Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Blaðsíða 4
Átök á milli bæjarbúa stigmagnast og eru að ná hámarki:
Ryskingar við jógakennara vegna álvers
Jógakennari í Hafnarfirði lenti
í ryskingum við nema sinn eftir að
þær deildu um stækkun álversins.
Jógakennarinn vill ekki láta nafns
síns getið vegna spennunnar sem
stigmagnast hjá íbúum í Hafnar-
firði. Hún var beðin um að sitja fyr-
ir á bæklingi vegna álversins og var
þar beðin um að vera á meðal and-
stæðinga stækkunarinnar. Að sögn
kennarans fannst henni ekki við
hæfi að segja
já fyrr en
hún hefði
borið það
undir nemendur sína sem hún
kennir jóga. Ein kona mótmælti því
harðlega að hún lýsti opinberlega
yfir andstöðu og varð mikið orða-
skak á milli þeirra.
Konan tók um hönd hennar og
ætlaði sennilega að leggja áherslu
á orð sín en þá kippti kennarinn
að sér hendinni og sagðist þurfa að
fara að kenna. Sjálf gerir hún lítið úr
ryskingunum. Nokkuð
var um fólk í kring-
um þau og svo virð-
ist sem sagan hafi
magnast eitthvað eftir
það. Aðspurð
hvað fór á milli hennar og konunn-
ar ósáttu segir kennarinn að henni
hafi verið hótað því að tímarnir
yrðu sniðgengnir og fleira.
Sjálf vill jógakennarinn sem
minnst úr málinu gera og seg-
ir konuna sem reifst við hana
vera góðan kunningja og þær
hafi oft tekist á um málefni
sem þær voru ekki sammála um.
Hún segir það yfirleitt gert í góðu
en svo virðist sem mikil spenna sé
komin í bæjarbúa vegna málsins.
Samtökin Hagur Hafnarfjarð-
ar hafa ekki farið varhluta af því en
Ingi B. Rútsson formaður samtak-
anna sagði í viðtali við DV fyrr í vik-
unni að reiður náttúruverndarsinni
hafi ráðist á einn sjálfboðaliða frá
þeim og hrint honum. Að auki hafa
þau margsinnis þurft að þola dóna-
legar munnlegar árásir.
Málið virðist vera orðið svo
slæmt að Gunnar Svavarsson for-
seti bæjarstjórnar í Hafnarfirði bað
fólk um að sýna stillingu og ró. Þar
að auki ályktuðu ungir jafnaðar-
menn í Hafnarfirði og báðu fólk að
láta af skítkasti eins og það var orð-
að í ályktuninni.
fIMMTudagur 29. MarS 20074 Fréttir DV
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Deilt er um íbúðarverð nálægt álverinu en talsmaður Sólar í Straumi Pétur Óskarsson
segir stækkun álvers leiða af sér verðhrun á nærliggjandi íbúðum. Ingibjörg Þórðar-
dóttir, formaður Félags fasteignasala, segist ekki hafa trú á því og telur markaðinn
ávallt ráða för og því muni verð ekki lækka. Þrjúhundruð íbúðir óseldar á Völlunum.
Margar óseldar
íbúðir næst álveri
valur grettIsson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Við höfum bent á að það sé mögu-
leiki á að fasteignaverð í kringum ál-
verið lækki verði af stækkun,“ segir
Pétur Óskarsson formaður samtak-
anna Sól í Straumi, sem eru andvíg
stækkun álvers. Formaður Félags
fasteignasala, Ingibjörg Þórðardótt-
ir, segir það ekki rétt. Hún segir að
álverið muni ekki hafa áhrif á fast-
eignaverðið því mengunarmörk eru
fyrir utan byggðu svæðin næst álver-
inu. Eignirnar hafa þegar verið seld-
ar undir markaðsvirði.
„Samkvæmt könnunum eru það
ungar konur sem eru frekar andvígar
álverum en þær einmitt ráða mestu
um það hvar ungar fjölskyldur setj-
ast að,“ segir Pétur Óskarsson, for-
maður samtakanna Sólar í Straumi.
Hann segir að það muni skipta meira
máli fyrir ungt fólk hvort það sé álver
í garðinum hjá þeim eða ekki. Hann
segir fasteignamarkað Hafnarfjarð-
ar vera í samkeppni við allt höfuð-
borgarsvæðið. Því sé ekkert því til
fyrirstöðu að fólk leiti frekar eitthvert
annað en í bakgarð álversins. Sjálf-
ur segir hann ómögulegt að reikna
út skaðann ef verð lækkar en bendir
á að menn giski á fjögurra milljarða
tap á fasteignum í heild.
undir markaðsverði
„Ungt fólk hefur miklar áhyggjur
af þróun íbúðarverðs á þessu svæði,“
segir Pétur og á þar við Áslandið í
Hafnarfirði, Vellina sem liggja næst
álverinu og Holtið. Íbúðir við Vell-
ina eru þegar að fara undir markaðs-
verði en að sögn Lúðvíks Geirssonar,
bæjarstjóra Hafnarfjarðar, er ástæð-
an sú að lóðirnar voru seldar ódýrt á
sínum tíma. Verktakar eiga að hafa
sameinast um að halda verðinu niðri
en ekki fylgja eðlilegum markaðslög-
málum. Verðið var um milljón undir
markaðsverði. Ef farið er á fasteigna-
vef Morgunblaðsins má finna rétt
tæplega 300 auglýsingar um íbúðir
til sölu á Völlunum. Fasteignasalar
sem rætt var við í Hafnarfirði segja
þó sölur ganga vel.
