Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Blaðsíða 30
Fimmtudagur 29. mars30 Síðast en ekki síst DV
veðrið ritstjorn@dv.is
föstudagurfimmtudagur
Sandkorn
fiskréttunum frá Fiskisögu. Frábært
úrval, gott hráefni og tímabært að
auka fiskneysluna. Kannanir sýna
að dregið hefur mjög úr neyslu fisks
meðal Íslendinga. Sjaldan er góð
ýsa of oft soðin, eins og Flosi sagði
forðum. Fiskisaga býður bæði uppá
hefðbundna og framandi fiskrétti,
þannig að kunnáttuleysi í elda-
mennsku er engin afsökun fyrir lít-
illi fiskneyslu.
göngutúrum í stað sjónvarpsgláps.
Með hækkandi sól er tímabært
að draga fram góða gönguskó og
leggja land undir fót. Í stað doða og
dauflegra augna kemur roði í kinn-
arnar, góð matarlyst og betri svefn.
Þess utan er hressandi ganga góð
leið til að komast í betra form.
samvistum við fjölskyldu og vini.
Þó síminn sé góðra gjalda verður er
ekkert sem kemur í stað samvista
við sína nánustu. Á tímum hraða
og streitu er auðvelt að vanrækja þá
sem manni þykir vænt um. Enginn
er að tala um lágmarkslengd sam-
vistanna, gæðin og einlægnin eru
mikilvægust.
þættinum Vörutorgi á Skjá einum.
Ef þér gengur erfiðlega að tileinka
þér lið tvö, skaltu horfa á Vörutorg
á Skjá einum og sannaðu til, þú
ættir í það minnsta að verða afhuga
sjónvarpsglápi um sinn. Plottið er
lélegt, fátækleg persónusköpun og
afburða hæg framvinda.
Við mælum með...
....göngutúrum
....fiskisögu
....fjölskyldulífi
Brynjar orðinn BmV
Brynjar Már Valdimarsson út-
varpsmaður á FM 957, tónlist-
armaður og
annar helming-
ur tvíeykisins
Snooze hefur
byrjað sóló-
feril í tónlist-
inni. Brynjar,
sem oft gengur
undir nafninu
Binni strípa,
virðist nú hafa tekið upp en eitt
nafnið, eða skammstöfun sína
BMV. Brynjar hefur opnað eigin
heimasíðu á slóðinni Myspace.
com/bmvofficial, þar sem not-
endur geta hlustað á fyrsta lag
kappans, In My Place. Í lag-
inu kveður greinilega við nýjan
tón, því Brynjar hefur sagt skilið
við rappið í bili og er nýja lagið
tregafull ballaða um ástina og
lífið.
Ewan mcgregor í stað
jude law
Jude Law lét víst ekki sjá sig hér
á landi um helgina, eflaust mörg-
um til mikillar
gremju. Á sama
tíma bárust þó
fréttir af því að
Ewan McGreg-
or hefði slett
úr klaufunum
ásamt góðum
vinum hér á
laugardaginn,
en ekki fer neinum sögum um að
hann hafi látið sjá sig skemmti-
stöðum bæjarins og fór þess
heldur í prívat-teiti. Fleiri heims-
þekktir menn eru þó staddir á
klakanum, en þeir Peter Mort-
on stofnandi Hard Rock Café og
upptökumeistarinn Tony Cook
hafa látið sér líða vel hér undan-
farna daga. Og vonandi getur það
glatt einhvern.
gamli góði mogginn
Í Morgunblaðinu á þriðjudag-
in voru átta aðsendar greinar
um fyrirhug-
aða stækkun
álvers Alcan
í Straumsvík.
Tvær af átta
greinum voru
skrifaðar af
mönnum sem
lýstu sig fylgj-
andi stækk-
uninni. Sérstaka athygli vakti
að þessar tvær greinar voru feit-
letraðar og mun meira áberandi
heldur en hinar sem skrifaðar
voru af andstæðingum stækkun-
arinnar. Andstæðingar stækunar-
innar eru margir hverjir undrandi
yfir þessari framsetningu og velta
því fyrir sér hvort afstaða gamla
góða Moggans til stækkunarinn-
ar ætti að dyljast nokkrum manni
lengur.
dauðaleit að kvittun hafin
Múrbúðin hefur skorið upp
herör gegn „Múskó-væðingu“
viðskiptalífs-
ins, svokallaðri,
sem gengur að
sögn starfs-
manna Múr-
búðarinnar
út á að rugla
neytendur í
ríminu með
endalausum
tilboðum, afsláttum og útsölum,
þar til enginn veit lengur hvað
upphaflegt verð var. Múrbúð-
in hefur nú hafið dauðaleit að
kvittun frá Byko sem sýnir að
viðkomandi hafi einhvern tíman
borgað 7.399 fyrir tiltekna teg-
und af málningu, en Múrbúð-
armenn segjast hafa ástæðu til
að ætla að Byko hafi aldrei selt
málninguna á verðinu og því gefi
lækkaða verðið, brenglaða mynd
af afslættinum. Múrbúðin lofar
hverjum þeim sem skilar inn
kvittun með verðinu, helgarferð
fyrir tvo til London.
