Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2007, Blaðsíða 11
DV Fréttir fimmtudagur 29. mars 2007 11 Postularnir tólf Kína setur rúma áttahundruð milljarða í uppbyggingu Tíbet Stjórnvöld í Kína kynntu í fyrra- dag áform sín um uppbyggingu í Tíbet næstu fjögur ár. Er áætlað að verja sem samsvarar áttahund- ruð og fjörtíu milljörðum íslenskra króna í ýmis verkefni í landinu. Er þetta mun meira fjármagn en Kín- verjar hafa hingað til sett í uppbygg- ingu landsins og segja þeir tilgang- inn að bæta lífsgæðin í fátækustu byggðum þess. Meðal verkefna sem ráðist verð- ur í er tenging áttatíu prósent bæja í Tíbet við vegakerfi landins. Lest- arsamgöngur við Kína verða efld- ar verulega og byggður verður flug- völlur á Ngari svæðinu. Hann mun standa í 4,334 metra hæð og verða sá hæsti í heimi. Einnig verður öll- um 2,7 milljónum landsins tryggður aðgangur að hreinu vatni og mennt- un barna aukin. Gruna Kínverja um græsku Andstæðingar kommúnista- stjórnarinnar í Peking óttast að til- gangurinn með uppbyggingunni sé í raun sá að herða tak sitt á land- inu og auðvelda nýtingu á auðlind- um þess og auka þannig hagvöxt í Kína. Nýlega tilkynntu fjölmiðlar í Tíbet um stóran fund á kopar og járnum en landið er mjög auðugt af steinefnum. Slæmar samgöng- ur hafa hins vegar hamlað nýtingu þeirra. Takmarkaðar upplýsing- ar um í hvaða verkefni fjármagn- inu skuli varið er talin vísbending um að Kínverjar ætli að nota stór- an hluta þess í byggingu vatnsafls- virkjana samkvæmt frétt breska blaðsins The Guardian í gær. Þar kemur einnig fram að stór hluti af þeim peningum sem Kínverjar hafa sent til Tíbet síðustu ár hafi endað í höndum kínverska minnihlutans þar. Hæsti flugvöllur heims byggður Bólusetja þrjár milljónir stúlkna Þær þrjár milljónir stúlkna sem eru á aldrinum tólf til sautján ára í Þýska- landi eiga nú á kost á bólusetningu gegn leghálskrabbameini þeim að kostnaðarlausu. Þetta er hluti af átaki í landinu til að lækka tíðni þessarar tegundar krabbameins og er áætlað að kostnaður ríkisins verði sem sam- svarar rúmum tíu þúsund íslenskum krónum fyrir hverja bólusetningu. Eldri konur geta einnig látið bólu- setja sig en þurfa þá að greiða hluta af kostnaðinum. Samkvæmt frétt The Times er talið að þetta átak muni setja pressu á stjórnvöld í öðrum ESB-lönd- um að gera slíkt hið sama. leiðtogar afríkuríkja á neyðarfundi Ástandið í Zimbabve og Lýðveldinu Kóngo verður rætt á neyðarfundi helstu leiðtoga Afríkuríkja í Tansaníu næstu tvo daga. Talið er að Mugabe, forseti Zimbabve verði gagnrýndur á fundinum fyrir aðgerðir lögreglu land- ins gegn stjórnarandstæðingum síðustu vikur. Ástandið í Lýðveldinu Kóngó verður einnig tekið fyrir á fundin- um en samkvæmt nýjust fréttum er óttast að allt að sex hundruð manns hafi látist í átökum þar síðustu daga. Breska samveldisins. Norður-Írlandi var gefinn kostur á að draga sig út úr hinu nýja frjálsa ríki og verða hluti af breska samveldinu og kaus þing Norður-Írlands að gera svo. Mjög skiptar skoðanir voru með- al IRA-liða á þessum samningi og ekki leið á löngu áður en Michael Collins fór að skipuleggja aðgerð- ir gegn Norður-Írlandi og snemma árs 1922 sendi hann IRA-deildir til landamæranna og vopn til deilda í Norður Írlandi. Og baráttan hélt áfram og deilur milli lýðveldissinna og sambandssinna, mótmælenda og kaþólikka hafa einkennt líf Norð- ur-Íra allar götur síðan. Ofbeldið stigmagnast Tímabil aukins ofbeldis rann upp síðla á sjöunda áratugnum og jaðraði það við stjórnleysi, en sundrung var komin upp meðal lýðveldissinna. Ekki var ágreining- ur um markmiðið, en ekki var sam- komulag um leiðina að því. Hinn marxíski vængur vildi aðild að þingi og ríkisstjórn, en aðrir hvöttu til að- gerða á götum úti og túlkuðu and- stöðu við stjórnmálaþátttöku sem merki um tryggð. Og IRA klofnaði. Afsprengi þessa klofnings er hern- aðararmur sem síðan þá er þekkt- ur sem IRA. Skálmöldin á Norður- Írlandi hélt linnulaust áfram með mannvígum á alla bóga. Nýr blóð- ugur sunnudagur rann upp 30. jan- úar árið 1972 er breski herinn drap 13 óbreytta borgara í Derry. Í kjölfar atburðanna voru meðlimir fallhlífa- herdeildar breska hersins hreinsað- ir af allri sök í málinu. Málið var tek- ið upp aftur árið 1998 en enn í dag hefur ekki fengist niðurstaða í mál- inu þrátt fyrir fjölda vitnisburða og ómældan kostnað. Omagh og vopnahlé Klofningshópur frá IRA, Hinn raunverulegi írski lýðveldisher, stóð að baki sprengjutilræði í Omagh sem varð 31 að aldurtila og voru konur og börn í meirihluta. Þetta gerðist um miðjan ágúst 1998 og í kjölfarið urðu kröfur um hlé á að- gerðum IRA háværar og samið var um vopnahlé seinna sama ár. Eftir stóð spurningin um efndir og það var ekki fyrr en 6. maí árið 2000 að IRA samþykkti að leggja niður vopn og hætta vopnaðri baráttu. Fimm árum síðar, 28. júlí 2005, lýstu sam- tökin yfir að þau hefðu fyrirskipað lok vopnaðrar baráttu. Síðan 1969 hafa um 3.500 manns týnt lífi vegna deilnanna. Kjötneysla mæðra skerðir sæðisframleiðslu sveinbarna Bandarískar kannanir sýna að hormónar sem notaðir eru til að auka kjötframleiðslu nautgripa þar í landi hafa skaðleg áhrif á sæðis- framleiðslu. Þannig hefur mikil kjöt- neysla mæðra á meðgöngu slæm áhrif á sæðisframleiðslu sveinbarns- ins. Bann við notkun þessara horm- óna var sett á í Evrópu árið 1988 en tíðkast enn í Bandaríkjunum. Synir mæðra sem borðuðu meira en sjö kjötmáltíðir á viku eru þrisvar sinn- um líklegri til að geta talist ófrjóir en synir þeirra sem borðuðu minna af kjöti. Íbúi í Tíbet Kínverjar ætla að bæta hag landsmanna næstu ár. Samkomulag um heimastjórn á Norður-Írlandi var undirritað á mánudaginn. Margir telja að nú loks hilli undir frið þar. Saga Norður-Írlands og sam- skipti sambandssinna og lýðveldissinna hafa verið blóði drifin og eru bæði gömul og ný. Liðsmenn IRA Í dublin árið 1922 eftir að Norður-Írland var skilið frá Írlandi. Michael Collins stofnandi Postulanna tólf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.