Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1978, Page 56

Læknablaðið - 01.02.1978, Page 56
22 LÆKNABLAÐIÐ Ólafur Ólafsson landlæknir: UM ÓSAKHÆFT GEÐSJÚKT FÓLK Á ÍSLANDI Grein þessi er skrifuð í tilefni af því að þrátt fyrir mikinn þrýsting heilbrigðisyfir- valda, er miklum erfiðleikum bundið að sjá geðsjúku fólki, er dæmt hefur verið í öryggisgæslu, fyrir sómasamlegri vistun hér á landi. Eina hælið er þeim býðst er fangelsi. Iðulega berast neyðaróp sjúklinga og aðstandenda, kvartanir lækna og lög- reglu til landlæknisembættisins, ráðu- neyta og annarra aðila vegna að- búnaðar þessa fólks. Læknar eru yfirleitt samdóma um að þetta fólk sé mjög sjúkt á geði og þarfnist því öðrum fremur gæslu á góðu sjúkrahúsi. Þessir sjúklingar þjást m.a. af eftirtöldum sjúkdómum: Geðklofa (schizoprenia) . Heilarýrnun m.a. vegna drykkjusýki. Geðvillu (-skapgerðar) (psykopathia). Greindarskorti Án efa má þó veita þessum sjúklingum verulega hjálp, ef þeir fá meðferð hæfra lækna, sálfræðinga og annarra fagmanna á góðum sjúkradeildum. í fangelsum er andrúmsloftið ekki hið sama og á sjúkra- húsum, auk þess sem illmögulegt er að veita stöðuga og góða hjúkrun eða lækn- ingu þar. Sumir þessara sjúklinga eru mjög illa komnir og þurfa sífellda gæslu. í reynd er umönnun okkar fólgin i því að geyma þessa sjúklinga í fangelsum eða senda þá til nágrannalanda með ærinni fyrirhöfn fyrir sjúklinga, vandamenn og þjóðfélagið. Norrænar nágrannaþjóðir hafa skotið skjólshúsi yfir þetta fólk, en nú er í flest skjól fokið þar, vegna skorts á vistunarrýmum. Þetta er ritað m.a. af því að einn þess- ara sjúklinga er dvalist hefur á erlendu sjúkrahúsi, er álitinn hafa náð góðum bata, og er því óskað' eftir því að honum verði búin vist á íslensku sjúkrahúsi. Læknar hans taka jafnframt fram að fangelsisvist- un geti haft örlagaríkar afleiðingar í för með sér fyrir sjúkling. íslensk yfirvöld hafa svarað bréfum sjúklings og lækna og hafa ekki annað að bjóða fram en vistun í fangelsi. Heilbrigð- isyfirvöld í viðkomandi landi hafa skotið skjólshúsi yfir hann áfram er þeim varð kunnugt um valkosti. Mjög sjúkt fólk, sem þjáist af líkamleg- um sjúkdómum, er oft vistað á gjörgæslu- deildum bestu sjúkrahúsa. Þessar deildir eru dýrar í rekstri, enda þarf þar bæði vel þjálfað hjúkrunarlið og flókin tæki til þess að annast þessa sjúklinga. Geðsjúk- lingar þeir, sem ég geri hér að umræðu- efni, má með sanni nefna gjörgæslusjúk- linga geðsjúkrahúsa. Vistun þeirra í fang- elsum er með öllu ósæmandi þjóð, sem býr við þann kost, er við gerum. í mannúðar- legu og læknisfræðilegu tilliti er þessi meðferð ekki viðunandi. Á íslandi eru rúm- lega 16 sjúkrarúm fyrir 1000 íbúa, eða fleiri en þekkist víða í Vestur-Evrópu, og læknafjöldi er einn á 560 íbúa. Fjöldi þessa ólánsama fólks eru 1-2 á ári og er því vart hægt að bera við plássleysi. Ég legg því til að þessir sjúklingar fái framvegis þá umönnun, er þeim ber, og að þeim verði undanbragðalaust búinn staður á geðdeildum eða þá í velbúnu hús- næði í nánum tengslum við þær. Greinin barst ritstjórn 13. desember 1977.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.