4
44
4
4 5
4 7
5
46
17
6 4
5 7
57
4
7
47
7
7 8
5 7
8
77
412
6 12
6 4
67
7
....Vörutorginu
Lind hinnar eilífu æsku er til. Ein-
hvers staðar. Að minnsta kosti virðist
Sir Cliff Richard hafa sopið af henni.
Hreyfingar og himnesk rödd hans
fengu hjörtu til að slá mun hraðar en
ella, þegar hann stóð á sviði Laug-
ardalshallarinnar í gærkvöldi. Því
hafði verið spáð að konur á miðjum
aldri myndu fylla Höllina á tónleik-
unum en því fór fjarri að þær væru í
meirihluta. Karlmenn nutu kvölds-
ins engu síður en konur. Þarna mátti
sjá flest þekktustu andlit þjóðarinnar
og enginn var of feiminn til að taka
undir með í þekktustu lögum söngv-
arans. Hann rokkaði, hann söng ball-
öður og gospel og flutti allt jafn vel.
Vissulega voru flestir tónleika-
gestanna um og yfir miðjum aldri
– en þarna mátti þó sjá eina og eina
unga manneskju. Þarna var líka
fólk úr einum af fjölmörgum, bresk-
um aðdáendaklúbbum Cliffs.Ein
úr hópnum hefur fylgt Cliff eftir í 45
ár og sagði að þó þetta væri vissu-
lega dýrt áhugamál, væri það ekkert
dýrara en fótboltaáhugi eiginmanns
hennar!
Cliff Richard kom á óvart. Hann
er þrælhúmorískur og náði að sam-
tvinna húmor og himneskan söng
í næstum þrjár klukkustundir. Bak-
raddasöngvararnir þrír skiptust á að
fara af sviðinu, en Cliff stóð keikur
allan tímann. Eða réttara sagt sveif
um sviðið. Michael Jackson hvað?
Hreyfingar Cliffs eru þess eðlis að
óhjákvæmilegt er að velta fyrir sér
hvers konar líkamsrækt hann stund-
ar. Silkimjúkar hreyfingarnar vöktu
aðdáun og fólk sagði upphátt: “Hann
getur ekki verið að verða 67 ára!”
Það er ekki bara rödd Cliff Ri-
chard sem er heillandi. Frá mann-
inum stafar undraverð hlýja. Því
kynntust blaðamaður DV og vin-
ir þegar þau snæddu á veitingahús-
inu Óðinsvéum í fyrrakvöld, þangað
sem Cliff Richard kom ásamt bresku
samstarfsfólki sínu. Hann gladdist
við að heyra að í salnum væru aðdá-
endur hans til 45 ára og bað um að
fá að tala við þá. Hann hlustaði af at-
hygli á frásögn af bangsanum sem
keyptur var af fjögurra ára íslenskri
hnátu í Skotlandi og hlaut nafnið
Cliff Richard. Hann var yfir sig hrif-
inn af saltfiskinum hans Sigga Hall
og sagði á tónleikunum í gærkvöldi
þegar hann gleymdi einni laglínu að
það hefði verið vegna þess að hann
hefði verið að hugsa um þorsk. Hann
vildi tala við okkur á Óðinsvéum, því
hann sagðist þakklátur því fólki sem
hefði gert honum kleift að starfa við
tónlist í hartnær hálfa öld.
Þakklæti sitt sýndi hann líka í
gærkvöldi. Í lok tónleikanna benti
hann á að það væri erfitt fyrir Ís-
lendinga að vera síðustu tónleika-
gestirnir á hálfs árs tónleikaferðalagi
sínu. Upplifun sín og félaga sinna á
þeim áheyrendum myndi bera hátt
í minningunni. Íslendingar hefðu
fyllilega staðið undir því að vera frá-
bærir tónleikagestir. annakrisine@dv.is
Aðdáendur Cliff richards skemmtu
sér vel með goðinu í Laugardalshöll í
gærkvöld. Sjálfur meistarinn sagðist
ánægður með íslensku aðdáendurna.
Húmor og Himnesk
rödd í Höllinni