Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Síða 49
Ö flug menningarstarf- semi skilar gríðarlega miklum verðmætum í íslenskt þjóðarbú, um- talsvert meiru en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Þetta er mat Ágústar Einarssonar hagfræði- prófessors og rektors Viðskiptahá- skólans á Bifröst. Ágúst hefur rann- sakað þjóðhagslegan hag af öflugri menningarstarfsemi og telur hann að menning sé sú atvinnugrein sem sé í hvað mestum vexti. Árið 2004 kom út ítarleg rannsókn Ágústar sem nefn- ist The Economic Impact of the Ice- landic Music Industry, sem fjallar um hagræn áhrif menningarstarfsemi. Í henni kemur meðal annars fram að árið 2003 var menningarstarfsemi fimmti stærsti atvinnuvegurinn á Ís- landi, töluvert stærri en öll ál- og kís- iljárnframleiðsla á Íslandi. Vanmetin atvinnugrein Ágúst segir að mikill fengur geti verið í því að efla menningarstarf- semi í sem víðustum skilningi. „Bæði er menningin afar mikilvægur liður í hagkerfinu og hún bætir hugi okkar og hjörtu. Listsköpun er okkur bæði til yndisauka og eykur landsfram- leiðsluna umtalsvert.“ Ágúst telur öflugan listaháskóla vera gríðarlega mikilvægan til þess að styrkja stoðir íslenskrar menn- ingarstarfsemi. Hann segir að auk- in listmenntun muni skila sér mjög fljótt til baka í bættu samfélagi. „Við erum mjög menningarhneigð þjóð, við sækjum mikið í leikhús og það eru hundruð manna sem hafa at- vinnu af þeirri starfsemi. Á annað þúsund manns hafa fulla atvinnu af tónlist, þáttur menningarinnar hef- ur sannarlega aukist mikið á síðustu árum og það má segja að menningin sé stóriðja framtíðarinnar.“ Að mati Ágústar er menningar- starfsemi vanmetin atvinnugrein, en í niðurstöðum sínum bendir hann á að árið 2002 nam landbúnaðarfram- leiðsla 1,4% af landsframleiðslu, á meðan menningarstarfsemi nam um það bil 4% af landsframleiðslu. Til samanburðar var stærsti einstaki at- vinnuvegurinn til landsframleiðslu, verslunar-, veitinga- og hótelrekstur með um það bil 11,4% hlutdeild. Árið 2002 störfuðu 6.400 manns við sjáv- arútveg hér á landi, en á sama tíma störfuðu um það bil 5.000 manns í menningartengdum störfum. Mann- virkjagerð var hins vegar langstærsta atvinnugreinin, en í henni störfuðu um það bil 12.200 manns. Í rannsókn sinni skoðar Ágúst hlutdeild atvinnugreina hér á landi árin 1991 og 2002. Þar kemur fram að hlutfall atvinnugreina sem snúa að frumvinnslu hafi minnkað um tæplega fimmtung á tímabilinu. Hlutfall iðnaðar minnkaði jafnframt umtalsvert á tímabilinu, en hlutfall skapandi atvinnugreina, þar á með- al menningarstarfsemi, jókst úr 20% upp í 23,4% á tímabilinu. Um það bil 1.200 manns vinna í tónlistariðnaðinum einum og sér, eða 1% af íslenskum vinnumarkaði, og velta fyrirtæki í þessum iðnaði um 5 milljörðum króna á ári. Beinn hag- ur af útflutningi á tónlist er að mati Ágústar óverulegur, en hins vegar hefur hann gríðarlega mikil óbein áhrif, meðal annars á ferðaþjónustu. Í niðurstöðum sínum bendir hann jafnframt á þá merkilegu staðreynd að tónlistarnám virðist hafa mikið forvarnargildi, því þeim ungmenn- um sem stunda tónlistarnám er mun síður hætt við að ánetjast vímugjöf- um og áætlar Ágúst að árlegur fjár- hagslegur ávinningur vegna þessa sé 1,1 milljarður króna. Menningarstarfsemi hefur styrkst verulega á flestum sviðum hér á landi, frá árinu 1962 hefur fjöldi nem- enda í tónlistarskólum tólffaldast og spáir Ágúst því að vöxtur tónlistar- iðnaðarins verði slíkur að um 300 ný störf hafi skapast þar árið 2008. „Það er alveg ljóst að vægi menn- ingarstarfsemi hefur aukist mikið og sú þróun mun halda áfram á næstu árum. Iðnaðarframleiðsla var at- vinnuvegur 19. aldarinnar, þjónustu- iðnaður atvinnuvegur 20. aldarinnar og nú spá hagfræðingar því að skap- andi atvinnugreinar verði atvinnu- vegur 21. aldarinnar. Það er að eiga sér stað atvinnuháttabylting og listir og menning munu eiga stóran þátt í henni.