las, reyndar á norsku, Frelseren, er nú komin út í ágætis- þýðingu Ingunnar Ásdísardóttur. Það var nokkur uppgötvun á sínum tíma að detta ofan í þessa tilbúnu veröld andhetjunnar Harrys Hole. Frelsarinn var um margt áhugaverður inngangur í bálkinn: vinkill verksins sem teygir sig suður til Vukovar og hinn aflukti heimur Hjálpræðishers- ins í Ósló sem er svo ráðandi í sögunni voru ný- stárlegir, plottið var þétt unnið og vísað í nokkra kima í söguheimi Nesbös sem ég átti síðar eftir að leita uppi. Sagan var spennandi allt til enda. Við fyrstu kynni komu gallarnir ekki í ljós enda sagan lesin þá sem hrein afþreying. Klisjukennd persónusköpun hans átti eftir að verða kunn- uglegri eftir því sem fleiri sögur hans voru að baki: fyrstu bækurnar sem hlaupið var hjá í út- gáfuröð Uppheima og svo þær sem komnar eru í seríunni. Nesbö er söluhár á íslenskum markaði og verður það sannarlega næstu misserin; ekki er nema skammt komið á veg í útgáfu bálksins. Næst koma út Snjómaðurinn ( 2007), Stálhjartað (2009) og loks sagan sem hann sendi frá sér í sumar – Endurkoman. Þá eru ónefndar fyrstu tvær bækurnar – ef Nesbö vill á annað borð að þær komi hér á markað. Nesbö er flinkur skemmtisagnahöfundur. Hann er metnaðargjarn og það er gaman að lesa og heyra viðtöl við hann þar sem hann opnar okkur heim sinn. Hann vill gera vel, tekur hlut- verk sitt alvarlega. Hann er viðfelldinn náungi og frægðarferill hans er rétt að byrja þótt verk hans hafi nú verið þýdd á tugi tungumála og frægð hans vaxið ört. Það er samt athyglisvert hvar áhugi hans liggur í Frelsaranum: í kvenlýsingum sem eru samúðarfullar og skrifaðar af næmni og í lýsingum hans á fíklum og heimi þeirra. Hann fellur í þessari sögu í þá gryfju að draga upp frekar einfaldaða mynd af ríkum eldri viðskipta- jöfri, en persónulýsing hans á tengdadóttur þess gamla er skrifuð af ríkulegu innsæi og samúð með heldur ógeðfelldri persónu. Það er enginn svikinn af þessu stöffi sem á annað borð vill fela sig í hulduheimum reyfarans. Þeir gerast ekki betri, spennukrimmarnir. -pbb Frelsarinn og Hjálp- ræðisherinn í Ósló ... flest þessara rita eiga að vera til á hverju heimili þeirra sem vilja lifa í land- inu, með landinu. Jo Nesbö. Ljósmynd/ Håkon Eikesdal HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fréttatímann h im? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu o kur þá vi a með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fré atímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita með tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatiminn.is HELGARBLAÐ Fékkstu ekki Fréttatímann heim? Fréttatímanum er dreift á öll heimili á höfuðborgar- svæðinu. Ef þú fékkst ekki blaðið heim, láttu okkur þá vita me tölvupósti á dreifing@frettatiminn.is Sjáðu blaðið líka á frettatim nn.is

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.