Ósýnileg girðing
Þynningarsvæði álversins mun
ekki hafa áhrif á íbúabyggðina sam-
kvæmt mati bæjaryfirvalda og for-
ystumanna álversins. Þessu er Pét-
ur þó ekki sammála: „Sextíu og sex
daga á ári berst mengun til hverf-
anna samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu,“ segir Pétur og vill því
meina að hverfin gjaldfalli sjálfkrafa
fyrir vikið.
Hann segir bæði þau rök ásamt
því að ungt fólk leiti síður til íbúða-
byggðar nálægt stóriðju verði til þess
að fasteignaverð muni óhjákvæmi-
lega lækka þrátt fyrir að engar tölur
sýni það á óyggjandi hátt.
Markaðsverð ræður
„Mælingar sýna að mengun nái
ekki til hverfanna og því ætti það
ekki að hafa áhrif á verð íbúða ná-
lægt álverinu,“ segir Ingibjörg. Að-
spurð um þær íbúðir sem í dag eru
undir markaðsverði segist hún ekki
vita til þess að slíkt sé uppi á ten-
ingnum. Hún bendir á að fasteign-
ir fylgi ávallt markaðsverði og því
sé það óeðlilegt að þær séu lægri í
verði en aðrar fasteignir. Sjálf segist
hún ekki hafa trú á því að það verði
verðfall á fasteignum nálægt álver-
inu.
„Samkvæmt könnun-
um eru það ungar kon-
ur sem eru frekar and-
vígar álverum en þær
einmitt ráða mestu um
það hvar ungar fjöl-
skyldur setjast að.“
vellirnir Þarna má sjá Vellina,
sem er rísandi hverfi í Hafnarfirði,
en álverið er í baksýn. andstæð-
ingar álvers segja það hafa
alvarleg áhrif á íbúðarverð.
slakað á í jóga Ekki eru allir jafnrólegir
í jóga en kennari lenti í harðri orða-
rimmu við nemanda sinn vegna álvers í
Hafnarfirði.
Ungabörn
heyrnarmæld
Til stendur að heyrnarmæla
öll nýfædd börn á Landspítalan-
um næstu tvö ár í samstarfi við
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
Fram til þessa hafa einungis börn
úr áhættuhópi verið heyrnar-
mæld, til dæmis börn með ætt-
arsögu um heyrnarskerðingu og
fyrirburar.
Rannsóknir sýna að mikilvægt
er að byrja að meðhöndla börn
í síðasta lagi þegar þau eru sex
mánaða til að þau eigi möguleika
á að ná góðum tökum á máli,
þrátt fyrir heyrnarskerðinguna.
Átta þúsund
undirskriftir
Rúmlega átta þúsund hafa
undirritað sáttmála Framtíð-
arlandsins um framtíð Íslands
á þeim tíu dögum sem liðnir
eru síðan undirskriftasöfn-
un hófst. Jónína Bjartmarz
umhverfisráðherra er eini
stjórnarliðinn sem hefur und-
irritað sáttmálann. Allir fimm
þingmenn vinstri grænna hafa
undirritað sáttmálann en eng-
inn þeirra fimm þingmanna
sem sitja á þingi fyrir Frjáls-
lynda flokkinn. Fimmtán af
nítján þingmönnum Samfylk-
ingar hafa undirritað hann.
vilja fá þyrlur
norður og vestur
Bæjarráðsfólk í Bolungar-
vík vill að ein af björgunarþyrl-
um Landhelgisgæslunnar verði í
framtíðinni á Vestfjörðum.
Í samþykkt bæjarráðs um
atvinnuuppbyggingu segir að
öryggisrök séu fyrir staðsetningu
þyrlu á Vestfjörðum, ekki síst
nálægð við fiskimið. Að auki vísa
bæjarráðsmenn til þess að störf
tengd þyrlu á Vestfjörðum kynnu
að koma að nokkru í stað starfa
sem töpuðust vegna minnkandi
umsvifa Ratsjárstofnunar.
Stjórn Læknafélags Íslands
hefur svo mælst til þess að þyrla
verði á Akureyri til að stytta við-
bragðstíma þegar slys verða eða
fólk er í nauð.
vill meiri
þorskkvóta
„Netabátar eru drekkhlaðnir
á Suðurnesjum, bæði á línu og
net,“ segir Grét-
ar Mar Jónsson
skipstjóri. Hann
bendir á að það
hafi verið mo-
kveiði á öllum
miðum frá Vest-
fjörðum suður
á Hornafjörð og
menn séu að fá
þrjú til sex tonn í róðri. „Við þurf-
um að hlusta meira á menn eins
og Jón Kristjánsson fiskifræð-
ing sem var fenginn til ráðgjaf-
ar við fiskveiðistjórnun Færey-
inga,“ segir Grétar sem vill að 50
þúsund tonnum verði bætt við
þorskkvótann.