Fréttatíminn - 12.08.2011, Qupperneq 38
34 ferðalög Helgin 12.-14. ágúst 2011
4.990,-
5.590,- 9.990,-
8.990,-
6.990,-
7.990,-
6.990,-
7.990,-
fyrstu hæð
Sími 511 2020
Erum á
Skoladagar
S kakki turninn er helsta kennileiti ítölsku borgarinn-ar Pisa. Minjagripaverslanir borgarinnar eru að vonum
fullar af skökkum turnum, hvort
heldur eru myndir eða smágripir,
enda vilja ferðamenn taka með sér
minningu um heimsókn þangað.
En öllu má ofgera. Nú hefur borgar-
stjórinn í Pisa, Marco Filippeschi,
skorið upp herör gegn smekk-
lausum minjagripum. Jafnvel þótt
sumir ferðamenn vilji gjarna kaupa
nærbuxur með þessu heimsþekkta
tákni þá þykir borgarstjóranum það
smekklaust. Hingað og ekki lengra,
segir hann, þeir sem selja minjagripi
af hinum skakka turni sem misbjóða
velsæmiskenndinni verða sektaðir
um allt að 500 evrur.
Hinn púritanski borgarstjóri lætur
ekki þar við sitja heldur skorar á
yfirvöld í nálægum bæjum í Toscana-
héraði að gera slíkt hið sama, þ.e.
Flórens, Siena og San Gimignano.
„Þessi framleiðsla er hneykslanleg
og sölu hennar í minjagripaverslun-
um ber að banna. Yngsti fjölskyldu-
meðlimurinn í heimsókn í búðir
sem þessar á ekki að þurfa að horfa
á þess háttar,“ segir hann í viðtali
við The Telegraph. „Sumir þessara
minjagripa eru á mörkum þess að
vera klám. Það er ekki sú mynd sem
við viljum að fólk fái af Pisa,“ bætir
Filippeschi borgarstjóri við.
Það er ekki bara borgarstjórinn
í Pisa sem vill hreinsa til í minja-
gripaverslunum borgarinnar. Það
vilja kirkjunnar menn líka en skakki
turninn er við hlið dómkirkjunnar
í borginni, 55 metra hár, og hug-
myndaríkir hönnuðir vilja fá að túlka
hann að vild.
Verslunareigendur skilja hins veg-
ar ekkert í hinum hneyksluðu yfir-
völdum, hvort heldur eru veraldleg
eða geistleg. Þeir segja framleiðslu
fallusartákna í líki hins skakka turns
skaðlausa skemmtun sem ferðamenn
kaupi í stórum stíl.
Skakki turninn í Pisa, sem m.a.
er klukkuturn, var byggður úr
marmara á árunum 1173-1350. Hinn
hringlaga turn tók að halla þegar á
byggingartímanum vegna ótraustrar
undirstöðu. Halli turnsins er um 4
gráður. -jh
K onur fylla ferðatöskur af ónauðsynlegum
klæðnaði þegar þær undir-
búa ferðalög. Svo segir
í könnum sem birt var í
Daily Mail en hún náði til
3000 kvenna. Að meðal-
tali taka konur með sér
18 toppa, 12 buxur eða
stuttbuxur og sex bikiní ef
þær fara í hálfs mánaðar
ferð. Þegar upp er staðið
hefur meðalkonan hins
vegar notað 12 toppa, sex
buxur eða stuttbuxur og
þrjú bikiní, að því er fram
kemur í könnuninni.
Könnunin sýnir enn
fremur að hver kona tekur
að meðaltali með sér átta
skópör í tveggja vikna
ferðalag og fjórða hver
kona treður tíu skópörum
í töskuna fyrir ferða-
lagið. Í raun nota þrjár af
hverjum fjórum konum
sex skópör.
Nær fjórðungi
kvennanna, eða 23%,
finnst stressandi að pakka
fyrir ferðalag og það
stressar rúmlega fimmt-
ung, 21%, meira að finna
föt til ferðarinnar en að
fara í vinnuna.
Verðmæti fatnaðar í
hefðbundinni ferðatösku
konu er í kringum 200
þúsund krónur. Í um-
fjöllun blaðsins segir að
það komi ekki á óvart að
konur taki meira með sér
í ferðalagið en þær hafi
þörf fyrir en verðmæti
innihaldsins hafi komið
á óvart. Fólk kaupi sér
gjarnan ný föt undir því yf-
irskini að þeirra sé þörf á
ferðalaginu. Þá má heldur
ekki gleyma því að margir
pakka dýrum hlutum með
fatnaðinum, m.a. mynda-
vélum og símum.
Í umfjölluninni um
ferðalögin er ekki tekið
fram hvernig karlkynið
fer að þegar það finnur á
sig buxur og skyrtur til
sambærilegrar ferðar. - jh
ferðalög InnIhald ferðatöSKunnar
Konur pakka
of miklu í
töskur sínar
Nær fjórðungi kvenna finnst stressandi að pakka fyrir ferðalög.
Of mikið í
töskunni. Hluti
kemur því ónot-
aður heim.
Ljósmynd Nordic
Photos/Getty
Images
ÍtalÍa BorgarStjórI SeKtar mInjagrIpaSala
Sker upp herör
gegn smekklaus-
um Pisa-táknum
Segir suma minjagripina vera á mörkum þess að vera klám og særa
velsæmiskenndina. Kirkjan á sama máli en verslunareigendur skilja
ekki í púritanskri hneyksluninni.
Skakki turninn í
Pisa gefur hönn-
uðum minjagripa
ýmsar hugmyndir
í gerð minjagripa.
Borgarstjórinn
segir suma á
mörkum þess að
vera klám. Ljósmynd
Nordic Photos/Getty
Images
Ekki sú
mynd sem
við viljum
að fólk fái
af Pisa.