“ Þjóðin fær sjálfsvirðingu Guðmundur Oddur Magnússon, betur þekktur sem Goddur, er próf- essor í grafískri hönnun hjá Lista- háskóla Íslands, LHÍ. Goddur segir landslagið í dag gjörbreytt frá því sem var áður en LHÍ var settur á laggirn- ar. „Menningarstarfsemi er alltaf að verða áhrifameiri í samfélaginu og skyndilega eru íslenskir hönnuðir, sem lært hafa á Íslandi og út frá ís- lenskum raunveruleika, orðnir eft- irsóttir á alþjóðavettvangi. Það er mikill hagur í því fyrir íslenskt sam- félag og þá sérstaklega útrásarfyrir- tæki að geta auðkennt sig við þjóð sem er ekki bara þekkt fyrir að veiða fisk. Öflug menningarstarfsemi býr til sjálfsvirðingu og stolt þjóðarinn- ar og Ísland fær nýtt auðkenni á al- þjóðavettvangi. Hinar Norðurlanda- þjóðirnar hafa alltaf verið stoltar af afurðum sínum og nú erum við að verða það líka.“ Iðnhönnun var ekki kennd á Ís- landi fyrr en með tilkomu LHÍ og segir Goddur merki þess sjást hvar- vetna í samfélaginu. „Þetta er farið að hafa miklar afleiðingar, útlit sölu- vara og ímyndir íslenskra fyrirtækja hafa til dæmis tekið miklum breyt- ingum síðustu ár og þar kemur okkar sérþekking að góðum notum.“ Plægja hið óplægða Jóhannes Þórðarson, deildarfor- seti hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ, segir sterka kynslóð íslenskra hönnuða vera að spretta úr grasi. Margir þeirra eru atvinnulífinu afar mikilvægir því sterk fyrirtæki hafi í meira mæli leitað sérþekkingar þeirra við ytri og innri mörkun fyrir- tækjanna. Bláa lónið er gott dæmi í því samhengi, en ímynd þess gekkst undir alhliða yfirhalningu fyrir nokkrum árum, með afar góðum ár- angri. Í framhaldi af þeirri vinnu var settur á markað ýmis söluvarning- ur sem styrkti bæði ímynd og stöðu fyrirtækisins. Út úr slíkri vinnu fær fyrirtækið eða varan nýtt íslenskt og markaðsvænt yfirbragð. „Við erum öll í því að plægja hið óplægða, við hugsum það sem hefur ekki verið framkvæmt áður. Við búum til um- gjörð um ákveðna vöru og gerum hana söluvænni fyrir vikið. Þessa dagana erum við að vinna í verk- efni sem heitir Beint af býlinu, en hugmyndin að baki því var að vinna beint með ákveðnum bændum í því að gera afurðir þeirra sölulegri og áhugaverðari fyrir kaupendur, bæði hér á landi og erlendis. Öll markaðs- þenkjandi fyrirtæki nú til dags líta á þessa vinnu sem lykilatriði í sínu starfi. Þetta er eins konar stoð-iðn- aður, sem miðar að því að gera vör- una sjálfa áhugaverðari. 66 North er ágætt dæmi um fyr- irtæki sem notið hefur góðs af sam- starfi við íslenska hönnuði, á nokkr- um árum hefur vörumerkið breyst í huga fólks frá því að framleiða fyrst og fremst sjómannaklæði, yfir í það að framleiða hátískuútivistarfatnað fyrir íslenskar aðstæður. Vörur fyrir- tækisins hafa tekið stakkaskiptum og það sama er hægt að segja um ímynd þess út á við, fyrir vikið hefur vöru- merkið fest sig í sessi á alþjóðamark- aði.“ Ekki hægt að mæla ávinninginn Garðar Cortes, skólastjóri Söng- skólans, segist ekki vera í vafa um að kostnaðarsamar framkvæmdir á borð við byggingu tónlistarhússins á hafnarbakkanum í Reykjavík muni skila sér margfalt út í samfélagið, með einum eða öðrum hætti. Hann telur það afar mikilvægt fyrir menn- inguna að ráðist sé út í að byggja slík mannvirki, það sýni að fólk trúi því að hagur af öflugri menningu sé mælanlegur, í fleiru en beinum efna- hagslegum ávinningi. „Þó svo að bein hagræn áhrif hússins verði ekki mikil verða óbein áhrif þess gríð- arlega mikil. Húsið mun hafa afar mikla þýðingu fyrir menningarlífið og það er sama hvað þjóðarbúið er vel stætt, ef þjóðin er fátæk af menn- ingu, þá hefur það verulega slæm áhrif á allt annað.“ Garðar bendir einnig á að með því að styrkja stoðir menningarlífsins verði til arðvænlegar útflutningsvör- ur sem hafa haft mikil óbein jákvæð áhrif, meðal annars ferðaþjónustu. „Það er ekki hægt að meta alla hluti beint til fjár, en öflugt menningarlíf er algjör fjársjóður fyrir þjóðina á all- an annan hátt.“ valgeir@dv.is DV Helgarblað föstudagur 9. febrúar 2007 49 Menning stóriðja fraMtíðarinnar Sverrir Ásgeirsson Vöruhönnuðurinn vinnur að þessum séríslenska spilastokk. Goddur Prófessor í LHÍ segir þjóðina öðlast sjálfsvirðingu með öflugu menningarlífi. Snæbjörn Þór Stefánsson Vöruhönnuður á grettisborg. Róshildur Jónsdóttir og Sól Hrafnsdóttir Vinna að ólíkum verkefnum á grettisborg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.