Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.08.2011, Síða 50

Fréttatíminn - 12.08.2011, Síða 50
S norri sýndi hvað hann gat með Sprengjuhöllinni en hefur nú tekið miklum framförum frá fyrstu sólóplöt- unni, sem kom út 2009, enda búinn að helga sig tónlist síðustu misserin. Hann mætir hér sem mjög klár og upp- finningasamur lagasmiður, „singer-songwriter“ af gamla skólanum – kassagít- arpoppari frá því sirka 1972 – en með nútímaáherslum, sem Sindri Már Sigfússon úr Seabear og Sin Fang hjálpar til við að leggja á. Lögin grípa eins og litlir önglar og þig mun langa til að hlusta aftur og aftur á þessa plötu til að fullnægja þörfinni fyrir gott popp. Sjálfur er ég búinn að hlusta á hana daglega í tvær vikur og er ekki kominn með leiða á henni ennþá – hún er það langvirk- andi, fjölbreytt og lúmsk. Snorri er tónlistargrúskari og því eru áhrifavaldarnir frá fáfarnari slóðum en gengur og gerist. Lagasmíðar manna eins og Harrys Nilson og Johns Sebastian (úr The Lovin’ Spoonful) koma upp í hugann og Brian Wilson-áhrif eru allnokkur. Og Bítl- arnir, maður. Snorri minnir bara á, hermir aldrei: þótt garnið sé gamalt er munstrið frumsamið og flott. „Þroskaður“ er orðið sem manni dettur í hug yfir lagahöfundinn Snorra; væri hann mangó ætti að borða hann núna. Alltumlykjandi fílingur á plötunni er sól- ríkur, bjartur og mildur. Þótt yfirbragðið sé frekar rólegt er lítill tregi til staðar og sama og ekkert vælt. Eins og margir hugsar Snorri til alþjóðamarkaðar og syngur ein- falda og ágæta ensku textana eins og hann hafi dvalið lengi í fjallakofa í Montana og safnað skeggi. Athyglisvert verður að sjá hvort Snorri hefur erindi sem erfiði í æsku- dýrkandi poppheiminum því Vetrarsólin hans er alveg frábær og það besta sem hann hefur gert. -dr. Gunni Winter Sun  Snorri Helgason ... væri hann mangó ætti að borða hann núna. Gamalt garn, nýtt munstur  plötudómur Winter Sun Snorra HelgaSonar V ið lögðum upp með að kanna fyrirbærið einangr-un en kveikjan var að skoða hvernig Vestur-Íslendingar hafa einangrast frá öðrum Íslendingum í gegnum tíðina,“ segir sviðslista- maðurinn Friðgeir Einarsson en hann vinnur nú að sýningunni The Island eða Eyjan ásamt mynd- listarkonunni Ingibjörgu Magna- dóttur og Vestur-Íslendingunum Arne MacPherson og Freya Olafson sem eru stödd hér á landi til að semja verkið. „Arne er leikari og Freya dansari og myndlistar- maður en þau eru bæði komin af íslenskum ættum og hafa ásamt fleirum staðið fyrir hátíðinni Núna/ Now í Winnipeg,“ en sú hátíð hefur það að markmiði að flytja inn ís- lenska listamenn til að koma fram í Kanada. „Ég var staddur þarna með leikritið Húmanimal í fyrra og Arne og Freya höfðu samband við okkur Ingibjörgu og buðu okkur að vera áfram til að vinna að nýju verki með þeim. Síðan þá höfum við ferðast milli Kanada og Íslands til að undirbúa verkið,“ en Freya og Arne eiga skyldfólk hér á landi sem þau þekkja lítillega og nýttu sér að rekja ættir sínar saman við Íslendinga í ættfræði og upp- lýsingastofu Vesturfarasetursins á Hofsósi. Afraksturinn af samstarfs- verkefninu lítur dagsins ljós á leik- listarhátíðinni Lókal í byrjun sept- ember. „Verkið fjallar um félagslega einangrun, einmanaleikann og þrá mannsins og líkamlega þörf til að tengjast öðrum. Þetta er þverfag- legt verkefni og við höfum öll mjög ólíkar stefnur en ætli þetta verði ekki einhvers konar gjörningaleik- hús. Þetta verður ekki beinlínis saga eða hefðbundið leikrit heldur verður uppbyggingin svolítið af- strakt.“ Nánari upplýsingar um verkið er að finna á www.lokal.is Vestur Íslendingar rjúfa einangrunina við Ísland Þau Arne MacPherson og Freya Olafson röktu ættir sínar við aðra Íslendinga í Vesturfarasetrinu á Hófsósi og hafa í samvinnu við Friðgeir Einarsson og Ingibjörgu Magnadóttur þróað verk út frá þeirri einangrun sem skapaðist milli Vestur-Íslendinga og annarra Íslendinga gegnum tíðina.  leikliSt ÍSlendingar og VeStur-ÍSlendingar leiða Saman HeSta SÍna Friðgeir Einarsson, Ingibjörg Magnadóttir og Vestur-Íslendingarnir Arne MacPherson og Freya Olafson leiða saman hesta sína í sviðslistaverkinu Eyjan sem sýnt verður á leiklistarhátíðinni Lókal í haust. Það er allt í lagi. Pappelina vill láta ganga yfir sig á skítugum skónum. Hún er nefnilega úr plasti. Pappelina virkar því best þar sem mikið álag er á gólfinu. Tilvalinn félagi í forstofuna eða eldhúsið. Svo vill hún líka fara í þvottavél. Plastmotturnar frá Pappelinu hafa farið sigurför um heiminn og eru nú loksins fáanlegar á Íslandi. Kíktu á úrvalið í verslun Kokku eða á kokka.is. J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Á skítugum skónum? 46 menning Helgin 12.-14. ágúst 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.