Læknablaðið - 01.02.1970, Qupperneq 65
LÆKNABLAÐIÐ
31
Doktorsritgerð Guðmundar Björnssonar heitir: The Primary Glau-
coma in Iceland. Epidemiological studies. Acta Ophtalmologia. Supple-
mentum 91. Prentsmiðjan Hólar h.f., Reykjavík 1967.
Rit Guðmundar um glákublindu og glákurannsóknir á íslandi er
99 bls. Meginefniviður höfundar er byggður á persónulegri athugun
hans á 27.715 sjúklingum, sem höfundur skoðar á 14 ára starfstímabili
(1948—1963), og athugun, sem náði yfir 2% árs tímabil og 2.872 ein-
staklinga og skoðaðir voru á kerfisbundinn hátt með tilliti til gláku.
Auk mikilla upplýsinga um blindu á íslandi, sem ritið veitir, vekur
það mesta athygli, að í stærri hópnum (27.715) finnur höfundur 237
einstaklinga (0.8i5% af heildarfjölda) með gláku, en við hina kerfis-
bundnu leit í hópi, sem í eru 2.872 einstaklingar, finnur hann 138 með
háþrýsting í auga eða augum. Þessar niðurstöður Guðmundar eru ótví-
ræðar um gagnsemi sjúkdómsleitar á þessu sviði.
Höfundur setur fram margar athyglisverðar skýringar og hugleið-
ingar í sambandi við þá misjöfnu tíðni gláku, sem fram kemur í efni-
viði hans, m. a. eftir starfsstéttum og búsetu.
Margar töflur, línurit og myndir fylgja texta.
★
Doktorsritgerð Guðmundar Georgssonar heitir: Vergleichende
Electromikroskopische Untersuchungen Normaler Menschlicher Pan-
kreasinseln und eines Hormonell-aktiven Inselzell-carcinoms mit Hyper-
insulinismus. Prentun: Reinische Friedrich-Wilhelmsuniversitát, Bonn,
1966.
Rit Guðmundar er 61 bls., og fjalla tveir meginkaflar ritsins um
rafeindasmásjárrannsóknir á frumum Langerhanseyja briskirtils í
mönnum, annars vegar á eðlilegum frumum og hins vegar á illkynja
insulínframleiðandi frumum.
Rafeindasmásjárrannsóknir hafa orðið sífellt nauðsynlegri á síð-
ustu árum til að afla þekkingar um fínbyggingu og starfsemi eðlilegra
og afbrigðilegra frumna í líkamanum. Notkunarsvið þessarar rann-
sóknartækni verður ljóst þegar í upphafskafla ritsins, þar sem lýst er,
að ekki sé að vænta frekari þekkingaröflunar með venjulegri smásjár-
tækni í þeim viðfangsefnum, sem tekin eru til meðferðar í ritinu. Um
það bil helmingur ritsins eru smásjár- og rafeindasmásjármyndir.
Hinn þýzki texti er skýr og auðveldur fyrir hvern þann, sem ein-
hvern tíma hefur hlotið eldskírn í „Lehrbuch der topographischen
Anatomie“; munurinn aðeins sá, að hér er lýst fíngerðari líffærum,
sem skipta þó jafnmiklu máli fyrir lækninn og sjúklinginn.
★
Doktorsritgerð Gunnars Guðmundssonar heitir: Epilepsy in Ice-
land. A clinical and epidemiological study. Acta Neurologica Scan-
dinavica, Supplementum 25, volume 43, 1966. Munksgaard, Copen-
hagen 1966. Prentsmiðjan Hólar h.f., Reykjavík.
Rit Gunnars um flogaveiki á íslandi er 123 bls. Efniviður er 538
karlmenn og 449 kvenmenn, alls 987 manns með flogaveiki. í 87 töflum