Læknablaðið - 01.02.1978, Blaðsíða 78
34
LÆKNABLAÐIÐ
FUNDARGERÐ
FORMANNARÁÐSTEFNU LÆKNAFÉLAGS ISLANDS 1
DOMUS MEDICA 03.12. 1977.
Ráðstefnan hófst kl. 10.00 að morgni í
húsakynnum Læknafélags íslands í Domus
Medica.
Mættir vcru: Tómas Á. Jónasson, Guð-
mundur Sigurðsson, Auðólfur Gunnarsson,
Guðmundur Pétursson, Páll Þórðarson,
Sigursteinn Guðmundsson, Þorvaldur Veig-
ar Guðmundsson, Hafsteinn Sæmundsson,
Guðmundur Árnason og Magnús Lyngdal
Stefánsson.
Formaður setti ráðstefnuna og bauð fund-
argesti velkomna. í upphafi skýrði hann
frá því, að ákveðið hefði verið, að næsti
aðalfundur Læknafélags íslands yrði hald-
inn á Akureyri í júní næsta vor.
Formaður sagði síðan frá gangi ýmissa
mála, sem rædd höfðu verið á aðalfundi og
síðan verið til umfjöllunar á stjórnarfund-
um L.í.:
1. Fyrst var skýrt frá máli Daníels Daní-
elssonar. Formaður sagði frá því, að
stjórn L.í. hefði ákveðið að verða við
ósk Daníels um, að áður uppkveðinn
Gerðardómur birtist í Læknablaðinu og
yrði svo fljótlega, enda teldi stjórn
L.I. eðlilegt, að slíkir dómar birtust fé-
lögum læknafélaganna. Varðandi spurn-
ingu Daníels Daníelssonar um refsingu
í þessu máli þá liti stjórn L.í. þannig
á, að birting dómsins væri í sjálfu sér
meiri refsing en áminning stjórnar nú.
Önnur mál Daníels eru hjá nýskipuðum
Gerðardómi.
Hafsteinn Sæmundsson skýrði frá
því, að hann hefði skýrt málsaðilum á
Húsavík frá gangi málsins á aðalfundi,
og myndi hann skýra þeim frá fram-
vindu mála, er heim kæmi.
Fundarmenn töldu að ýmsa lærdóma
mætti draga af gangi þessa máls og þá
einkum þann, að reka þyrfti mál fyrir
Gerðardómi af meiri krafti, en verið
hefði í þessu máli. Gerðardómur þyrfti
m.a. að setja mönnum tímamörk um
framlagningu gagna, svo að unnt væri
að taka afstöðu.
2. Rætt var um framhaldsnám íslenzkra
lækna í Bandaríkjunum. Formaður
skýrði frá því, að sendiráð Islands í
Washington hefði haft samband við
bandarísk stjórnvöld og aðra í Washing-
ton, sem með málið hefðu að gera, og
hefði það síðan frétzt að ekki væri
unnt að svo stöddu að veita undanþágu
til íslendinga frá þeirri reglu, að menn
séu ráðnir einungis til 2ja ára, en þó
með möguleika á framlengingu í eitt
ár. Hins vegar hefði komið fram vel-
vilji í garð íslendinga, og skilningur á
sérstöðu þeirra í þessu máli, og talið
væri fullvíst, að gerðar yrðu breyt-
ingar á lögunum, og yrði þá e.t.v.
unnt að taka tillit til sérstöðu íslend-
inga, hvað varðar framhaldsmenntun
lækna. Formaður skýrði frá því, að til
stæði, að stjórn Læknafélags Islands
reyndi að skrifa áhrifamiklum þing-
mönnum á Bandaríkjaþingi og e.t.v.
varaforsetanum varðandi þetta mál.
3. Rætt var um viðbyggingu Domus Med-
ica. Formaður skýrði frá því, að nauð-
synlegar leyfisveitingar hefðu verið
kannaðar. í ljós hefði komið, að ólík-
legt væri, að leyfi fengist til að byggja
nægilega stóra byggingu ofan á húsið,
sem fullnægja mundi börfum félagsins.
Hins vegar væri líklegra, að leyfi feng-
ist til viðbyggingar, sem gæti orðið
allt að 400m- á 2 hæðum. Virtist álit
manna það, að viðbygging mundi verða
heppilegri lausn, ekki sízt m.t.t. aðstöðu
og bætts reksturs félagsheimilisins.
4. Þá var tekin fyrir útgáfa ritsins ,,Lækn-
ar á íslandi“. Formaður skýrði frá því,
að rætt hefði verið við 3 lækna, þá
Þórodd Jónasson, Pál Ásmundsson og
Benedikt Tómasson, sem hefðu tekið